23.4.2008 | 10:48
Hræddar löggur
Þora löggurnar bara að vera með ofbeldi gagnvart ungu fólki og friðarsinnum? Svo virðist vera. Þeir eru augljóslega skíthræddir við bílstjórana eða kannski eru þeir bara sammála þeirra málstað og fara því um þá silkihönskum.
Ég tek það fram að ég er ekki fylgjandi ofbeldi að neinu tagi, og varð því oft nokkuð brugðið yfir yfirgangi og ofbeldi lögreglu gangvart sammótmælendum mínum í tengslum við Saving Iceland. Það er áhugavert að bera saman ReClaim the Streets Karnivalið, þar sem ungt fólk var skrautlega klætt með tónlist á pallbíl að labba Snorrabraut í fyrra. Ekki fór lögreglan neinum silkihönskum um þessa krakka. Það eru fjölmörg vitni að því hve langt í frá ofsafengin viðbrögð lögreglunnar voru og til upptökur af því. Þau lokuðu aldrei alveg Snorrabraut og fullt af hjáleiðum þarna. Þó fannst lögreglu tilefni til að handtaka fólk, lumbra á því og brjóta rúðu á einum bílnum. Þau voru á leið niður Laugarveg en fengu ekki að halda göngunni áfram. Rökin: þau sóttu ekki um leyfi og fólk kvartaði undan hávaða!
Mig langar til að fólk hugsi sig vel og lengi um af hverju löggan fær sér pulsu með bílstjórnum og í nefið en beitti þetta unga fólk ofbeldi. Mér finnst að þetta eigi bara alls ekki að líðast.
Suðurlandavegi lokað á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 509214
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
- ADHD
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Alexandra Briem
- Andrés Magnússon
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ari Sigurðsson
- Baldvin Björgvinsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Bara Steini
- Bergur Sigurðsson
- Bergur Thorberg
- Bergur Þór Ingólfsson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Binnan
- Birgir Þórarinsson
- Birna Rebekka Björnsdóttir
- Bjargandi Íslandi
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- SVB
- Brjánn Guðjónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja skordal
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Daníel Haukur
- Dorje
- Dísa Dóra
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Einar Guðjónsson
- Einar Indriðason
- Einar Vignir Einarsson
- Einar Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eldur Ísidór
- Elyas
- Elín Sigurðardóttir
- Elísabet Markúsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- Eva Benjamínsdóttir
- Eydís Hentze Pétursdóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- FLÓTTAMAÐURINN
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fríða Eyland
- Félag Anti-Rasista
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerður Pálma
- Gestur Guðjónsson
- Goggi
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Pétursson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Bergmann
- Guðjón Heiðar Valgarðsson
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur M Ásgeirsson
- Guðmundur Ragnar Guðmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðný Lára
- Guðrún S Sigurðardóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Hjálmar
- Haffi
- Halldór Sigurðsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haukur Már Helgason
- Heidi Strand
- Heilsa 107
- Heiða Þórðar
- Helga Auðunsdóttir
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Hlédís
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Hrólfur Guðmundsson
- Hulla Dan
- Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
- Hörður B Hjartarson
- Húmoristaflokkurinn
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingibjörg Helga
- Ingibjörg SoS
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Isis
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakob Smári Magnússon
- Jakob Þór Haraldsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jens Guð
- Johann Trast Palmason
- Jóhannes Ragnarsson
- Jón Bjarnason
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- DÓNAS
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ketill Sigurjónsson
- Ketilás
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristbergur O Pétursson
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Kristín Dýrfjörð
- Kristín Snorradóttir
- Krummi
- Kári Harðarson
- Landvernd
- Laufey Ólafsdóttir
- Lovísa
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lýður Árnason
- Mafía-- Linda Róberts.
- Margrét Guðjónsdóttir
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- Margrét Sigurðardóttir
- Markús frá Djúpalæk
- María Kristjánsdóttir
- María Pétursdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Morgunblaðið
- Myndlistarfélagið
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- Neo
- Oddi
- Paul Nikolov
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Pálmi Gunnarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rannveig H
- Ransu
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samstaða - bandalag grasrótarhópa
- SeeingRed
- Sema Erla Serdar
- Sigga
- Signý
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurgeir Þór Hreggviðsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Sigurður Hrellir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Skuldlaus
- Snorri Sturluson
- Soffía Valdimarsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stríða
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinn Hjörtur
- Sveinn Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Swami Karunananda
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sævar Einarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- TARA
- Tilkynning
- Tinna Jónsdóttir
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Tína
- TómasHa
- Valgeir Skagfjörð
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vilborg Eggertsdóttir
- Vilhelmina af Ugglas
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Vinir Tíbets
- Viðar Eggertsson
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Vér Morðingjar
- Vésteinn Valgarðsson
- arnar valgeirsson
- fingurbjorg
- hreinsamviska
- leyla
- molta
- oktober
- Einhver Ágúst
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Ár & síð
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásgerður
- Ásta Hafberg S.
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólöf de Bont
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Arnórsson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Þröstur Unnar
- Þór Jóhannesson
- Þór Saari
- Þórhildur og Kristín
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Andrés.si
- Anna Karlsdóttir
- Anna Margrét Bjarnadóttir
- Ari Jósepsson
- Aron Ingi Ólason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Barði Bárðarson
- Bergþór Gunnlaugsson
- Billi bilaði
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Kristjánsson
- Bogi Jónsson
- brahim
- Daði Ingólfsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Dóra litla
- Dúa
- Einar Björn Bjarnason
- Elsabet Sigurðardóttir
- Esther Anna Jóhannsdóttir
- Frosti Sigurjónsson
- Grétar Eiríksson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Héðinn Björnsson
- Hreyfingin
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Pétur
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Jónas Bjarnason
- Jón Kristófer Arnarson
- Jón Lárusson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Lúðvík Lúðvíksson
- Madhav Davíð Goyal
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Morten Lange
- Óðinn Kári Karlsson
- Ólafur Eiríksson
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Rannsóknarskýrslan
- Rúnar Freyr Þorsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Vaktin
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
Athugasemdir
Það má lesa það á milli línanna Birgitta að þú viljir að það verði gætt jafnræðist í valdbeitingu og að það verði tekið fastar á vörubílstjórunum.
Sigurjón Þórðarson, 23.4.2008 kl. 10:54
Það verður fróðlegt að sjá hvað almenningur gerir og hvernig hann bregðist við ef lögreglan beitir þesum kylfum og skjöldum,er verið valdið að kalla yfir sig einhverju sem á eftir að verða mun umfangsmeiri og jafnvel harðari aðgerðir almennings.
Landi, 23.4.2008 kl. 10:55
Hvort sem um er að ræða friðarsinna, Falun Gong, umhverfisverndarsinna eða bílstjóra þá tel ég það mjög alvarlegt að lögreglu skuli beitt gegn fólki sem er að nýta sér lýðræðislegan rétt sinn til að viðra skoðanir sínar. Reyndar er þetta bara gert þegar skoðanir almennings fara ekki saman við skoðanir valdhafanna. Til dæmis voru menn með mótmælaspjöld fjarlægðir af Austurvelli á 17. júní fyrir nokkrum árum. Þeir máttu ekki tjá skoðanir sem voru andstæðar skoðunum forsætisráðherra. Þegar forsætisráðherra lauk máli sínu klappaði stór hluti áhorfenda og tjáði þannig skoðun sína á málflutningum. Enginn þeirra var handtekinn þrátt fyrir tjáningu skoðana. Jú, af því að menn voru í þessu tilviki að tjá skoðanir sem voru jákvæðar í garð valdhafa
Er ekki kominn tími til þess að landinu sé stjórnað samkvæmt vilja og hagsmunum almennings eins og menn héldu að meiningin væri við lýðvelsisstofnunina. Á þjóðin að sætta sig endalaust við valdarán stjórnmálaflokkanna sem virðist sífellt vera að festa sig í sessi.
hreidare@mi.is
Hreiðar Eiríksson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 10:56
Hefur lögreglunni kannski verið falið það vald að brjóta niður tjáningar- og málfrelsi landans. Ég styð bílstjórana heils hugar vegna þess að þeir eru ekki bara að berjast fyrir sig sjálfa heldur alla þá sem þurfa að kaupa bensín á landinu. Ef bensínverð lækkaði þá er aldrei að vita nema flugfargjöld lækkuðu í verði líka. Ég er full aðdáunar á fólki sem gefur sér tíma til þess að mótmæla harðræði og misbeitingu á valdi.. Ekki hef ég haft mig upp af rassinum til að gera nokkurn skapaðan hlut
Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 10:56
Afsakið frönskuna enn Mikið djöfull eruð þið "gay" Tómar hippa-mussur og treflar. Að loka inn og útgönguleiðum úr höfuðborginni er Stórt lögbrot og menn verða ákærðir fyrir hryðjuverk því að þetta eru hryðjuverk í fullum skilning lagana, "aðgerðir sem miðast af að skapa hræðslu og ringulreið og tefla öryggi borgara í hættu" Ég persónulega vona að lögreglan taki af fullum þunga á þessum vörubílstjórum og kæri þá einmitt fyrir HRYÐJUVERK. Þetta kemur Tjáningar eða málfrelsi ekki baun við, þeir meigja seigja það sem að þeir vilja, tjá sig með öllum mögulegum leiðum enn EKKI skapa hættu og hræðslu meðal almennra borgara.
Ásgeir Ólafsson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 11:20
Bifreiðastjórarnir valda óviðkomandi fólki hættu, kostnaði, töfum og leiðindum með yfirgangi sínum og ofbeldisverkum. Þetta hefur margsinnis sýnt sig. Þeir eru einungis að vekja athygli á sínum þrönga málstað og hann er ekki annar en sá að þeir verða fyrir tekjutapi eins og svo fjöldamargir aðrir vegna hins háa olíuverðs. Það var ekki ríkisstjórn Íslands sem setti verðið á olíufatinu í 118USD. Og skattarnir á eldsneyti eru ekki nema rétt mátulegir. Hvaðan á annars að taka fé til framkvæmda og samfélagsverkefna? Vörubílstjórarnir gætu lagt niður störf í mótmælaskyni. Það er lögleg mótmælaleið ef rétt er að þvi staðið.
Lögreglan á að setja mótmælaaðgerðum bifreiðastjóranna skýr mörk sem miðast við það að mótmælendur fylgi lögum og reglum í aðgerðum sínum. Ella verða þeir að mæta réttarkerfinu. Þetta verður að gerast sem fyrst áður en vitleysan gengur lengra.
K.S.
Kristján Sveinsson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 11:45
Svar til Ásgeirs, sæll mikið óskaplega ert þú vel að þér í orðavali það vilja allir hlusta á mann sem er svona málefnalegur og kurteis og ég fagna því að þú sért ekki Tómur hrokagikkur ,skapbráður og ókurteis dressmannsluri og að lokum óska ég þér velfarnaðar,því sennilega þarftu á því að halda kæri Ásgeir
Kristín Jónsdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 12:00
Svar til Kristínar, Þakka þér kærlega fyrir það. Nei nei þú þarft ekkert að óska mér velfarnaðar, ég hef nóg af honum í þessu frábæra ríki sem að við búum í. "Enn er Dressmanluri" eithvað sem er andstæðan við "hippamussur" og "Trefla" ??
Ég þarf ekki að loka vegum og skapa hættu til að tjá málfrelsi mitt, ég nota það hérna.
Ásgeir Ólafsson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 12:16
Sæll Ásgeir ( svar við Dressmannsluri)
Dressmannsluri er maður sem er með límheila skiljist sem!! þeir sem hafa enga eða ekki djúpa persónulega reynslu en bóklega muna jú upplýsingar en hafa engar sjálfsmyndaðar skoðanir og segja mjög gjarnan,,,,,,en það stendur hér og veifa lögum og bókum í andlitið á manni einsog heilagri ritningu fela sig bakvið góð gleraugu með valdamikið skrifborð fyrir framan sig,,,,,gleyma húmanískri nánd eða skilningi klæða sig í jakkaföt og bindi úr Dressmann því það jú fit the profile.Og það er töff að blogga en skilar ekki eins miklu..............Ég las sem oft áður blogg hjá konu sem á mjög veikt barn nema hvað að hún hafði gert litla stafsetningarvillu,hún var að lýsa vanlíðan sinni og barnsins yfir öllu sem gekk á og gengur á í þeirra lífi nema þar skráir kona sig inn til að benda henni á stafsetningarvilluna og útskýrir hana heilmikið,og hvernig heldur þú að móðirin hafi tekið því ? jamm,,,,í hvaða flokki heldur þú að þessi" klára " íslenskuleiðréttingapúki hafi verið í ?en nóg um það ..............
Vonandi ert þú ekki einn af fjölmörgum Dressmannslurunum Ásgeir því þetta er fólkið okkar sem setur lögin og stjórnar hér öllu á bakvið tjöldin og við hin nögum neglurnar og horfum á,, verðum svo kolklikk ef einhver dirfist að tefja rammann okkar og þægindahringinn því við viljum ekki fara úr honum.Á meðan aðrir berjast fyrir okkur þá sitjum við hér og körpum um hvað má og má ekki og bið ég því frekar um mussu og trefil ,eða eitthvað allt annað sem virkar betur þú og ég . Kveðja Kristín
Kristín Jónsdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 14:05
Það er einkennileg árátta að snúa skoðanaskiptum upp í persónulegt skítkast. Ekki hvað síst þegar sömu aðilar gagnrýna í öðru orðinu mein "lögbrot" við nýtingu vörubifreiðastjóra á tjáningarfrelsi sínu en nota síðan sama tjáningarfrelsið til að ata fólk aur á internetinu og - jú - brjóta með því lög.
Borgaraleg óhlýðni er að mínu mati nauðsynlegt fyrirbæri í lýðræðislegu samfélagi. Mannréttindi eru grundvöllur lýðræðisins. Á Íslandi höfum til talið okkur standa vel í mannréttindamálum en svo er ekki í raun. Í raun ættum við að skammast okkar og laga til hjá okkur áður en við a.m.k. segjum öðrum þjóðum til í mannréttindamálum.
Hreiðar Eiríksson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 17:18
Merkiegt þetta með orð - sumir kjósa að lesa eitthvað á milli lína sem hlýtur að eiga heima í þeirra eigin ranghugmyndum. Af hverju ætti ég að styðja meiri valdníðslu þó ég fordæmi hana á öðrum hópum. Ég bara furða mig á mismunandi viðbrögðum hjá mismunandi samfélagshópum. En því miður þá virðist lögreglan hafa ákveðið að eina lausnin sé að beita tilhæfulausu ofbeldi. Það sem gerðist þarna í dag er skammarlegt og ég fordæmi það.
Birgitta Jónsdóttir, 23.4.2008 kl. 18:58
Ég er sammála. Þetta var röng, yfirdrifin og óþörf beiting ofbeldis. Lögreglan á að þjóna almenningi en ekki ráðast á almenning.
Hreiðar Eiríksson (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.