Leita í fréttum mbl.is

Það er mjög öflugt AA starf á Hrauninu sem og í Hegningarhúsinu

Auðvitað er mikil neysla á þessum stofnunum, en aldrei fyrr né síðar hefur verið eins öflugt AA starf inn á þessum stofnunum. Það hefði alveg mátt koma fram í þessari frétt. Það eru fyrst og fremst fangarnir sjálfir sem standa fyrir þessari vakningu í fangelsum landsins og samkvæmt því sem ég kemst næst þá eru starfsmenn himinlifandi vegna þessa, því fólk í bata er bæði heiðarlegra og ábyrgara á sinni hegðan.

Að sjálfsögðu eru ekki allir fangar í prógrammi, en það er samt tækifæri fyrir alla að snúa blaðinu sínu við, og ekki má gleyma því, þó heimur dópista sé harður, þá eru þetta engir aumingjar sem hafa ákveðið að taka á sínum málum. Hægt að sækja sér stuðning þar ef maður er að farast úr hræðslu gagnvart sínum veikleikum og brestum. En ef maður er með svona hugarfar eins og virðist viðloðandi við þá sem teknir eru í viðtöl hjá fjölmiðlum, þ.e.a.s. fórnarlambshugarfarið þá er næsta víst að illa fari.

Hvernig væri nú að fjölmiðlar taki sig saman í andlitinu og hætti að vera að birta endalaus viðtöl við fólk sem hangir inn í þessu hugarástandi, sumir kalla það paranoju á háu stigi sem fólk fær ef það er í mikilli neyslu. Aðrir kalla það einfaldlega sjálfsvorkunn.

Eitt er það sem gjarnan gleymist í þessu öllu er að fangar á Litla-Hrauni hafa að því virðist ótakmarkaðan aðgang að læknadópi sem fangelsislæknirinn skrifar út á þá. Mig minnir að einn af Breiðavíkurmönnunum hafi látið loka sig í einangrunarklefa til að sleppa undan neyslufreistingum. Fannst það bráðsnjallt hjá honum og sýndi mikinn viljastyrk. Þá var líka ekki eins öflugt AA starf í gangi í fangelsinu og fólk þurfti meira og minna að vera eitt í þessu, en það er bara ekki þannig núna.


mbl.is Erfitt að vera edrú á Hrauninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vil taka undir með með Birgittu að það sé öflugt AA-starf á hrauninu og líka það að ef maðurinn sem skirfar að hann sé kvíðinn að fara hann þá vil ég benda honum á að ekkert er að óttast ef hann er búin að vera edrú og vera í AA þá getur hann fengið eflaust einhvern AA-félaga til að heimsækja sig einu sinnu í viku og lesa með honum í fræðunum og taka bara einn dag í einu því tíminn mun vera fljótur að líða hafa með sér góðar bækur sem tengjast AA og vera jákvæður frá fyrsta degi og gleyma ekki hvaðan hann kom og hvert hann mun stefna ef hann fer í neyslu aftur.

þakka þér Birgitta fyrir þetta plogg sem vert er að athuga.Það eru eflaust margir sem þurfa afplánundóm, þegar þeir eru búnir að vera edrú í góðan tíma veit að það er ekki auðvellt að fara inn undir þessum kringumstæðum en veit um mann sem var búin að vera edrú um góðan tímasvo varð hann að fara inn vegna dóms, hann sat inn í góðan tíma en notaði þann tíma til að lesa fræðunum og fékk heimsóknir og lappaðu svo út af hrauninu edrú og flottur og er enn í dag og ef eitthvað þá gaf hann hinum góða fyrirmynd.

Svo vil ég bara óska þessum manni velfarnaðar í lífinu og taka bara einn dag í einu og vera jákvæður því áður en hann veit af er hann komin út og edrú og flottur allt undir honum einum komið hvernig hann vill tækla hlutina.

S Laufey Karlsdóttir (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 08:59

2 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Góður pistill...

því er nú þannig farið að þar sem fíklar eru er dóp, hvort sem er á götunni, í meðferðum eða fangelsum en sem betur fer er líka AA á öllum þessum stöðum, svo þetta er alltaf spurning um val.

Kristín Snorradóttir, 10.1.2008 kl. 09:54

3 Smámynd: Tryggvi Þórhallsson

Eina vandamálið er að afplánun hefst ekki strax.

Hún á að hefjast um leið og dómur fellur.

Það er fáránlegt þegar fíklar sem hafa náð bata eru að taka út refsingar sínar mörgum mánuðum jafnvel árum eftir að dómur fellur.

Fyrir utan það að dómurinn fellur mörgum mánuðum eða jafnvel árum eftir að brot er framið. Það er ekki miklar líkur á að brotamaður tengi refsingu sína við brotið þegar málum er háttað með þessum hætti. 

Tryggvi Þórhallsson, 10.1.2008 kl. 13:08

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég er alveg sammála þér Tryggvi. Hefði verið nær að fjalla um þá brotalöm í kerfinu heldur en að taka það sjónarhorn sem greinilega á að fá fólk til að lesa þessa aumu fréttamennsku.

Birgitta Jónsdóttir, 10.1.2008 kl. 13:54

5 identicon

Þið eruð nú merii fuglarnir og hafið greinlega enga hugmynd um hvað og hvernig raunveruleg fíkn er. AA er líakra trúarbragði er engin töfralaus sem lagar hlutina.

Ég skil vil greyið mannin sem er að fara á Hraunið. Gerir þú það?

Benni (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 14:05

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég hef ágæta innsýn inn í fíkn og allan þann heim. Hefur þú það Benni? Hvað veist þú sem ég veit ekki? En mér líkar ekkert illa að vera fugl. Og ég veit með sanni alls ekki allt. Og þú mátt vel hafa þínar skoðanir.

Ég er reyndar ekki beint hrifin af fangelsum sem slíkum. Hef ekki hitt marga sem hafa orðið að betri mönnum með því að vera geymdir á slíkum stöðum.

Birgitta Jónsdóttir, 10.1.2008 kl. 14:50

7 Smámynd: Skaz

Fyrst að þetta er orðið að metingi hver kannast mest við fíkn og fíkla ætti ég að skipta mér af? Ja jú kannski, kannast við fíkn, fíkla og ó já hversu vel ég kannast við að hætta og að hjálpa fólki að hætta.

Geymdir.....þarna hittirðu naglann á höfuðið Birgitta. Íslensk fangelsi eru "geymslur" fyrir fólk sem brýtur reglurnar.

Þetta viðhorf um "refsivist" vs "betrunarvist" erum við að laga fangana okkar og segja þeim hvað þeir gerðu rangt og betra þá í von um að þeir bæti ráð sitt eða erum við að reka þá útaf þar sem að þeir passa ekki inní samfélagið og eru bara til ama og eiga engann rétt á spila með okkur "hinum".

Og já AA er trúarbragð að flestu leyti nema nafninu til og "öflugt AA starf" segir ekkert nema að það sé stundað af áhuga af þeim sem stunda það segir ekkert til um hversu margir gera það. Trúarbragðakeimurinn af AA og það að halda sig við reglur er dulítið sem er kaldhæðið og fælir margan manninn frá. 

Jú við erum hér að tala um fólk sem þarna er komið inn vegna þess að það braut reglurnar í fyrsta lagi. Eigum við að ætlast til þess að það geti fylgt reglum um efni sem þeim leið svo, svo vel af og hjálpar deginum að líða?

Sálfræði aðstoð og aðgengi að henni á Hrauninu er djók, starfsfólkið reynir sitt besta en líklegast er auðveldast að benda bara á aðalvandamálið.....peningar, engir það er að segja...

Skaz, 10.1.2008 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.