Leita í fréttum mbl.is

Ánægjuleg þróun...

en það þarf að gerast eitthvað stórkostlegt kraftaverk til þess að almenningur geri sér grein fyrir mikilvægi þess að leggja sitt af mörkum til að hindra frekari hörmungar á heimsvísu.

Ég bý í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur og er með ábyrgð á ruslageymslunni í desember. Ég var að vonast eftir því að nágrannar mínir væru farnir að endurvinna eitthvað og að dagblöðin færu í það minnsta í endurvinnslupokann sem ég kom fyrir á ganginum. En svo er ekki þegar ég tók við var full tunna af dagblöðum eftir eina viku og sú var ekki blá sem tók á móti mér. Fólk hendir öllu í ruslið og það virðist vera sama hve mikið er auglýst og hve mikið er talað um þessi mál það eru sárafáir sem nenna að endurvinna blöð, hvað þá að flokka eins og ég geri. Ég er með stóra fjölskyldu en mér er samt að takast að flokka þannig að ég er bara að fara með einn burðarpoka af rusli til urðunar á viku. Að endurvinna allt sem mögulega er hægt að endurvinna fylgir smá vinna, en það er lítilvægt miðað við vandamálin sem að okkur steðja ef við gerum ekki neitt. Allir verða að gera eitthvað. Það er ekki nóg að ráðamenn og konur skrifi undir eitthvað plagg, held reyndar að þjóðin mín sé að falast eftir undanþágum á losun koltvístringi sem mér finnst alveg ferlegt.

Þegar ég bjó í USA fyrir margt löngu voru þeir með frábært kerfi varðandi endurvinnslu í mínu samfélagi. Þó að 16 ár séu liðin síðan ég bjó þar þá voru þeir að hvetja og stuðla að endurvinnslu á öllu. Það var náð í blöðin til okkar, dósir, gler og svo mætti lengi telja. Hér er þetta frekar flókið og lítið gert til að hvetja fólk dáða. Það væri til dæmis bara snilld að láta flokkun hefjast í ruslageymslum fjölbýlishúsanna. Af hverju eru ekki plasttunnur, umbúðatunnur og pappírstunnur þar og af hverju er þetta ekki gert án endurgjalds. Umbúðir sem ekki eru urðaðar eru verðmæti og það hlýtur að kosta minna fyrir borgir og bæi að sleppa við svona mikla urðun og fá hráefni til útflutnings. 

Finnst þessi tilraun með ókeypis strætó fyrir framhaldsskólanema vera skref í rétta átt, en betur má ef duga skal. Það eru enn of fáar ferðir á stofnleiðum sem stoppa við skólana og veit um nokkur dæmi þess að fólk hefur gefist upp á öllum troðningnum og fallið í bílafreistingar.  

Hlýnun jarðar er að gerast með miklum hraða og mun hraðar en jafnvel svartsýnustu vísindamenn þorðu að spá um. Miklar hörmungar munu eiga sér stað og eiga sér nú þegar stað meðal fátækustu þjóða heims. Þó fólk hugsi sem svo að þetta fólk komi þeim ekki neitt við, enda aldrei hitt það, þá ætti hið sama fólk að hafa það hugfast að þessar miklu veðurfarssveiflur, flóð og þurrkar hefur áhrif á uppskeru og þegar miklir uppskerubrestir eru á heimsvísu þá hækkar verð á matvælum hérlendis.

Það er ekki hægt að horfa fram hjá því að allt sem gerist á þessari jörð hefur áhrif á okkur á einn eða annan máta. Hygg þó að nærtækast sé að byrja á stórfelldum breytingum hérlendis með því að virkja og fræða almenning um hvaða áhrif það hefði ef allir gerðu eitthvað. Það mætti líka vera hvetjandi á jákvæðan máta og það mætti líka vera einhver umbun sem því fylgdi að sýna ábyrga hegðun gagnvart umhverfi sínu. Það þarf að stórefla umhverfisvitund almennings og ég hef engin einföld svör við því hvernig það ætti að fara fram. Held samt að fræðsla eigi alltaf mikinn þátt í að stuðla að breyttu hugarfari. 

 


mbl.is Bandaríkin skrifa undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Frábærir punktar Ólafur. Því miður virðist vanta vilja hjá stjórnsýslufólki til að finna raunhæfar lausnir. Spurning hvað hinn almenni borgari sé tilbúinn að gera til að ráða bót þar á.

Birgitta Jónsdóttir, 15.12.2007 kl. 15:09

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Smá athugasemdir: Frítt í strætó, það er hárrétta og eina leiðin til þess að þeir verði notaðir af viti. Dagblöðin eigu að fara beinustu leið ofan í jörðina næst okkur, því að bruninn sem felst frá eyþjóð í flutningi til skips, í skipi, frá skipi til áfangastaðar til endurvinnslu og í henni sjálfri er það óhagstæð losun að það borgar losar meira en beint í jörðu. Flokkunin hefur síðan lent á sömu haugunum í áratugi og skiptir engu, nema kannski meðferð spilliefna. Aftur á móti ætti ruslapressa að vera í hverju eldhúsi eins og í Kaliforníu, það sparar landpláss og bruna. 

Ívar Pálsson, 16.12.2007 kl. 23:22

3 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Við erum áratugum á eftir öðrum þjóðum í sorpeyðingu, skammast mín fyrir landið að þessu leyti, eiginmaður er menntaður umhverfisfræðingur, útskrifaðist 1994 kynnti þá fyrir mönnum aðgerðir í sorphirðumálum, enginn áhugi var til staðar hjá stjórnvöldum, held að hann sé miklu meiri hjá almenningi.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 19.12.2007 kl. 13:14

4 Smámynd: Kristín Snorradóttir

langaði bara að kasta á þig kveðju, knúsi og kærleik  þú ert yndisleg.

Kristín Snorradóttir, 20.12.2007 kl. 22:50

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Gleðileg jól og takk fyrir skemmtilegt bloggár :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 22.12.2007 kl. 00:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 508762

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.