Leita í fréttum mbl.is

Einfalt mál

Í morgunn var voðaveður og þá finnst mér einmitt tilefni til að fylgjast með fréttum. Þar kom fram að tilmælum væri beint til foreldra að senda börn sín ekki í skólann. Hygg að ein af ástæðum þess að þó maður kæmist kannski áfallalaust í skólann með börn sín, að það sé ekki skynsamlegt að vera að þvælast úti þegar rúður í strætóskýlum springa og heitir pottar takast á flug. Maður er bæði að stofna lífi sínu og annarra í hættu og auka á álag á björgunarsveitirnar og aðra sem vinna við almannavarnir.

Ég fékk tölvupóst í morgunn frá skólastjóra barnaskólans sem minn drengur gengur í þar sem það var ítrekað að ekki væri æskilegt að senda börn í skóla. En það má ekki gleymast að í svona aðstæðum þá er það líka okkar foreldranna að meta hvort að við viljum vera að senda börnin út í svona aðstæður.

Einhver lét þau orð falla að ástæða þess að beðið væri um að þau börn sem komin væru í skólana yrðu sótt við fyrsta tækifæri væri sú að kennarar vildu aukfrí finnst mér ómakleg gagnvart því fólki sem sinnir börnum okkar hve mest af öllu fólki í lífi þeirra. Er ekki kominn tími til að hætta að vera alltaf með eitthvað skítkast út í fólk. Hvar er hinn sanni jólaandi umburðarlyndis og samkenndar. Kalla eftir slíku hér í bloggheimum.

Ég er reyndar sammála að best væri í svona aðstæðum að vera með samhæfðar aðgerðir í sambandi við hvort að skólar séu opnir eður ei. Það hlýtur að vera endurskoðað í ljósi þessa.


mbl.is Vilja skýr fyrirmæli til foreldra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alveg rétt, og það þýðir ekki að gefa út yfirlýsingu kl. átta, því þá eru börnin þegar komin í skólann.  Sumir foreldrar eru bara svo hlýðnir að þeir senda börnin sín í skólann hvernig sem viðrar, ef ekki eru gefinn skýr skilaboð um annað og það i tæka tíð.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.12.2007 kl. 16:28

2 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Ég á nú þrjú börn og tvö af þeim enn í grunnskóla. Ekki datt mér í hug að senda þau í þessu veðri og frétti nú ekkert af því að skólahald lægi niðri fyrr en eftir á. Börnin eru jú á mína ábyrgð og mér þykir bara mjög eðlilegt að meta það hvort börnin mín fari út í vonskuveður eða ekki.

En ég er sammála því að samhæfa þarf aðgerðir þegar svo ber undir.

Kristín Snorradóttir, 14.12.2007 kl. 16:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 508745

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband