Leita í fréttum mbl.is

Kínversk yfirvöld eru klók

Notfæra sér veikleika hins mannlega huga. Það vita auðvitað allir að það er algerlega gegn búddískri hugsun og heimspeki að fremja ofbeldi. Allir Tíbetar eru búddistar. Að halda því fram að munkar ætli sér að sprengja eitthvað er svo ótrúlega út í hött að allir hljóta að vera sammála því. 

En klókindi kínverskra yfirvalda eru einmitt þau að nú förum við ómeðvitað að tengja hryðjuverk við Tíbeta, því við höfum heyrt þetta í sömu andrá.

Ég vona bara að við náum að halda sannleikanum skýrar í hugarskoti. Mér finnst að það eigi að fordæma slíkar lygar, að tengja Dalai Lama er með ólíkindum og ætti að kæra þá fyrir að vega svona að heiðri manneskju sem alltaf hefur boðað frið gagnvart kínverskum yfirvöldum, þrátt fyrir þeirra voðaverk gagnvart þjóð hans. 


mbl.is Tíbetskir munkar handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju förum við ekki alla leið?

Það hlýtur að vera hægt að setja ákvæði í þessa samninga um að ekki verði skrifað undir nema að kínversk yfirvöld sýni í verki að þau taki eitthvað mark á orðum Björgvins. Annars eru þetta orðin tóm og ekki til nokkurs gagns. Þá er bara betra að vera heiðarlegur og sleppa því að tala um þetta. Allt sem kínversk yfirvöld hafa lofað að gera til að tryggja samninga hafa þau svikið. Eins og til dæmis þau skilyrði sem þeim voru sett fyrir Ólympíuleikana. 

Það þýðir ekkert að treysta þeim. Láta verkin tala er það eina sem virkar á Kína.

Annars þá hvet ég alla til að sjá eftirfarandi mynd og spyrja sig svo hvort að við ættum yfir höfuð að eiga í einhverjum tengslum við yfirvöld sem standa fyrir því sem þar kemur fram.

Undercover in Tibet. 


mbl.is Viðskiptaráðherra fer til Kína í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindabrotum í Tíbet mótmælt

Laugardaginn 12, apríl, klukkan 13, hefur verið boðað til mótmæla fyrir utan kínverska sendiráðið við Víðimel í Reykjavík. Tilgangur mótmælana er tvíþættur samkvæmt tilkynningu frá fundarboðendum; að þrýsta á kínversk yfirvöld að virða mannréttindi Tíbeta og hleypa alþjóðlegum mannréttindasamtökum inn í landið og að sýna Tíbetum stuðning í þeirra baráttu fyrir frelsi í sínu eigin landi. 

Nú er mánuður liðinn síðan mótmæli brutust út í Lhasa. Skelfilegar sögur berast þaðan um hvernig ástandið er í landinu þrátt fyrir að fólk þurfi að leggja sig í lífshættu til að gefa heiminum brotakenndar myndir af því hvað þessi þjóð þarf að þola undir hinum kínverska járnhæl. Flóttafólk nefnir miklu hærri tölur en hafa verið gefnar út opinberlega og tala um að 2000 manneskjur hafi verið drepnar í tengslum við mótmælin. Fólk er dregið út af heimilum sínum, börn og unglingar líka og skotnir út á götu til að hræða fólk til hlýðni. Sökin þarf oft ekki að vera meiri en að neita að afneita Dalai Lama eða eiga mynd af honum. 

Í gær höfnuðu kínversk yfirvöld beiðni Louise Arbour, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna um að hún fái að heimsækja Tíbet. Þeir hafa enn ekki hleypt neinum fjölmiðlum inn í landið og þeir eru hættir við að opna Tíbet fyrir ferðamönnum í byrjun maí eins og stóð til. 
Mikilvægt er að fólk kynni sér hvað er að gerast þarna, hægt er að finna nánari upplýsingar á netinu, á vefnum tibet.is.

Kvikmyndin “Vajra Sky over Tibet”

sýnd 11.apríl, hjá Guðspekifélaginu klukkan 20:30, Ingólfsstræti 22. Allir velkomnir, frítt inn.

Hér er sýnishorn úr henni.


mbl.is Ólympíukyndillinn kominn til Buenos Aires
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað hafa þeir að fela

Enn og aftur hvet ég fólk til að sjá Undercover in Tibet og mynda sér svo skoðun um hvort að okkur beri að gera eitthvað eða ekki, bæði sem einstaklingar og þjóð. Á morgunn verður klukkutíma viðtal við mig á útvarpi Sögu um málefni Tíbet á milli 16 og 17. 

Við ætlum líka að halda áfram að kíkja við til kínverska sendiherrans á Víðimelnum næstkomandi laugardag klukkan 13. Nánari upplýsingar í fyrramálið.  


mbl.is Arbour ekki velkomin til Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elsku blaðamenn mbl.is

Gætuð þið passað upp á að láta ekki hina kínversku áróðursmaskínu nota ykkur svona. Skoðið heildarmyndina og þá sjáið þið að þeir eru að nota þetta til að kúga enn frekar múslíma í Kína. Ég hef verið að lesa kínverska fréttamiðla og sjaldan séð eins miklar lygar skrifaðar af annarri eins sannfæringu...
mbl.is Skipulögðu hryðjuverk á Ólympíuleikunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skora á Ólaf Ragnar að horfa á Undercover in Tibet

og taka svo ákvörðun um hvort rétt sé að fara. Maðurinn hlýtur að geta notað sína stöðu til að sýna kínverskum yfirvöldum að við líðum ekki að framið sé þjóðarmorðið í Tíbet. Nú höfum við allar upplýsingar - ef við gerum ekki neitt erum við sögulega samsek.

Hélt að fólk hefði lært af því sem gerðist í Þýskalandi, en því er ekki að skipta. Allsherjar fangabúðir settar upp í Palestínu og enginn gerir neitt, þjóðarmorð í Tíbet og enginn gerir neitt. Mér finnst í raun það að sniðganga opnunarhátíðina afar lin viðbrögð. Það þarf að setja ráðamönnum í Kína stólinn fyrir dyrnar og hætta við viðskipti ef þeir láta ekki af hroka sínum og hefji í það minnsta samræður við Dalai Lama og hleypi alþjóðafjölmiðlun inn í Tíbet. Ólafur gæti beitt sér fyrir því.


mbl.is Óljóst hvort forseti Íslands mætir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög góð grein um Tíbet

eftir Evu Bjarnadóttur er að finna á vefritunu. Hér er slóð í greinina.

Svo fékk ég sendan link á aðra áhugaverð grein um sögu Ólympíukyndilsferðalagsins. Hann á víst hefð sína að rekja til Ólympíuleika Þriðja ríkisins en ekki til gömlu Ólympíu eða hina endurreistu. Hér er slóð í það.

Hér er svo myndband til stuðnings baráttu Tíbeta fyrir mannréttindum sínum.   


Hvenær ætlar heimsbyggðin að vakna?

Kínversk yfirvöld hafa allt of mikil ítök víðsvegar um heim og hvergi kannski eins áberandi og í Nepal þessa stundina. Kannski þá varpar Ólympíueldurinn birtu í skúmaskotin þar sem myrkraverkin eru framin. Kannski riðar Kína til falls innanfrá. Sífellt fréttir maður af meiri hrylling sem þeir bera ábyrgð á. Af hverju erum við með kínverskt sendiráð á Íslandi? Er ekki kominn tími á að senda sendiherrann heim ásamt sínu föruneyti? 

Ég held að allri heimsbyggðinni sé hætta búin af Kína ef við spornum ekki við fótunum nú þegar. Hvet fólk til að kynna sér vatnsréttindi, Tíbet og Kína og leggja svo saman einfalt reikningsdæmi til að skilja hve mikil völd þeir hafa yfir nágrannaþjóðum sínum varðandi vatnsréttindi.


mbl.is Sex látnir í átökum í Nepal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undercover in Tibet

Heimildarmynd sem var frumsýnd á hinu sérbreska Channel 4 í síðustu viku...

Hún er hér í heild sinni og átakalegri en orð fá lýst...  get ekki embeddað úr google videos í þetta kerfi en þar er hægt að sjá myndina í heild sinni... ef smellt er á þennan link. Enn og aftur hvet ég fólk til að kynna sér sögu Tíbets, hverskonar harðræði þessi friðsama þjóð hefur þurft að búa við. Hef nú verið í mikilli rannsóknarvinnu sem er langt í frá búin um sögu og menningu Tíbet og greinilegt þjóðin er að glata svo miklu dag frá degi að það er bara skammarlegt ef við sem vitum af þessu gerum ekkert. Enn ríkir þögn frá ráðamönnum þjóðarinnar og eru starfsmennirnir mínir í þinginu ekki að hafa fyrir því að svara mér. Því munum við beina aðgerðum okkar í ríkari mæli að þeim. Ég vildi bara að ég hefði meiri tíma til að sinna þessu, því dagarnir eru alltaf alltof fljótir að renna úr greipum mér. 


mbl.is Mótmæli í San Francisco
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er nú bara fyndið...

...og grátlegt í senn. Svona pukurháttur samt dæmigerður fyrir hérlend yfirvöld. Allt gert til að friðþægja kínversk yfirvöld. Við hefðum kannski sést með tíbetskan fána við jarðar flugvallarins...  ekki mikið annað í stöðunni. Sennilega hefðum við ekki gert neitt... enda ekki verið að hlaupa um með þetta hér. Annars þá vona ég að þessu kyndill fari ekki um Tíbet, eins og hin tíbetska þjóð hefur óskað eftir. En þekkjandi yfirboðara Kína, þá munu þeir fara um með kyndilinn Tíbet til að sýna hver ræður.

Var annars að lesa eins konar ekki fréttir frá Kína um Tíbet - ótrúlegt hve mikið þeir ljúga að þjóð sinni og vesalings fólkið hefur ekkert frelsi til að ná sér í fréttir annars staðar. Ekki skringilegt að heimsmynd þeirra sé nokkuð brengluð.


mbl.is Ólympíukyndillinn kominn til San Francisco
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég var á þessum fyrirlestri og

hann var um margt líkur kvikmyndinni hans sem ég hef séð í tvígang, en ástandið er orðið miklu mun verra en þegar myndin var gerð. Það er engum blöðum um það að fletta að við verðum að gera eitthvað NÚNA. Mér fannst alveg furðulegt að aðeins var tími fyrir 2 spurningar úr sal og því náðist ekki að spyrja kappann um málefni sem snéru beinlínis að Íslandi og það var jafnframt sláandi að hlusta á lofrulluna um landið okkar sem er svo langt í frá að standa undir þeirri ímynd sem honum hafði verið gefin.

Mér leikur líka forvitni á að vita af hverju var boðið upp á kaffi í óendurvinnanlegum pappaglösum og hvað verður um allar þær plastflöskur sem fólk var duglegt að kasta frá sér í ruslið. Ef við ætlum okkur að breyta einhverju varðandi umhverfismál. Þá verðum við að byrja hjá okkur sjálfum. Skoða hvernig við umgöngumst úrgang, bíla, hvernig neytendur erum við og allt þetta sem eru glæðurnar sem kynda undir þennan jarðvarma. Við erum náttúruafl sem hefur farið um með eyðileggingu. Al Gore talar um að við höfum hugsanleg tíu ár áður en það verður um seinan að snúa við blaðinu, ef við gerum eitthvað NÚNA.

Hvet þá sem ekki komust á fyrirlesturinn að fara og ná sér í myndina hans An inconvenient truth - hún vakti mig svo um munaði.  


mbl.is Öfgarnar aukast segir Al Gore
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því meira sem ég kynnist Tíbet

Þessu meira geri ég mér grein fyrir hve mikilvægt er að það verði ekki þarna menningarlegt þjóðarmorð.

Það er ágætt viðtal við mig um hið nýstofnaða félag Vinir Tíbets á visir.is 

Það er mikið ánægjuefni að við sem þjóð séum að fá tækifæri á að kynnast menningu þessarar merku þjóðar sem og að vináttutengsl á milli okkar verða treyst.  


mbl.is Kyndilhlaupi haldið áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stofnfunds Vina Tíbets skýrsla

Stofnfundur félagsins Vinir Tíbets fór fram á Kaffi Hljómalind í gær og mættu á fundinn um 30 manneskjur. En stofnfélagar eru um 35. Stofnfélagar eru með sanni breiðfylking þeirra er láta sig málefni Tíbets varða. Lög félagsins voru samþykkt og stjórn kosin. Birgitta Jónsdóttir var kosin formaður, Sigurður Darri Skúlason gjaldkeri, Jón Valur ritari, meðstjórnendur eru Tsewang Namgyal og Aðalheiður Þórisdóttir.

Tilgangur félagsins er m.a. að rækta tengsl á milli Íslendinga og Tíbeta, kynna menningu og sögu landsins og ástandið eins og það er í dag. 

Félagið hyggst standa fyrir ýmsum viðburðum til að ná þessum takmörkum sínum og ber þar helst að nefna ljósmyndasýningar, kvikmyndasýningar, fræðslukvöld og tónleika, sem og greinaskrifum. Félagið er systurfélag freetibet.org og mun starfa í anda þess. 

Vinir Tíbets halda úti tveimur vefsvæðum, www.tibet.is og groups.to/vinirtibets

Ég er mjög ánægð með endanlega niðurstöðu fundarins og einbeittan vilja þeirra sem þarna voru til að vera sannir Vinir Tíbets í raun. Það er mikilvægt að við sofnum ekki á verðinum. Nú er ástandið þannig í Tíbet að maður fær hroll fyrir hjartað þegar maður fær hinar brotakenndu upplýsingar þaðan.

Heyrði í gær eftirfarandi frá íslenskri konu sem hafði fyrir viku hitt flóttakonu frá Tíbet. Stúlkan sagði að þó kínversk yfirvöld hefði lokað á símasamband við Tíbet, þá væri stundum hægt að ná í gegn. Hún var viðþolslaus af ótta því nokkrum dögum áður hefði nágrannastúlka hennar verið dregin út af götu af heimili sínu af kínversku lögreglunni og hún skotin fyrir framan alla, sennilega hafi hún átt mynd af Dalai Lama en það er nóg til að fá svona meðferð. Þetta er líka alþekkt aðferð kínverskra yfirvalda til að hræða fólk til hlýðni. Flóttastelpan var svona hrædd, því hún hafði ekkert náð í foreldra sína og óttaðist mjög hlutskipti þeirra. Hún sagði líka að tala látinna út af mótmælunum séu miklu nær 2000 en 140. Ég skil bara ekki hvernig heimsbyggðin getur bara haldið áfram að horfa fram hjá þessu voðaástandi og að það sé hlaupið með Ólympíukyndilinn eins og ekkert sé og tekið undir slagorð Kína "Einn heimur, einn draumur." Hvernig er þeirra draumur? 



mbl.is Ólympíueldsins gætt í París
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En samrýmist þetta Ólympíuandanum?

 Vinsamlegast fyrirgefið mér að hafa ekki tíma til að þýða þetta, en það eru hræðilegir hlutir að gerast í Tíbet. Miklu verri en við getum ímyndað okkur, hvað er heimurinn að spá að láta kínversk yfirvöld komst upp með að loka Tíbet svona og stunda sín myrkraverk án þess að við gerum nokkurn skapaðan hlut.  

London, April 5: Four Tibet independence activists were detained this morning after two activists abseiled off Westminster Bridge and unfurled a 74 square meter protest banner reading, "One World, One Dream: Free Tibet 2008," mocking China's Olympics slogan "One World, One Dream." 

The action took place on the eve of the controversial arrival of China's Olympic torch relay in London, amidst mounting pressure on the International Olympic Committee to remove all Tibetan areas from the relay route. 
Over a thousand Tibetans and supporters are expected in the streets of London on Sunday to condemn China's ongoing crackdown on freedom protests inside Tibet. 

The action by Tibet activists comes as reports of violent crackdown by Chinese authorities on Tibetan demonstrators emerge out of Tibet. Chinese paramilitary forces opened fire on a crowd of unarmed monks and laypeople in southeastern Tibet On April 3, killing at least 8 people.

"The Chinese government wants the British public to celebrate China at a moment when Tibetans are being gunned down by Chinese forces for doing nothing more than speaking out for freedom," said Pema Yoko, National Coordinator of Students for a Free Tibet UK, a British born Tibetan and one of the activists detained. 

"With Tibetans being rounded up, brutalized and killed, it is unconscionable for the International Olympic Committee to allow China to take the Olympic torch through Tibet," she said.

Chinese authorities in Tibet have stated their intention to ensure stability during the torch relay 'at all costs,' which means increased militarization of Tibetan areas. According to the Chinese authorities' own figures, thousands of people have been detained in recent weeks, with speedy show trials promised before May 1. 

“China's attempt to politicize the London leg of the torch relay was heightened this week when China's ambassador to Britain, Fu Ying announced her participation in the relay. Also, British Prime Minister Gordon Brown is scheduled to officially receive the torch at 10 Downing Street,” the free Tibet group said in a statement. 

"It is appalling that Gordon Brown plans to receive the Olympic torch tomorrow. As someone with Chinese and British roots, I feel strongly that Britain must take a firm stance against China's abuses in Tibet," said Conall Hon (26), member of Students for a Free Tibet to abseil off the bridge. "If the Chinese government wants acceptance from the international community, it must immediately stop its baseless attacks on the Dalai Lama and start working toward a meaningful solution to the Tibetan issue."

China's deadly attack on Tibetans in Tongkor Township (Karze County) in southeastern Tibet on April 3rd came after Chinese authorities detained two monks for possessing photos of the Dalai Lama following a raid by over 3,000 armed police at Tongkor monastery. The police opened fire on the crowd of over 700 people, nearly half of whom were monks, gathered to protest the arrests. All Tibetan areas remain closed off to independent media, but eyewitness reports from all across Tibet describe horrific beatings, suicide attempts by monks locked inside their monasteries, house-to-house searches, and large groups of Tibetans being boarded onto trains at Lhasa's new railway station. As the situation inside Tibet remains critical, several peaceful protests and actions are planned for tomorrow's relay here in London. 


mbl.is Eldurinn komst alla leið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband