Leita í fréttum mbl.is

Því meira sem ég kynnist Tíbet

Þessu meira geri ég mér grein fyrir hve mikilvægt er að það verði ekki þarna menningarlegt þjóðarmorð.

Það er ágætt viðtal við mig um hið nýstofnaða félag Vinir Tíbets á visir.is 

Það er mikið ánægjuefni að við sem þjóð séum að fá tækifæri á að kynnast menningu þessarar merku þjóðar sem og að vináttutengsl á milli okkar verða treyst.  


mbl.is Kyndilhlaupi haldið áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nú (já, núna!) stendur yfir smá-umfjöllun um Tíbet á Rás 2.

Jón Valur Jensson, 7.4.2008 kl. 16:42

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Innlegg mitt um Tíbet í Útvarpi Sögu (FM 99,4) í morgun er endurtekið þar eftir u.þ.b. 5–15 mínútur.

Jón Valur Jensson, 7.4.2008 kl. 19:40

3 identicon

Ég las nýlega góða grein eftir ísraelska friðarbaráttumanninn Uri Avnery, “Not, You! You!!!”. Í henni fjallar Avnery um frelsisbaráttu Tíbeta og lýsir stuðningi við hana en gagnrýnir hvernig fjölmiðlar og stjórnvöld sýna henni athygli á meðan þau hundsa á sama tíma frelsisbaráttu annars staðar í heiminum. Avnery telur viðbrögð stjórnvalda og fjölmiðla einkennast af hræsni. Hann fer fram á að ekki sé gert upp á milli þjóða sem berjast fyrir frelsi sínu heldur ætti sömu grundvallarreglur að ganga yfir alla:

"I would propose a pragmatic moral principle: Every population that inhabits a defined territory and has a clear national character is entitled to independence. A state that wants to keep such a population must see to it that they feel comfortable, that they receive their full rights, enjoy equality and have an autonomy that satisfies their aspirations. In short: that they have no reason to desire separation."

Greinina má nálgast hér: http://zope.gush-shalom.org/home/en/channels/avnery/1207434781/

Einar Steinn Valgarðsson (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 20:21

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

Takk fyrir færsluna Birgitta!  Ég  sé alltaf betur og betur hvað Jón Valur er góður maður ons og þú sjálf Birgitta...

..á dóttir sem er nafna þín....

vil ekki horfa á hryllingsmyndir.

Óskar Arnórsson, 7.4.2008 kl. 22:05

5 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Fyrirgefðu en ég stenst ekki mátið.  Er ekki málfæðilega rangt að segja "þessu meira sem..."?  Ég hef aldrei heyrt annað en "Því meira sem ... ". 

Svanur Sigurbjörnsson, 8.4.2008 kl. 15:01

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

mikið rétt Svanur og takk fyrir ábendinguna... maður skrifar svo margt í flýti hér á bloggið og málfræðin fær stundum að líða fyrir það

Birgitta Jónsdóttir, 8.4.2008 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 508736

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.