Leita í fréttum mbl.is

Í dag klukkan 13:00 standa UVG fyrir uppákomu sem ber yfirskriftina: Minning um land

"Undir miðlunarlóni Kárahnjúkavirkjunnar hvílir land sem hvorki stór hluti núlifandi kynslóða né komandi kynslóðir munu fá að kynnast. Vegna þessarar staðreyndar munu Ung vinstri-græn standa fyrir sorgar- og minningarstund næstkomandi laugardag, þann 6. janúar kl. 13:00, að Suðurgötu 3.

Við hvetjum alla félaga, jafnt unga sem aldna, til að koma. Bakkelsi úr ofnum ungliða verða á borðum og heitir jafnt sem kaldir drykkir til þess að skola því niður með.

Tveir flokksfélagar, annar sem hefur notið náttúrudýrðarinnar fyrir austan sem nú er undir lóni og hinn sem mun aldrei fá þess notið, munu taka til máls og minnast landsins.

Þrátt fyrir sorglegt tilefni vilja Ung vinstri-græn jafnframt nýta það til að veita ákveðum hóp verðlaun fyrir ósérhlífna baráttu fyrir náttúru Íslands. Einnig verður kynnt ljósmyndabók sem stjórn Ungra vinstri-grænna hefur útbúið í samstarfi við Christopher Lund, ljósmyndara. Þessi bók sem framleidd var í einu eintaki verður afhent landsbókasafni til varðveislu. Bókin geymir ljósmyndir af Kárahnjúkasvæðinu áður en því var drekkt. Það er ósk Ungra vinstri-grænna að núlifandi og komandi kynslóðir fái notið þessara mynda sem örlítillar sárabótar fyrir landið sem tekið var frá þeim, þó þær muni aldrei jafnast á við að kynnast landinu af eigin raun."

Finnst þetta mjög góð hugmynd og vel útfærð. Ég ætla að kíkja, skrifaði eitt sinn ljóð um þetta land með áþekktum titli:

Í minningu lands

ég þekkti eitt sinn fjall
ég þekkti eitt sinn gil
ég þekkti eitt sinn gljúfur
ég þekkti eitt sinn foss
ég þekkti eitt sinn mosa
ég þekkti eitt sinn tré
ég þekkti eitt sinn fugl
ég þekkti eitt sinn klett
ég þekkti eitt sinn á
ég þekkti eitt sinn hraun
ég þekkti eitt sinn Gljúfrarbúan

ei meir
ei meir

ég þekki land
mitt land
æ meir
i-minningu-lands.jpg

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Ég verð með ykkur í anda. Bestu kveðjur.

Hlynur Þór Magnússon, 6.1.2007 kl. 08:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 508759

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband