17.4.2009 | 07:37
Réttlætismál
XO er þverpólitískt bandalag fólks sem er búið að fá nóg af þeirri vanhæfni og spillingu sem þrífst hér á landi í skjóli þingheims.
Við viljum réttlæti fyrir þjóðina sem hefur verið gert að greiða skuldir sem hún efndi aldrei til. Við viljum ekki velta þessum skuldum fáeinna fjármálaóreiðumanna á almenning. Fjármálaóreiðumanna sem hafa gefið sumum flokkum hér óeðlilegar upphæðir fjármagns sem enginn heilvita maður getur litið á öðruvísi en fyrirgreiðslupólitík.
Við viljum leita samstarfs við erlenda skuldunauta okkar um hvernig við getum haft uppi á þeim sem komu okkur í þessa ömurlegu stöðu. Við viljum persónugera vandann og rjúfa óeðlileg tengsl á milli þingheims og viðskiptaheims.
Fyrstu lögin sem Borgarahreyfingin vill tryggja að verði að veruleika eru að enginn: ekki nokkur maður verði borinn út af heimili sínu út af fjárhagsörðuleikum sem rekja má til þess algera hruns sem við stöndum frammi fyrir.
Við viljum færi völdin frá flokkakerfinu til fólksins til þín
Við viljum að fólk sitji ekki lengur en 8 ár inni á þingi
Við viljum að þjóðin fái rétt til að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslu
Við viljum aldrei aftur þurfa að upplifa þann vanmátt í aðdraganda janúarbyltingarinnar þar sem við gátum ekki losnað úr viðjum ríkisstjórnar sem mikill meirihluti þjóðarinnar studdi ekki.
Við erum borgarar ekki þegnar. Þingmenn eru og eiga muna að þeir eru í vinnu fyrir okkur: þjóðina.
Neytendur ekki einir um skaðann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 4
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 509214
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
- ADHD
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Alexandra Briem
- Andrés Magnússon
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ari Sigurðsson
- Baldvin Björgvinsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Bara Steini
- Bergur Sigurðsson
- Bergur Thorberg
- Bergur Þór Ingólfsson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Binnan
- Birgir Þórarinsson
- Birna Rebekka Björnsdóttir
- Bjargandi Íslandi
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- SVB
- Brjánn Guðjónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja skordal
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Daníel Haukur
- Dorje
- Dísa Dóra
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Einar Guðjónsson
- Einar Indriðason
- Einar Vignir Einarsson
- Einar Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eldur Ísidór
- Elyas
- Elín Sigurðardóttir
- Elísabet Markúsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- Eva Benjamínsdóttir
- Eydís Hentze Pétursdóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- FLÓTTAMAÐURINN
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fríða Eyland
- Félag Anti-Rasista
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerður Pálma
- Gestur Guðjónsson
- Goggi
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Pétursson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Bergmann
- Guðjón Heiðar Valgarðsson
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur M Ásgeirsson
- Guðmundur Ragnar Guðmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðný Lára
- Guðrún S Sigurðardóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Hjálmar
- Haffi
- Halldór Sigurðsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haukur Már Helgason
- Heidi Strand
- Heilsa 107
- Heiða Þórðar
- Helga Auðunsdóttir
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Hlédís
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Hrólfur Guðmundsson
- Hulla Dan
- Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
- Hörður B Hjartarson
- Húmoristaflokkurinn
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingibjörg Helga
- Ingibjörg SoS
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Isis
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakob Smári Magnússon
- Jakob Þór Haraldsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jens Guð
- Johann Trast Palmason
- Jóhannes Ragnarsson
- Jón Bjarnason
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- DÓNAS
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ketill Sigurjónsson
- Ketilás
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristbergur O Pétursson
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Kristín Dýrfjörð
- Kristín Snorradóttir
- Krummi
- Kári Harðarson
- Landvernd
- Laufey Ólafsdóttir
- Lovísa
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lýður Árnason
- Mafía-- Linda Róberts.
- Margrét Guðjónsdóttir
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- Margrét Sigurðardóttir
- Markús frá Djúpalæk
- María Kristjánsdóttir
- María Pétursdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Morgunblaðið
- Myndlistarfélagið
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- Neo
- Oddi
- Paul Nikolov
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Pálmi Gunnarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rannveig H
- Ransu
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samstaða - bandalag grasrótarhópa
- SeeingRed
- Sema Erla Serdar
- Sigga
- Signý
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurgeir Þór Hreggviðsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Sigurður Hrellir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Skuldlaus
- Snorri Sturluson
- Soffía Valdimarsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stríða
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinn Hjörtur
- Sveinn Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Swami Karunananda
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sævar Einarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- TARA
- Tilkynning
- Tinna Jónsdóttir
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Tína
- TómasHa
- Valgeir Skagfjörð
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vilborg Eggertsdóttir
- Vilhelmina af Ugglas
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Vinir Tíbets
- Viðar Eggertsson
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Vér Morðingjar
- Vésteinn Valgarðsson
- arnar valgeirsson
- fingurbjorg
- hreinsamviska
- leyla
- molta
- oktober
- Einhver Ágúst
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Ár & síð
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásgerður
- Ásta Hafberg S.
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólöf de Bont
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Arnórsson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Þröstur Unnar
- Þór Jóhannesson
- Þór Saari
- Þórhildur og Kristín
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Andrés.si
- Anna Karlsdóttir
- Anna Margrét Bjarnadóttir
- Ari Jósepsson
- Aron Ingi Ólason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Barði Bárðarson
- Bergþór Gunnlaugsson
- Billi bilaði
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Kristjánsson
- Bogi Jónsson
- brahim
- Daði Ingólfsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Dóra litla
- Dúa
- Einar Björn Bjarnason
- Elsabet Sigurðardóttir
- Esther Anna Jóhannsdóttir
- Frosti Sigurjónsson
- Grétar Eiríksson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Héðinn Björnsson
- Hreyfingin
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Pétur
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Jónas Bjarnason
- Jón Kristófer Arnarson
- Jón Lárusson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Lúðvík Lúðvíksson
- Madhav Davíð Goyal
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Morten Lange
- Óðinn Kári Karlsson
- Ólafur Eiríksson
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Rannsóknarskýrslan
- Rúnar Freyr Þorsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Vaktin
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
Athugasemdir
Það er enginn efi í mínum huga um heilindi ykkar í Borgarahreyfingunni. Mér finnst þið frábær og vona að ykkur gangi sem best. Ég ætla að standa með mínum mönnum samt sem áður, því þar er líka heiðarlegt og gott fólk, sem hefur ekki tekið neinn þátt í spillingunni. Það er talað um það eins og eitthvað náttúrulögmál að fjórflokkurinn Eigi sitt og svo megi úthluta einum litlum flokki svo sem eins og eitthvað aflögu. Það væri betra fyrir lýðræðið ef báðir þessir flokkar kæmust að þ.e. F og O, þeir myndu styrkja hvor annan á þinginu, því mér sýnist stefnumálin vera svipuð það ber ekki mikið í milli.
Mér líkar illa svona kassahugsunarháttur. Þess vegna á fólk að vera óhrætt við að breyta til nákvæmlega núna og kjósa frekar nýju framboðin, heldur en gömlu flokkana, og þá helst ekki Sjálfstæðisflokkinn með alla sína spillingu ofan á þessa venjulegu heimatöku sem þingmenn virðast hafa komið sér upp margir hverjir.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2009 kl. 09:22
Sæl Ásthildur
Ég er ekki að reyna vera leiðinlegur en ég er nánast alveg sammála þér með það að F sé spillingarlaus flokkur en hvað fannst þér um ákvörðun formanns flokksins að halda landsfundinn í stykkishólmi sem var átta sinnum fámennari en rúmum tveimur árum áður. Hótel uppbókuð fljótt og menn þyrfti liggur við að gista í tjaldi. Þetta atvik setti svartan blett á frjálslynda í mínum huga. Ber mikinn keim af valdagræðgi Guðjóns.
Jafn framt verð ég að minnast á annað þar sem ég var að muna það núna. Þegar Sigurjóni var heitið framkvæmdastjóra stöðu flokksins þá var hann svikinn grimmilega eftir kosningar. Mér fannst líka slæmt þegar Helga var borguð fyrir að sjá um síðuna ykkar þegar Sigurjón bauðst til að gera það frítt.
Annars gæti ég ekki verið meira sammála færslunni. Sérstaklega ber að halda í hávegum þetta sem þú segir í lokinn. Þingmenn eru þarna í umboði þjóðarinnar. Það finnst mér gleymast ansi fljótt eftir að þeir eru komnir á þing.
Jóhann Gunnar (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 18:21
ég verð að segja, að á undanförnum borgarafundum RÚV hafa talsmenn O komið best út að mínu mati. þeir einu sem komið hafa fram með nýjar hugmyndir að lausnum. engin frasastjórnmál þar eins og hjá sumum öðrum.
Brjánn Guðjónsson, 17.4.2009 kl. 18:54
Ég er sammála þingmenn eru þarna fyrir okkur þjóðina. Ég er búin að vera að fylgjast með frambjóðundum og það vekur furðu mín núna í þessum erfileikum sem þjóðin stendur frammi fyrir og það á að hækka skatta og lækka laun þá minnist engin á hvað það eru margir íslendingar sem eru og hafa svikið undan skatti í mörg ár,það gleymist alveg að tala um að þar liggja miklir peningar sem gætu hjálpað mikið núna þegar að allir ættu að stefna að sama markmiði lýðræði í lýðræðisríki. Skattakerfið er og hefur verið að mínu mati rotið og er enn. Hvers vegna geta iðnaðarfólk og fólk með eigin atvinnurekstur komist upp með að borga til samfélagsins lámarks staðgreiðslu, eða jafnvel enga. Við vitum að margt af þessu fólki keyrir svo um á 5 til 10 milljóna bílum sem er skráð á fyrirtækið ? Ég spyr því hvað ætlar nýja ríkistjórnin að gera til að ná í þessa peninga hvar er skattalögreglan. Ég yrði tekin föst ef ég stæli mér einum snúð í Hagkaup, kærð og látin borga sekt. Hérna vantar skattalögreglu sem fylgjist með svona málum.
kveðja Voo
voo (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 21:42
Takk Ásthildur mín:) kemst vonandi vestur í sumar og kíki þá til þín...
Ég vonast til að þú vooooo og aðrir sem hafa hugmyndir um hvernig við getum endurreist þjóðina komið á þjóðfundinn sem við ætlum að halda eftir kosningar og vinna hugmyndavinnu með okkur - fólk þarf ekki að vera í hreyfingunni til að vinna þessu vinnu saman...
Ég vil aðeins fara inn á þing sem fulltrúi og talsmaður þjóðarinnar - hef engan áhuga á að vera stjórnmálakvendi - hef engan metnað í annað en að vinna að því að færa meiri völd í hendur þjóðarinnar og fara svo aftur að skrifa bækur:)
Birgitta Jónsdóttir, 18.4.2009 kl. 22:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.