Leita í fréttum mbl.is

Hvaða málshátt fékkst þú?

Ég ætla að venda mínu kvæði í kross og reyna að tala ekki um það sem allir hafa talað um páskana og forvitnast frekar um málshætti þeirra sem lesa bloggið mitt.

Ég gat nú ekki annað en hlegið þegar ég las minn: Sameinaðir stöndum vér - sundraðir föllum vér:) Finnst það viðeigandi að hafa fengið það eftir alla þá miklu vinnu sem ég ásamt fjölda fólks höfum lagt á okkur að sameina grasrótina fyrst með almennum félagskap sem ber heitið: Samstaða - bandalag grasrótarhópa, ég ku vera í stjórn Samstöðu:) síðan Borgarahreyfingin - þjóðin á þing.

Finnst þessi málsháttur hafa hitt í mark fyrir mig og fyrir það sem við þurfum að gera sem þjóð.

Hvað fenguð þið? Passaði það við ykkar tilveru eða var það bara eitthvað algjört bull?

Gleðilegt vor vinir og lesendur - nú er ég alveg viss um að vorið er komið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Sá skal vægja sem vitið hefur meira var minn

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.4.2009 kl. 00:10

2 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

- enginn deilir lengi einn -

Og vissulega vorar fyrst í okkar eigins hjarta!

Vilborg Eggertsdóttir, 14.4.2009 kl. 01:16

3 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

"Þangað fýsir elskhugann sem unnustan er"

Þessi stóri sannleikur kom úr pínkulitlu páskaeggi...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 14.4.2009 kl. 01:43

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er sitt hvað, gæfa eða gjörvileiki.

Jájá.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.4.2009 kl. 09:42

5 Smámynd: B Ewing

- Sannvitur manneskja lítur aldrei á aðra sem óvini sína -   Það var minn.

B Ewing, 14.4.2009 kl. 10:56

6 identicon

Sá fær byr sem bíður.

Hitti vel í mark þar sem ég var að fara yfir um í framtíðarpælingum og plönum. Nú er ég bara í núinu.

Katla (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 13:10

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Minn var fjári góður, ég hef aldrei heyrt hann áður:

"Oft má að liði verða þó lítill sé"

Lára Hanna Einarsdóttir, 14.4.2009 kl. 20:47

8 Smámynd: AK-72

Eftir höfðina dansa limirnir.

Einhverra hluta vegna varð mér hugsað til Sjálfstæðisflokksins í kjölfarið.

AK-72, 14.4.2009 kl. 21:00

9 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Takk öllsömul fyrir að senda mér málshættina ykkar í ár - mér finnst lífið svolítið skemmtilega skringilegt og eitt af því sem ég hef alltaf haft lúmskt gaman af eru málshættir -  einskonar örljóð:) sem krydda tilveruna...

Þið eruð indælisfólk - takk fyrir að vera til...

Birgitta Jónsdóttir, 14.4.2009 kl. 23:35

10 identicon

Þessi málsháttur er þú í eggjakurn, Birgitta. :)

Ég á eftir að redda mér páskaeggi en læt þig vita þegar ég er kominn með (ef ég finn þá einhvers staðar páskaegg ennþá).

Annars er ég vanur að fá eitthvað á borð við "Heimskt er heimaalið barn". :P

Minn uppáhalds er þó eflaust þessi málsháttur Sverris Stormskers: "Oft byrjar málsháttur á 'oft'".

Einar Steinn (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 508729

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.