Leita í fréttum mbl.is

Detox í sjálfstæðisflokknum

Sérfræðingar segja að löngu sé orðið tímabært fyrir sjálfstæðis/tökuflokkinn að annað hvort að leysa sig upp eða fara í alvöru detox - hef heyrt að það hreinsi út allan skít/spillingu með undraverðum árangri.

Þá hygg ég að gott væri fyrir flokkinn að drífa sig í huglæga atferlismeðferð vegna áráttuhegðunar sem kennd er við lygar og sjálfseyðingarhvöt á háu stigi.

Þá virðist flokkurinn eiga erfitt með að viðurkenna mistök og axla ábyrgð. Alvarlegt minnistap virðist jafnframt vera að færast í aukana með ógnvænlegum hraða. 

 


mbl.is Guðlaugur Þór: Ég óskaði ekki eftir styrk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þarf að vera "sérfræðingur" til að sjá það? Ég bara spyr...

Skorrdal (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 16:14

2 identicon

Niður með Sjálfstæðisflokkinn, þetta krabbamein í íslensku samfélagi! Svo elskaði Geir Sjálfstæðisflokkinn að hann gaf æruna svo flokkurinn fengi eilíft líf.

Valsól (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 16:14

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem hefur farið í naflaskoðun eftir hrunið -

ENGINN annar flokkur hefur komist nálægt því - ekki einu sinni í orði hvað þá á borði -

hvað þig varðar og öll þín róksskrif gegn flokknum þá þakka ég þér fyrir þau - með þeim ert þú að efla okkur - þjappa okkur saman - styrkja okkur í baráttunni við hjátrú  - lygar - róg og yfirgripsmikla vanþekkingu ( lesist heimsku ) æði margra sem fjalla um málin

Og hér er eitt fyrir ykkur - vegna styrkjanna sem verða endurgreiddir þótt þeir hafi verið löglegir á allan máta enda þeirra aflað fyrir lagabreytinguna -

Þetta er góð ákvörðun - vonandi sýnir Samfylkingin sitt bókhald með öllu t.d. Baugsgreiðslum sem og Jóns Ólafssonar "framlögin".

ÁSKORUN TIL SJÁLFSTÆÐISMANNA - TÖKUM HÖNDUM SAMAN OG GREIÐUM HVERT UM SIG            KR. 5.000.- Í STYRKTARMANNAKERFIÐ - TIL VIÐBÓTAR ÞVÍ SEM VIÐ GREIÐUM VENJULEGA.

LÍKA ÞIÐ SEM ERUÐ EKKI INNI Í STYRKTARMANNAKERFINU NÚ ÞEGAR.

10.000 MANNS - 50 MILLJÓNIR - MÁLIÐ LEYST.

20.000 MANNS - 100 MILLJÓNIR - OG ALLT Í GÓÐUM GÍR.

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur Ingi Hrólfsson, 9.4.2009 kl. 16:17

4 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Sama hvað stjórnmálaflokkur hefði átt í hlut, þá er bara alls ekki nóg að "laxera" einu stk. fyrrv. formanni plús einu stk. virkum pólitíkus, sem virðist hafa orðið undir í valdabaráttunni upp á síðkastið.

Þeim er hins vegar nokkur vorkunn.    Því það gefur auga leið, að ef þeir tækju stóra detoxið á þetta, myndu innyflin og öll önnur helstu líffæri Flokksins fljóta með.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 9.4.2009 kl. 16:22

5 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

e.s.  Vonandi flokkast aths. hér að ofan ekki sem "róksskrif" gegn flokknum...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 9.4.2009 kl. 16:25

6 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

nei Hildur - bara sem yfirgripsmikil vanþekking

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur Ingi Hrólfsson, 9.4.2009 kl. 16:58

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Það er ekki nóg að Sjálfstæðsiflokkurinn þurfi að fara í naflaskoðun. Ef hann ætlar að halda lífi þá verður hann að fara í skurðaðgerð-enda illa haldin af nýfrjálshyggjukrabbameini og helst í heilaskurðsaðgerð þar sem allar einþykku og getulausu íhaldsfrumurnar væru fjarlægðar, ellega munu þessar flokksfrumur, Ekki bara ganga af sjálfum sér dauðum heldur íslandi líka.

Þessi stjórnmálaflokkur er eins og hver annar dópismi. - sem sagt erfðargalli og sjálfsblekkingarsjúkdómur sem lýsir sér þannig að þó svo að allt sé komið í þrot -heldur þessi flokkur áfram út í rauðan dauðan að telja sig trú að allt sé í himnalagi. Foringjaþráhyggjan er svo áráttukennd að hún minnir miklu meira á nasisma eða reblobikanaflokkin í Bandaríkjunum heldur en stjórnmálaflokk með nútíma sjónamið. Manískir geðsjúklingar með messíasarkomplexa eru hafðir upp til skýjanna og gerðir af nýfrjálshyggjuguðum á meðan aðrir menn sem tala fyrir hægri mennsku sem eitthvað vit er í eru traðkaðir í svaðið.

Brynjar Jóhannsson, 9.4.2009 kl. 17:21

8 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Það verður fróðlegt að vita hvað málþófsumræður Sjálfsæðismanna á þingi snúast um eftir páska. Verður umhyggja þeirra fyrir verndun gömlu stjórnarskrárinnar trúverðugri í ljósi mútuhneykslisins. Það er ekki hægt aðkalla þetta neitt annað en mútur. Svona "styrkur" er enginn free lunch.

Gísli Ingvarsson, 9.4.2009 kl. 17:32

9 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Hvetjum ALLA stjórnmálaflokkana til þess að styrkja Fjölskylduhjálpina frekar en að skila styrkjum frá einstaklingum sem upphaflega eignuðust það fé með afar vafasömum hætti og komu okkur íslendingum í þá stöðu sem við erum í nú.

http://www.facebook.com/home.php?#/group.php?gid=65711071733&ref=nf

Hlynur Jón Michelsen, 9.4.2009 kl. 20:24

10 Smámynd: Þór Saari

Landsmönnum væri mikill greiði gerður ef Sjálfstæðisflokkurinn yrði við þeirri sjáfsögðu kröfu að bjóða ekki fram í komandi kosningum. Það er í raun hrein og klár bíræfni af þeim að láta sjá sig Alþingishúsinu, hvað þá heldur að þeir tjái sig um stjórnarskrána. Iss!

Heiðvirðir Sjálfstæðismenn ættu að sjá sóma sinn í því að halda sig heima á kjördag og nota svo næsta kjörtímabil til hreinsa til í flokknum.

Þór Saari, 9.4.2009 kl. 21:04

11 identicon

Hvað á að gera við Sjálfstæðisflokkinn?

Það er eðlilegast að leggja flokkinn niður og láta eigur hans renna til fátækra fórnarlamba arðránsstefnu flokksins.

Sjálfstæðishúsið verði jafnað við jörðu og gerður minningarlundur á staðnum og þar reist minnismerki um "Helför" íslenska efnahagskerfisins.
Kauphallarhúsið sem er staðsett í nágrenni minningarlundsins má gera að safnahúsi.
Þar verður haldið til haga glæpum "Flokksins" gagnvart þjóðinni og framtíðar þegnum landsins.

Landráð, afsal á verðmætum og landgæðum til spillingarafla og erlendra auðhringa.
Spilling í stjórnsýslu, mútuþægni, ofbeldi og valdníðsla gagnvart þegnunum etc.

Tilgangur safnsins verður að varðveita vitneskju um óhæfuverkin til að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig.

Þeim flokksmönnum Sjálfstæðisflokksins sem voru meðvirkir og er hugsanlega hægt að bjarga verði gefinn kostur á enduhæfingu til að aðlagast lýðræðislegu og réttlátu þjóðfélagi.
Hinum "forhertu" og "seku" sem ekki er við bjargandi verður boðið upp vist í frískandi umhverfi á Litla Hrauni.
Þar má binda vonir við að hreint sjávarloftið og skapandi iðjuþjálfun leiði þá til betri vegar með frelsun og iðrun synda.

Jón (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 23:16

12 Smámynd: Jóhann Ólafsson

Ekki ætla ég að verja styrki til Sjáfstæðisflokksins en hann hefur þó fyrstur flokkar upplýst um alla styrki yfir 1 mkr. árið 2006. Það hafa aðrir flokkar ekki gert og heilög Jóhanna sagði í gær að myndi taka nokkra daga fyrir Samfylkinguna að taka þessa saman. Hafið þið heyrt annað eins kjaftæði eða skiptir það kannski engu máli ? Jóhanna er jú á vinstri kantinum og þar er fólkið svo gott. Gamla góða vinstri hræsnin og lýðskrumið !

Jóhann Ólafsson, 10.4.2009 kl. 10:39

13 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Skora á alla flokka að opna bókhald sitt... alveg sama hvort það sé vinstri hægri miðja takk:)

Birgitta Jónsdóttir, 10.4.2009 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.