Leita í fréttum mbl.is

Vorið kom í dag

Í minningu landsVar einmitt að ræða það við yngri son minn þegar ég labbaði með honum út í skóla, að það væri vorangan í lofti - hann var ekki alveg að fatta hvað ég átti við - en ég heyrði eitthvað í söngvum fuglanna í morgunn sem minnti mig á vorið og ákvað að í það minnsta væri mitt huglæga vor hafið:)

Undanfarið hefur hver önnur hörmungarfréttin dunið yfir þjóðina og ég er sannfærð um að sú von sem fæðist alltaf með vorinu og birtunni muni hjálpa okkur að halda heiðríkju í huganum þrátt fyrir að á móti blási úr öllum áttum eins og jafnan gerist hér á Íslandi.

Þetta eru erfiðir tímar, en það er samt eitthvað stórmerkilegt að gerast í þjóðarsálinni og einhver spakur sagði að maður eflist með hverri raun. Þetta getur átt jafnt við einstaklinga sem þjóð. Það eina sem maður þarf að gera er að læra af reynslunni og gera ekki sömu mistökin aftur, ef mistök mætti kalla. Einhver annar spakur sagði að það væru ekki til mistök heldur aðeins tækifæri til þroska.


mbl.is Vorboðar koma til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Ljúf og gód lesning

Sporðdrekinn, 18.3.2009 kl. 00:31

2 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Ólíkt því sem gerist með aldrinum, líður tíminn svakalega hægt þegar maður er lítill.   Litli drengurinn man því sennilega ekkert eftir síðustu árstíðaskiptum  -meðan mér finnst varla taka því að taka niður jólaskrautið, því þetta kemur svo fljótt aftur !

Eins og veðráttan hefur verið undanfarið, er eins og vor og vetur eigi í daglegum slagsmálum.   Vitum þó að vorið sigrar að lokum.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 18.3.2009 kl. 01:11

3 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

~ hið andlega vor ~ ? Hver veit?

Vilborg Eggertsdóttir, 18.3.2009 kl. 01:23

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessa færslu Birgitta mín.  Það er nauðsynlegt að fá svona jákvæða vítamínsprautu af og til.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2009 kl. 09:10

5 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Takk fyrir góða grein.

Þráinn Jökull Elísson, 20.3.2009 kl. 18:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 508792

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband