Leita í fréttum mbl.is

Úr stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar - þjóðin á þing

Trúverðug rannsókn undir stjórn og á ábyrgð óháðra erlendra sérfræðinga á íslenska efnahagshruninu verði hrundið af stað og fari fram fyrir opnum tjöldum. Frysta eignir grunaðra auðmanna STRAX meðan á rannsókn stendur

1. Tafarlaust verði sett í gang opinber rannsókn undir stjórn erlendra sérfræðinga á hruni íslenska efnahagskerfisins.  Samhliða því verða sett afturvirk lög sem leyfa ógildingu allra fjármálagerninga undanfarinna tveggja ára þ.m.t. gerninga skilanefnda bankanna, og í undantekningartilfellum lengra aftur í tíma ef sýnt er að um óeðlilega gjörninga hafi verið að ræða þar sem félag og/eða eigendur þess hafi verið með þeim hætti leitt af sér skaða fyrir íslenskt efnahagslíf. Í þeim tilfellum verður ákvæði hlutafélagalaga um takmarkaða ábyrgð eigenda fellt niður.

Meira á borgarahreyfingin.is

 

 


mbl.is Joly: Leita þarf til erlendra sérfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Margt ágætt má sjálfsagt segja um ykkur sem standið að Borgarahreyfinguni en því miður hafið þið það á stefnuskrá ykkar inngöngu Íslands í ESB.

Það eitt útilokar mig og reyndar marga fleiri til þess að geta stutt ykkur í kosningum.

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 8.3.2009 kl. 15:54

2 Smámynd: Baldvin Jónsson

Gunnalaugur Ingvarsson, þetta er einfaldlega alrangt. Við höfum það alls ekki á stefnuskránni að það sé okkar eða annarra pólitískra afla að ákvarða um það.

Við höfum það á stefnuskránni að vilja búa við lýðræði og hluti þess að góð upplýsingaöflun og dreifing. Það er það sem aðildarviðræður snúast um. Persónulega er ég til dæmis frekar á móti aðild í dag, en ég eins og stærsti hluti þjóðarinnar hef þó ansi lítið af upplýsingum í höndunum til þess að byggja þá afstöðu mína á.

Sækjum upplýsingarnar og tökum síðan upplýsta ákvörðun. Hættum að kalla af götuhornum einhverjar fullyrðingar sem eru ekkert rökstuddar.

Baldvin Jónsson, 8.3.2009 kl. 16:05

3 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Ég tek undir það sem Eva Joly segir.

Þar fer kona sem veit hvað hún talar um.

Þráinn Jökull Elísson, 9.3.2009 kl. 03:18

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég óska ykkur velfarnaðar og góðs gengis. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2009 kl. 10:41

5 identicon

Ég reikna nú með því að kjósa Borgarahreyfinguna.

Björn I (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband