Leita í fréttum mbl.is

Stefna Borgarahreyfingarinnar – þjóðin á þing

Réttlæti  -  siðferði – jafnrétti


Gripið verði til neyðarráðstafana í þágu heimila og fyrirtækja

 

1. Alvarleg staða heimilanna verði tafarlaust lagfærð með því að færa vísitölu verðtryggingar handvirkt fram fyrir hrun hagkerfisins (janúar 2008) og hækkanir höfuðstóls og afborganir húsnæðislána til samræmis við það. Raunvextir á verðtryggðum lánum verði að hámarki 2% - 3% og afborgunum af húsnæðislánum verði hægt að fresta um tvö ár með lengingu lánsins um þann tíma. Náð verði samkomulagi við eigendur verðtryggðra húsnæðislána um að þeim verði breytt í skuldabréf með föstum vöxtum og verðtryggingarákvæði í lánasamningum verði bönnuð.

 

2. Leitað verði leiða til að leysa myntvanda Íslands með myntbandalagi við aðrar þjóðir eða ef með þarf með einhliða upptöku annars gjaldmiðils.

 

3. Atvinnulaust fólk verði hvatt til að stunda vinnu með samfélagslegu markmiði til að koma í veg fyrir að tengsl þess við vinnumarkaðinn rofni.  Sett verði á stofn víðtæk aðstoð við atvinnulausa um allt land með það að markmiði að aðstoða þá að nýta atvinnuleysið.

 

4. Illa skuldsett fyrirtæki verða boðin til sölu og tilboðum aðeins tekið ef ásættanlegt verð fæst. Annars verði starfsfólkinu leyft að taka yfir lífvænleg fyrirtæki sem ekki fæst ásættanlegt verð fyrir. Skuldir eigenda verði ekki felldar niður sjálkrafa en nota á endurreisnarsjóð atvinnulífsins til að veita hagstæð lán og breyta skuldum lífvænlegra fyrirtækja í hlutafé í eigu ríkisins frekar en að afskrifa skuldir.

 

5. Halla á ríkissjóði verði mætt með endurskoðun skattkerfisins, m.a. með fjölgun skattþrepa, hátekjuskatti og breytingum á virðisaukaskatti, frekar en niðurskurði í heilbrigðis- og velferðarþjónustu.  AGS fái ekki að ráða ferðinni með stöðu ríkissjóðs.

 

6. Strax verði hafist handa við að meta heildarskuldir þjóðarbúsins og að því loknu gert upp við lánardrottna eftir bestu getu og skynsemi.  ICESAVE reikningar Landsbankans og aðrar skuldir bankanna erlendis verði ekki greiddar fyrr en álit óháðra sérfræðinga liggur fyrir um skyldur Íslands og m.t.t. þess að sennilega hafi verið um svikamyllu að ræða en ekki eðlilega bankastarfsemi. Rannsakað verði hvað varð um allar innlagnir á reikningana, fjármunirnir sóttir og þeim skilað til eigenda. Stjórnendur og eigendur bankanna verði gerðir persónulega ábyrgir fyrir því sem vantar upp á.  Samið verður um það sem út af stendur m.t.t. neyðarástands og reynt að fá þær skuldir niðurfelldar.  Samhliða því verði gefið loforð um framlag af hálfu Íslands sem nemi 2% af VLF, renni til þróunaraðstoðar á ári næstu tíu ár til að sýna góðan vilja íslendinga til að verða ábyrg þjóð meðal þjóða.

 

Landsmenn semji sína eigin stjórnarskrá

 

1. Þjóðaratkvæðagreiðsla skal fara fram um mál er varða þjóðarhag óski tiltekinn minnihluti þjóðarinnar þess. Sama gildir um að rjúfa þing.


2. Bera skal alla samninga undir þjóðaratkvæðagreiðslu sem mögulega framselja vald.


3. Rofin verði óeðlileg hagsmunatengsl milli viðskiptaheims og þingheims.


4. Viðurkenna skal þau sjálfsögðu mannréttindi sbr. 1. gr. Mann-réttingayfirlýsingar S. Þ. að vægi atkvæða í alþingiskosningum verði jafnt enda væri það í samræmi við hugmyndir um að auka vægi þjóðaratkvæðis um einstök mál enda augljóst að ekki væri hægt að láta suma landsmenn hafa meira vægi en aðra við þjóðaratkvæðagreiðslu.


5. Fjöldi þingmanna miðist við fjölda á kjörskrá í hlutfallinu 1/4000 sem væri í samræmi við algengt hlutfall í öðrum löndum. Þetta myndi þýða nokkra fækkun þingmanna í dag en hægfara fjölgun þeirra í framtíðinni með vaxandi fólksfjölda sem væri rökrétt.


6. Kjördæmaskipan verði endurskoðuð og kjördæmum fækkað á suðvesturhorninu.


7. Tryggð verði skipting valdsins milli löggjafarvalds og framkvæmdavalds, m.a. þannig að ráðherrar sitji ekki á þingi.

 

8. Ráðherrar, þingmenn og æðstu embættismenn framkvæmdavaldsins, nema dómarar, gegni embætti í mesta lagi í átta ár eða tvö kjörtímabil samfellt.

 

9. Fyrsta málsgrein 76. greinar stjórnarskrárinnar verði breytt til samræmis við   Mannréttindayfirlýsingu S. Þ. um réttinn til lífskjara sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og velliðan allra. Grein 76 muni þá hljóða svona eftir breytingu. “Öllum skal tryggður rétttur til grunn lífskjara sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og lífsviðurværi þeirra sjálfra og fjölskyldu þeirra Grunn lífskjör teljast vera nauðsynlegt fæði, hreint vatn, klæði, húsnæði, læknishjálp og nauðsynleg félagsleg þjónusta, svo og réttur til öryggis vegna atvinnuleysis, veikinda, fötlunar, fyrirvinnumissis, elli eða annars sem skorti veldur og menn geta ekki við gert.” Öllum skal tryggður í lögum réttur til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi. Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.

 

10. Allar náttúruauðlindir verða í þjóðareigu og óheimilt að framleigja þær nema tímabundið og þá aðeins með viðurkenndum gagnsæjum aðferðum þar sem fyllsta jafnræðis og arðs er gætt.

 

Trúverðug rannsókn undir stjórn og á ábyrgð óháðra erlendra sérfræðinga á íslenska efnahagshruninu verði hrundið af stað og fari fram fyrir opnum tjöldum. Frysta eignir grunaðra auðmanna STRAX meðan á rannsókn stendur

 

1. Tafarlaust verði sett í gang opinber rannsókn undir stjórn erlendra sérfræðinga á hruni íslenska efnahagskerfisins.  Samhliða því verða sett afturvirk lög sem leyfa ógildingu allra fjármálagerninga undanfarinna tveggja ára þ.m.t. gerninga skilanefnda bankanna, og í undantekningartilfellum lengra aftur í tíma ef sýnt er að um óeðlilega gjörninga hafi verið að ræða þar sem félag og/eða eigandur þess hafi verið með þeim hætti leitt af sér skaða fyrir íslenskt efnahagslíf. Í þeim tilfellum verður ákvæði hlutafélagalaga um takmarkaða ábyrgð eigenda fellt niður.

Lögfest verði fagleg, gegnsæ og réttlát stjórnsýsla

 

2. Ráðningatími (skipunartími) og þ.a.l. uppsagnarfrestur allra embættismanna sé í samræmi við það sem almennt gerist hjá stjórnendum á vinnumarkaði skv. nánari útfærslu sem verði í höndum Kjararáðs.

 

3. Tiltekinn minnihluti þingmanna geti boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um lagafrumvörp sem Alþingi hefur samþykkt.

 

4. Hæfi umsækjenda um störf hæstaréttar- og héraðsdómara verði metið af hlutlausri fagnefnd skipaðri af Alþingi eftir tilnefningu hæstaréttar. Fagnefndin geti lagt fyrir umsækjendur próf til að skera úr um þá hæfustu og að ráðherra beri að velja dómara úr hópi þeirra sem fagnefndin telur hæfasta.

 

5. Æðstu embættismenn verði valdir á faglegum forsendum.

 

6. Fastanefndir þingsins verði efldar. Nefndarfundir verð almennt haldnir í heyranda hljóði. Gerð verði krafa um að fastanefndir afgreiði öll mál og skili niðurstöðu innan ákveðins tíma.

 

7. Settar verði siðarreglur fyrir alþingismenn, ráðherra og æðstu embættismenn framkvæmdavaldsins sem m.a. geri grein fyrir eign sinni í fyrirtækjum og stjórnarsetu fyrir kosningar og upplýsi umsvifalaust um allar breytingar á þessu sviði.
Við viljum innleiða hugtakið : pólitísk ábyrgð


Lýðræðisumbætur STRAX

1. Stjórnlagaþing fólksins í haust


2. Persónukjör til Alþingiskosninga


3. Afnema 5% þröskuldinn


4. Þjóðaratkvæðagreiðslur


5. Ný framboð fái sama tíma í fjölmiðlum og sama stuðning og aðrir stjórnmálaflokkar

 

Borgarahreyfingin leggur sig niður og hættir störfum þegar þessum markmiðum hefur verið náð eða augljóst er að þeim verður ekki náð


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Óska ykkur til hamingju með framboðið, mörg góð mál í stefnuskránni hjá ykkur , sérstaklega liður 1. að hjálpa heimilunum , en þið minnist ekki á gengistryggðu húsnæðislánin , það væri gott að heyra frá ykkur hver ástæða þess er

Kveðja J.B

Jón Benediktsson (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 09:32

2 identicon

Varðandi ábendingu um:  "...skyldur Íslands og m.t.t. þess að sennilega hafi verið um svikamyllu að ræða en ekki eðlilega bankastarfsemi" þá vil ég sérstaklega taka undir þetta. 

Ég hef sett upp tilgátu um efnahagshrunið hér. Það er ekki allt sem sýnist - og reyndar langur vegur frá því að mínu mati.  Hér er ekki um samsæriskenningu að ræða heldur gagnrýna hugsun.

Varðandi ábendinu um:  "Rannsakað verði hvað varð um allar innlagnir á reikningana, fjármunirnir sóttir og þeim skilað til eigenda".

Ég spyr, á mannamáli:  Hvar eru þessir peningar sem eigendur og stjórnendur Landsbankans  rökuðu saman frá um 500.000 innistæðueigendum í Evrópu ?

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 09:46

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Verður þú í framboði Birgitta?

Hilmar Gunnlaugsson, 5.3.2009 kl. 19:01

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

takk fyrir athugasemdirnar - Jón ég skal spyrja hagfræðinginn okkar af hverju myntkörfulánin eru ekki tilgreind... og skella því á bloggið til glöggvunar ...

Hákon stefnan er að biðja um aðstoð í þeim löndum sem töpuðu mest á fjárglæfrastarfseminni sem var stunduð héðan. Þar eru til alvöru stofnanir sem rekja slóða mun betur en okkar fjársveltu stofnanir.

Hilmar ég er búin að vera mikið að hugsa um hvort að ég ætti að bjóða mig fram - finnst þinghúsið ekki spennandi starfsvettvangur fyrir sjálfstætt foreldri eins og mig - en ef okkur tekst ekki að fá nógu margar til að moka spillingar og hagsmunaflórinn þar inni þá mun ég bjóða mig fram - tek það fram að ég er ekki að segja að allir sem þarna inni starfa séu spilltir eða vanhæfir -það eru örfáir einstaklingar inná þingi sem ég ber traust til og virðingu ...

Ég ætla alla vega að leggja alla mína orku og siðferðisþrek í að búa til vettvang fyrir þjóðina að bjóða sig fram - að byggja brú fyrir fólk sem hefur unnið samfélaginu gagn sín án þess alltaf að berja sér á brjóst - það verður víst bara gert með því að setja sig í eldlínuna ef þarf. Ég var beðin um að vera varaformaður fyrir Borgarahreyfinguna - ég reyni bara að vinna þau verk þar sem mínir kraftar njóta sín best - veit ekki hvort að Birgitta inná þingi sé besti vettvangur fyrir mig:) Ætla að sofa á því enn eina nóttina og taka endanlega ákvörðun á morgunn... 

Birgitta Jónsdóttir, 5.3.2009 kl. 23:40

5 identicon

Birgitta :  Ef þið eruð með einhverjar lausnir á gengistryggðu lánunum sambærilegum við þau vísitölutryggðu væri best að fá þau inn á framboðssíðuna , það eru margir sem bíða eftir slíkum lausnum og yrði  slíkt ykkur til framdráttar

Jón Benediktsson (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 09:05

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gangi ykkur vel Birgitta mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.3.2009 kl. 09:32

7 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Heill og sæll Jón

ég spjallaði við einn af hagfræðingunum okkar og hann lofaði að koma með tillögur varðandi húsnæðismyntkörfulánin - hann sagði að þetta væri flókið en það væri kannski hægt að nota samskonar útfærslu og á verðtryggðu lánunum...

Takk Ásthildur mín ... kemur þú ekki bara í framboð fyrir okkur:) þú ert svo mikill viskubrunnur og þekkir svo vel hvar kerfið virkar ekki... 

Birgitta Jónsdóttir, 6.3.2009 kl. 11:36

8 identicon

Takk fyrir þetta Birgitta , bíð spenntur eftir þessu.  Gangi ykkur vel :-))

Jón Benediktsson (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 508816

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.