Leita í fréttum mbl.is

Þessar tölur segja ekki alla söguna

Þessar tölur gefa afar skakka mynd af hve margir hafa misst vinnuna. Inn í þær vantar á milli 7 og 8000 erlenda verkamenn sem hafa yfirgefið landið, á milli 3 og 4000 sem hafa farið í nám hérlendis og erlendis vegna vinnumissis. Þá má ekki gleyma þeim fjölmörgu verktökum sem eiga ekki rétt á bótum.

Ég held að ef við eigum að geta tekið á þessum risastóra vanda sem við okkur blasir verðum við að skoða heildarmyndina. Nú eru 16.356 skráðir atvinnulausir og við það bætist um 10.000 glötuð störf sem vitað er um fyrir utan alla þá sem eiga ekki rétt á bótum - hvað gerir þetta þá tölu atvinnuleysis háa?

Þó flóðbylgja atvinnulausra á skráningu sé að minnka þá eru á sama skapi ekki að skapast ný störf fyrir þá sem hafa misst vinnuna. Þá má líka minna á þá staðreynd að til að fá námslán þarf að fá einhvern sem á eignir til að gerast ábyrgðamaður að lánunum - það er frekar ranglátt því margir eru að horfast í augu við gjaldþrot eða mikil vanskil. 

Ég hlakka til að sjá hvaða lausnir verða í boði - ég mæli annars með því að fólk sem missi vinnuna prófi sjálfboðaliðastörf - fari í sjálfstæða atvinnubótavinnu með því að fræða sig sjálfstætt þó því fylgi ekki neinar prófgráður - en okkur atvinnuleysingjum vantar miðstöðvar þar sem við getum hist og borið saman sögur okkar og hleypt kappi í hvort annað. Vona að það verði boðið upp á slíkt hið fyrsta. 


mbl.is Hægir á vexti atvinnuleysis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta stefnir í leiðindi, Velkomin í New World Order

Gullvagninn (IP-tala skráð) 28.2.2009 kl. 09:14

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góður punktur hjá þér með námsmenn, sem þurfa ábyrgðarmenn v/námslána.

Ég þekki námsmann, sem fær ekki námslán, vegna þess að þeir sem hann myndi leita til sem ábyrgðarmanna eru gjaldþrota.

Voru ekki námslánin hugsuð sem tæki til þess að aðstoða alla til náms, hvernig sem fjárhags umhverfi þeirra væri?

Svo er náttúrulega löngu orðið tímabært að endurskoða lög og reglur um atvinnuleysisbætur. 

Sigrún Jónsdóttir, 28.2.2009 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.