Leita í fréttum mbl.is

Borgarafundur um persónukjör & kosningalög

Iðnó fimmtudagskvöldið 26. febrúar kl. 20:00

Ríkisstjórnin lofaði persónukjöri og breytum á kosningalögum. Er það mögulegt? Samstaða –bandalag grasrótarhópa,  boðar til almenns borgarafundar til að fá úr því skorið.

Ræður: Þorkell Helgason - útbjó núverandi kosningalög
Ómar Ragnarsson - talsmaður persónukjörs & breytinga á kosningalögum
Fundarstjóri: Hallfríður Þórarinsdóttir - mannfræðingur

Fulltrúar hafa verið boðaðir  á fundinn til að fá afdráttalaus svör varðandi þessi mál.

Þessir fulltrúar hafa boðað komu sína:


Guðjón A. Kristjánsson frá Frjálslynda flokknum

Helgi Hjörvar frá Samfylkingunni

Herbert Sveinbjörnsson frá Borgarahreyfingunni

Siv Friðleifsdóttir frá Framsóknarflokknum

Steingrímur J. Sigfússon frá VG

Hvaða flokkar ætla að verða við kröfum almennings um persónukjör? Mikilvægt er að almenningur fái skýr svör nú þegar. Nú er tækifæri fyrir almenning að fá svör við spurningum sínum.

Sýnum samstöðu og mætum öll

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það verður fróðlegt að sjá, hvað kom út úr þessum fundi. Voru fjölmiðlamenn þarna? Verður einhverjum ræðum útvarpað eða þær settar á netið?

Jón Valur Jensson, 26.2.2009 kl. 22:49

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þetta var afar gagnlegur fundur - ég ætlaði að blogga um hann í morgunn en þá lá bloggkerfið niðri. Þetta var tekið upp og við munum skella þessu á netið mjög fljótlega - ég mun líka skrifa það sem mér fannst markverðast um fundinn seinna í dag eða á morgunn.

Birgitta Jónsdóttir, 27.2.2009 kl. 17:57

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég var ekki í bænum og komst því ekki, annars er ég ekki vön að láta svona fundi fara fram hjá mér.

Bíð spennt eftir að heyra af fundinum!

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.2.2009 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 509214

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.