Leita í fréttum mbl.is

Þingmenn VG hafa gert þetta í mörg ár

Vil bara vekja athygli á því að þingmenn VG hafa birt tekjur og eignir á vefsvæði VG í mörg ár. Þetta er því ekkert nýnæmi - en auðvitað er þetta flott framtak hjá Sigríði og vonandi taka fleiri frambjóðendur sig til og geri hið sama.
mbl.is Birtir fjárráð sín á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Takk fyrir að upplýsa um það.  Ég fann í klaufaskap mínum ekki stafkrók um þetta á vefsvæði VG. 

Þú getur kannski bent mér á hvar þetta er að finna?

Sveinn Ingi Lýðsson, 26.2.2009 kl. 13:21

3 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Þakka þér Birgitta.  Þetta er til fyrirmyndar.  Allt uppi á borðinu.

Sveinn Ingi Lýðsson, 26.2.2009 kl. 13:49

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

kom mér þægilega á óvart þegar ég var að setja upp vefinn fyrir þau á sínum tíma:)

Birgitta Jónsdóttir, 26.2.2009 kl. 14:13

5 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Það er ott mál að setja upp eiginfjárstöðu á opinberan máta.

En.... það er alls ekki nóg.  Margir þingmenn eiga fyrirtæki/eignarhaldsfélög og aðrir sitja í hinum og þessum stjórnum og minni ég á Illuga Gunnarssonar í sjóði 9, fyrir Glitni.

Bjarna Benediktsson hjá N1

Lúðvík Bergvinsson með sitt félag Fasteign efh., og fleira og fleira.

Það á að vera skilyrðislaus krafa um að slíkar upplýsingar liggi fyrir opinberlega.

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 26.2.2009 kl. 17:01

6 identicon

Sæl,

það eru engar upplýsingar um skuldastöðu VG fólks inni á síðunni, sem eru lykilupplýsingar sér í lagi í þeirri umræðu sem fer nú fram um hvernig á að fara með skuldir fólks. Þær upplýsingar birtir þessi Sigríður hinsvegar.

Bestu kv. JB

JB (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband