Leita í fréttum mbl.is

Leikið tveimur skjöldum?

bianche20twoface20croppmj5.jpgÉg skora á fjórflokkana að upplýsa okkur um það hið snarasta til hvers verið er að tala um forval í 5 efstu sætin og prófkjör ef á sama tíma er verið að tala um að beita sér fyrir persónukjöri.

Hverjir ætla að bjóða upp á persónukjör? Veit það einhver? Hafa komið skýr svör um það? Persónukjör er það sem þjóðin vill - ætli flokkarnir beri gæfu til að hlusta á vilja þjóðarinnar? 

Annars þá var ég að fá það staðfest að 5% reglan sé stjórnarskrábundið fyrirbæri og er það miður. Óskandi væri að ný framboð bindist tryggðarböndum með það að samnýta atkvæði svo engin falli niður dauð. 

Er það enn regla hjá RÚV að framboð þurfi að bjóða fram í öllum kjördæmum til að fá aðgang að umræðum í sjónvarpi? Mér finnst að það ætti að rýmka um þá reglu núna, því framboð hafa lítinn tíma til að safna meðmælum og frambjóðendum um land allt þó auðvitað væri æskilegt að þau gætu boðið fram sem víðast. 


mbl.is Persónukjör í kosningunum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Sæl Birgitta. Við í VG í Norðausturkjördæmi ætlum að vera með lokað prófkjör (forval) í 8 efstu sætin á listanum. Endanleg röðun mun þó ráðast af fleiri atriðum, svo sem kynjakvóta, byggðakvóta og aldursdreifingu. Ef Alþingi setur lög, sem leyfa kjósendum að endurraða listanum, þá er það bara hið besta mál. Þá stillir flokkurinn upp þeim lista, sem hann telur heppilegastan og svo eiga kjósendur síðasta orðið. Það verður ekki um það að ræða að einhverjir bjóði upp á persónukjör. Annað hvort verða kosningalögin eins og þau eru eða þeim verður breytt og það er komið fram frumvarp í þá veru að leyfa persónukjör innan þess lista, sem kjósandinn kýs. Ég vona að það frumvarp fari í gegn. Ég er hins vegar alfarið á móti því að kjósendur geti búið til "bland í poka" með því að raða saman frambjóðendum af fleiri en einum lista. Þá væri nær að fara út í einmenningskjördæmi.

Björgvin R. Leifsson, 18.2.2009 kl. 08:34

2 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Sæl aftur. Ég var ekki búinn að lesa fréttina þegar ég skrifaði síðustu athugasemd. Ég verð að segja að mér finnst eðlilegra að bæði flokkur og kjósendur geti stillt upp listanum heldur en að flokkurinn velji aðra hvora útfærsluna.

Björgvin R. Leifsson, 18.2.2009 kl. 10:55

3 Smámynd: Héðinn Björnsson

Það eru landsfundir framundan og ég get ekki ímyndað mér annað en það verði ákveðið þar hvernig verði farið að. Ég hef trú á að flokkarnir þvingist þannig einn af öðrum út í að leyfa kjósendum að raða upp innan listanna enda myndi það kosta viðkomandi flokk mörg atkvæði að gera það ekki.

Héðinn Björnsson, 18.2.2009 kl. 12:41

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Það þarf eyða þessari óvissu sem fyrst

Birgitta Jónsdóttir, 18.2.2009 kl. 12:51

5 identicon

Reyndar er þessi 5% regla ákveðin í kosningalögum en ekki stjórnarskrá. Það er einungis sagt hve mörg kjördæmi skulu vera og þingmannafjöldi. Síðan er sagt að kosningalögin skulu reyna að tryggja það að atkvæðamagnið endurspegli úthlutuð þingsæti.

http://www.snerpa.is/net/log/stjornar.htm

Erlendur (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 15:19

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

takk Erlendur

þá er bara að hjóla í að breyta þessum 5% í 1.6% nú þegar... 

Birgitta Jónsdóttir, 18.2.2009 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 508746

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband