Leita í fréttum mbl.is

Ekki missa af Borgarafundinum á RÚV á eftir

Bara að minna þá á sem komust ekki á sögulegan borgarafund á mánudagskvöldið að horfa á þetta í kvöld á RÚV klukkan 22:20 - ef þið hafið ekki tök á að sjá þetta í kvöld takið þáttinn upp - erindin þar eiga eftir að vekja upp margar spurningar og vonandi vekja fólk enn frekar til umhugsunar um það sem gera þarf til að endurræsa/endurreisa samfélagið okkar.

Ef það verður ekki einhver látin sæta ábyrgð með afsögn vegna vanrækslu og vanhæfni fljótlega þá gætu við allt eins farið að upplifa alvöru óeirðir eins og þessar í Riga eða Sofiu...


mbl.is Óeirðir í miðborg Sofiu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þór Jóhannesson

Vá - ef að bara helmingur venjulegra áhorfenda á RÚV hefur horft á þennan magnaða fund að þá erum byltingin hafin. Þessar upplýsingar er hægt að véfengja af úrtöluröddum á bloggsíðum en þegar fólk fær þetta beint í æð þá stoppar ekki neitt byltinguna.

Ætlar ríkisstjórnin virkilega að fara í stríð við fólkið í landinu?

Þór Jóhannesson, 14.1.2009 kl. 23:35

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já það er flott að koma þessum upplýsingum til almennings

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 14.1.2009 kl. 23:50

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þetta var magnaður fundur.

Sigrún Jónsdóttir, 15.1.2009 kl. 00:33

4 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Ég er í uppnámi. Get ekki hugsað mér að fara að sofa.

Bara það að sjá með eigin augum stól Sjálfstæðisflokksins auðan er svo mikið fokkjú að ég get ekki kyngt því. Að lesa um það er annað en að sjá með berum augum segir allt sem segja þarf.

Fyrir svo utan frábærar framsögur og oftast svolítið minna frábær svör.

Soffía Valdimarsdóttir, 15.1.2009 kl. 01:29

5 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Ómissandi fundur -og skelfilega aum skilaboð frá Stórasta Flokknum að skila auðum sætum. 

 Eru þeir orðnir svona hræddir við fólkið í landinu  ?

Eða er svona "skrílssamkoma" bara fyrir neðan þeirra "virðingu" ???

Hildur Helga Sigurðardóttir, 15.1.2009 kl. 02:24

6 Smámynd: Skarfurinn

Hvernig getur stærsti flokkuurinn Sjálfstæðisflokkurinn komist upp með það að skrópa á svona fundi, við hvað eru þeir hræddir þingmenn & ráðherrar ? þetta er lélegt og ætti enginn að kjósa þennan flokk sem sýnir enga ábyrgð þegar mest reynir á.

Skarfurinn, 15.1.2009 kl. 11:28

7 Smámynd: Agný

Ég horfði á fundinn í gærkvöldi á RÚV og rosalega fannst mér Robert Wade taka í hnakkadrambið á sumum ónefndum einstaklingum,,svona eins og Icelandic Central Bank stjóra...og reyndar fleirum gaurum með sem finnst þeir ekki þurfa að biðjast afsökunar fyrr en hefur sannast að þeir hafi gert eitthvað rangt...

En þessir stólar sem auðir eru voru allavega ekki ráðherrastólarnir sem þessir einstaklingar sitja í...kanski ekki farið nógu vel með þá greyin..það hefði kanski mátt benda þeim á að koma bara með "sína" stóla og nota þá þarna...kanski liðið betur við ræðurnar þá greyjunum...

En er ekki þetta í raun að sýna okkur bara að þetta er allt froðusnakk sem frá þessum sem vantaði þarna kemur út úr þeirra munni...svarið að mæta ekki þarna sannaði bara að Sjálfstæðisflokkurinn hefur engin svör!

Agný, 15.1.2009 kl. 13:27

8 identicon

En mikið afskaplega fór léleg fundarstjórn í taugarnar á mér.

Spyrjendur út í sal fá að romsa áfram en þeir sem fyrir svörum sitja eiga að svara með NEI og JÁ svörum.  Ég vil heyra mikið meira en nei og já.  

 Fannst þetta til vansa annars góðum fundi.

Þóra (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 508754

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband