Leita í fréttum mbl.is

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg SoS

Snertir mig í hjartastað - Takk, Birgitta

Ingibjörg SoS, 8.1.2009 kl. 10:32

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Elskulega Birgitta við skulum ekki gefast upp. 

Mundu að dropinn holar steininn.  Og þó okkur finnist útlitið svart og lítið gerast þá er samt heilmikið í farvatninu.  Þú ert ótrúlega sterk, en um leið ótrúlega viðkvæm.  Sendi þér kærleiksknús og takk fyrir alla þína baráttu.  Hún skilar sér, þó ef til vill fari ekki hátt þá er hún liður í því sem koma mun.   

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2009 kl. 10:50

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þú ert alltaf svo yndisleg elsku Ásthildur mín - sérð mig eins og ég er takk fyrir það:)

Við sáum fræjum í lífi okkar - með lífi okkar - allt sem við segjum og gerum hefur áhrif - skiptir ekki máli hve lítið það er - svo framarlega að við gerum og segjum eitthvað. Þakka þér fyrir þessi hvatningarorð.

Ingibjörg þakka þér fyrir að segja mér frá því - ef ég næ að snerta eina manneskju með orðum mínum þá hef ég náð einhverjum tilgangi með skrifum mínum.

Birgitta Jónsdóttir, 8.1.2009 kl. 10:55

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú snertir svo sannarlega Birgitta mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2009 kl. 13:19

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 8.1.2009 kl. 15:14

6 Smámynd: Heidi Strand

Heidi Strand, 8.1.2009 kl. 21:37

7 Smámynd: Máni Ragnar Svansson

Takk fyrir ljóðið og þitt opna hjarta og virku samúð og hvað þú gerir alltaf þitt besta.  Þú hefur náð einhverjum tilgangi með skrifum þínum, ekki efast um það og lifðu heil því þegar morgnar birtist ný dagur og baráttan heldur áfram endalaust að því er virðist.

Máni Ragnar Svansson, 9.1.2009 kl. 01:46

8 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þakka ykkur fyrir falleg tilsvör - þetta ljóð var upprunalega skrifað út frá stríðinu í fyrrum Júgóslavíu - því miður eru stríð alltaf eins - hryllingur - og þau bitna alltaf mest á börnum og konum. En það er rétt hjá ykkur: það er pláss fyrir okkur öll á þessari jörð og það er með sanni alltaf dimmast fyrir dögun. Ghandi hafði einstaka heimssýn og margt sem við ættum að vera fyrir löngu búin að læra - eins og það sem þú vitnar í Valdimar.

Birgitta Jónsdóttir, 9.1.2009 kl. 07:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 508793

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.