Leita í fréttum mbl.is

Stöðvið fjöldamorðin á Gazaströnd

Ég var að horfa á morð í beinni á CNN í gærkvöldi og þó ég heyrði aðeins sprengjugný og sæi eldhaf og heyrði í sjúkrabílum þá gat ég ekki annað en hugsað til barnanna á Gaza, til almennings á Gaza og ég táraðist. Það sem er svo hryllilegt við þetta fjöldamorð, er að fólkið á Gaza getur ekkert flúið. Þau eru innilokuð á ofurlitlu landsvæði sem þau upplifa sem heimsins stærsta fangelsi. Ég bið ykkur um áður en þið farið að réttlæta það sem fer fram á Gaza - að hugsa til ykkar eigin fjölskyldu - að setja ykkur í spor Palestínumanna. Landinu þeirra var stolið og enn þann dag í dag er verið að taka land þeirra og það er EKKERT sem réttlætir það sem Ísraelsmenn eru að gera í dag. Hvet alla til að mæta á fundinn í  dag og sýna í verki að við styðjum ekki þennan ójafna leik Davíðs og Golíats.

Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til útifundar í dag klukkan 16:00 á Lækjartorgi undir yfirskriftinni: Stöðvið fjöldamorðin á Gazaströnd - Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael

Fundarstjóri: Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands

Ræðumenn: María S. Gunnarsdóttir formaður Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna
Ögmundur Jónasson alþingismaður, Sr. Örn Bárður Jónsson sóknarprestur

Enough!


enough blood
has been spilled
enough hatred
has been bred


enough weapons
have been created
enough children
have died


enough, enough
the womb of the mother
is bleeding
her breasts dry


time
now
for the peoples of this world
to unite


our world on the verge of collapse
into darkness
time to unite
for real changes
for us all
not just the chosen few


time
for us
to choose for us all
for we are all chosen
to lead our world into another reality


mbl.is Ban Ki-moon fordæmir árásir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Skefilegt að heimurinn skuli horfa upp á þetta enn einn ganginn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.12.2008 kl. 08:33

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Já, nú er nóg komið: látum 2009 vera árið þar sem okkur hætti að standa á sama:)

Birgitta Jónsdóttir, 30.12.2008 kl. 08:54

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hreint út sagt ömurlegt! Og IGS segir það ekki skipta sköpum að slíta stjórnmálasambandi.... enn ein táknræn aðgerðin sem hún er ekki að fíla. OJ

Og svo pirrar mig að Gylfi Arnbjörnsson sé fundarstjóri...maðurinn sem vildi ekki "trufla grasrótina" með því að hvetja sína félagsmenn til að mæta á mótmæli

EN... ætla samt að mæta :D

Heiða B. Heiðars, 30.12.2008 kl. 12:09

4 identicon

Þetta er hryllilegt ástand þarna.  Það er samt nýtt að Morgunblaðið sýni á forsíðu myndir af þjáðum börnum.  Er ekki vön því frá blaðinu.  kannski eru þeir að þroskast og sjá að stríð er alltaf ósanngjarnt gangvart börnum og þau líða alltaf mest?  Óskandi að fleiri gerðu sér grein fyrir því.  Þá myndu stríð líða undir lok ef örnin bæru sett í forgang í heiminum.  Þau biðja ekki um stríð.

María Sigrún (IP-tala skráð) 30.12.2008 kl. 14:10

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ógeðsleg morð. Skil ekki hvernig hægt er að líða þetta.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.12.2008 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.