16.10.2008 | 17:00
Ákall til þjóðarinnar
Ákall til þjóðarinnar - Davíð Oddsyni vikið frá störfum
Við mótmælum öll Hittumst á Austurvelli á laugardag kl. 15. Vertu þáttakandi, ekki þolandi. Hvetjið alla sem ykkur eru nærri til að mæta líka. Við fáum kannski bara þetta eina tækifæri.
Ákall til þjóðarinnar - Davíð Oddsyni vikið frá störfum Eina leiðin til að þjóðin haldi sjálfsvirðingu sinni nú er að hún sameinist í fjölmennum mótmælum með ein skýr skilaboð til stjórnmálamanna. Skýr skilaboð um að þjóðinni stendur ekki á sama, skilaboð um að hún sé þátttakandi en ekki þolandi í þeirri atburðarás sem nú fer í hönd. Skýr skilaboð sem valdhafar geta brugðist við strax, að Davíð Oddssyni verði vikið úr starfi Seðlabankastjóra.
Davíð Oddson ber mesta pólitíska ábyrgð á því að bankarnir voru einkavinavæddir á sínum tíma og hleypt í útrás með veikburða eftirlitskerfi. Síðan stillti hann sér upp til að fylgjast með þeim sem Seðlabankastjóri án faglegar þekkingar. Með röð mistaka í hagstjórn Seðlabankans undir forustu Davíðs og ótrúlegan einleik hans síðustu vikur er þjóðin gjaldþrota, rúin trausti og virðingu í alþjóðasamfélaginu.
Nýjir tímar - Vertu þáttakandi, ekki þolandi
http://www.nyirtimar.com/
p.s. þetta er ekki á mínum vegum en ég styð þetta heilshugar og ætla að mæta... það er kominn tími til að sýna að við látum ekki troða meira á okkur.
Rekin úr búð í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:20 | Facebook
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 509214
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
- ADHD
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Alexandra Briem
- Andrés Magnússon
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ari Sigurðsson
- Baldvin Björgvinsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Bara Steini
- Bergur Sigurðsson
- Bergur Thorberg
- Bergur Þór Ingólfsson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Binnan
- Birgir Þórarinsson
- Birna Rebekka Björnsdóttir
- Bjargandi Íslandi
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- SVB
- Brjánn Guðjónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja skordal
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Daníel Haukur
- Dorje
- Dísa Dóra
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Einar Guðjónsson
- Einar Indriðason
- Einar Vignir Einarsson
- Einar Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eldur Ísidór
- Elyas
- Elín Sigurðardóttir
- Elísabet Markúsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- Eva Benjamínsdóttir
- Eydís Hentze Pétursdóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- FLÓTTAMAÐURINN
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fríða Eyland
- Félag Anti-Rasista
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerður Pálma
- Gestur Guðjónsson
- Goggi
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Pétursson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Bergmann
- Guðjón Heiðar Valgarðsson
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur M Ásgeirsson
- Guðmundur Ragnar Guðmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðný Lára
- Guðrún S Sigurðardóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Hjálmar
- Haffi
- Halldór Sigurðsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haukur Már Helgason
- Heidi Strand
- Heilsa 107
- Heiða Þórðar
- Helga Auðunsdóttir
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Hlédís
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Hrólfur Guðmundsson
- Hulla Dan
- Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
- Hörður B Hjartarson
- Húmoristaflokkurinn
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingibjörg Helga
- Ingibjörg SoS
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Isis
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakob Smári Magnússon
- Jakob Þór Haraldsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jens Guð
- Johann Trast Palmason
- Jóhannes Ragnarsson
- Jón Bjarnason
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- DÓNAS
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ketill Sigurjónsson
- Ketilás
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristbergur O Pétursson
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Kristín Dýrfjörð
- Kristín Snorradóttir
- Krummi
- Kári Harðarson
- Landvernd
- Laufey Ólafsdóttir
- Lovísa
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lýður Árnason
- Mafía-- Linda Róberts.
- Margrét Guðjónsdóttir
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- Margrét Sigurðardóttir
- Markús frá Djúpalæk
- María Kristjánsdóttir
- María Pétursdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Morgunblaðið
- Myndlistarfélagið
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- Neo
- Oddi
- Paul Nikolov
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Pálmi Gunnarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rannveig H
- Ransu
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samstaða - bandalag grasrótarhópa
- SeeingRed
- Sema Erla Serdar
- Sigga
- Signý
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurgeir Þór Hreggviðsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Sigurður Hrellir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Skuldlaus
- Snorri Sturluson
- Soffía Valdimarsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stríða
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinn Hjörtur
- Sveinn Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Swami Karunananda
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sævar Einarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- TARA
- Tilkynning
- Tinna Jónsdóttir
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Tína
- TómasHa
- Valgeir Skagfjörð
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vilborg Eggertsdóttir
- Vilhelmina af Ugglas
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Vinir Tíbets
- Viðar Eggertsson
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Vér Morðingjar
- Vésteinn Valgarðsson
- arnar valgeirsson
- fingurbjorg
- hreinsamviska
- leyla
- molta
- oktober
- Einhver Ágúst
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Ár & síð
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásgerður
- Ásta Hafberg S.
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólöf de Bont
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Arnórsson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Þröstur Unnar
- Þór Jóhannesson
- Þór Saari
- Þórhildur og Kristín
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Andrés.si
- Anna Karlsdóttir
- Anna Margrét Bjarnadóttir
- Ari Jósepsson
- Aron Ingi Ólason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Barði Bárðarson
- Bergþór Gunnlaugsson
- Billi bilaði
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Kristjánsson
- Bogi Jónsson
- brahim
- Daði Ingólfsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Dóra litla
- Dúa
- Einar Björn Bjarnason
- Elsabet Sigurðardóttir
- Esther Anna Jóhannsdóttir
- Frosti Sigurjónsson
- Grétar Eiríksson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Héðinn Björnsson
- Hreyfingin
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Pétur
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Jónas Bjarnason
- Jón Kristófer Arnarson
- Jón Lárusson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Lúðvík Lúðvíksson
- Madhav Davíð Goyal
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Morten Lange
- Óðinn Kári Karlsson
- Ólafur Eiríksson
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Rannsóknarskýrslan
- Rúnar Freyr Þorsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Vaktin
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
Athugasemdir
http://www.nyjirtimar.com/
.... og algert lágmark að stafsetja rétt vefslóðina.
Látum vera með villur í textum
www.nyirtimar.com hefði verið berta
Gamli kennarinn (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 18:06
ég límdi þetta bara inn á vefinn og get varla talist ábyrg fyrir stafsetningavillum en bendi þér á að ef þú hefur ekkert betra að gera en að nöldra að nöldra við þá sem eru að skipuleggja þetta.
Birgitta Jónsdóttir, 16.10.2008 kl. 18:17
hlynur auðvitað þarf að spúla út bæði í seðlabanka sem og annarsstaðar - ef þú vilt gera eitthvað til að breyta því ástandi sem hér er - gerði þá eitthvað annað en að nöldra... ég er komin með upp í kok af fólki sem hangir í smáatriðum á meðan það er verið að taka þjóðina í óæðri endann og getur ekki gert neitt uppbyggilegra en að kvarta yfir þeim sem þó eru að gera eitthvað
Birgitta Jónsdóttir, 16.10.2008 kl. 18:19
Davíð hefur með athafnaleysi sínu að tryggja og treysta gjaldeyrisvarasjóð landsins valdið okkur gríðarlegu tjóni. Einnig hefur eftirlit með bönkum brugðist og sjálfsagt ber Davíð einnig mikla ábyrgð á að bindiskylda var nánast strikuð út.
Legg því eindregið til að sama aðferð verði viðhöfð og þegar Napóleón var gerður óskaðlegur með því að koma Davíð og Kó á eyju. Sjá: http://mosi.blog.is/blog/mosi/entry/675581/
Gangi ykkur vel við mótmælin á Austurvelli. Verð fjarri - því miður.
Kveðja
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 16.10.2008 kl. 18:48
Á visi.is má lesa eftirfarandi skilaboð frá hópi fólks sem ætlar að mótmæla á Austurvelli á laugardaginn;
„Davíð Oddsson ber mesta pólitíska ábyrgð á því að bankarnir voru einkavinavæddir á sínum tíma og hleypt í útrás með veikburða eftirlitskerfi. Síðan stillti hann sér upp til að fylgjast með þeim sem Seðlabankastjóri án faglegar þekkingar. Með röð mistaka í hagstjórn Seðlabankans undir forustu Davíðs og ótrúlegan einleik hans síðustu vikur er þjóðin gjaldþrota, rúin trausti og virðingu í alþjóðasamfélaginu,"
Ég er ekki par hrifin af DO en finnst þó að hér verði aðeins að staldra við. Hann á ekki að bera meiri pólitíska ábyrgð fremur en aðrir í hans flokki né þeim flokkum sem setið hafa með sjálfst.fl. í núverandi ríkisstjórn og þeirri síðustu, þó honum finnist hann vera stór og mikill karl þá var hann nú ekki svo stór að geta ráðið þessu öllu einn. Ég er sammála því að hann sé ekki að standa sig sem seðlabankastjóri og ætti því að fara frá í því embætti en það á ekki að refsa honum eða kenna honum einum um hvernig hefur farið í útrásinni, það er of mikil einföldun.
Það á svo að koma í veg fyrir það í framtíðinni að ríkisstofnanir eða sendiráðsembætti séu notaðar sem geymslustaðir fyrir útbrunna stjórnmálamenn hvaðan sem þeir koma. Það á einfaldlega að ráða í störfin eftir auglýsingu, hæfasta fólkið á hverjum tíma.
Við verðum að gæta þess að fara ekki á nornaveiðar og nafngreina sérstaklega einhverja fáa einstaklinga í þessum útrásarhópi seka þegar í raun er um ca. 100 manna útrásarhóp að ræða og hluti af þeim saklausir af öllu saknæmu. Í þessum hópi er að finna bankastjóra, Alþingi og Ríkisstjórn, seðlabankastjórana, fjármálaeftirlitið ofl.
Í sjónvarpinu, Kstljósi, var farið yfir feril útrásarinnar og rætt við marga sem í dag standa í björgunaraðgerðum. Það var skrýtið að sjá suma þar lofa þessa útrás sármóðgaðir yfir hrakspám greiningadeilda erlendra banka um bólu sem gæti sprungið en sitja svo í þeirri stöðu nú að bólan sprakk og þeir að reyna að bjarga einhverju.... ég hafði nú á orði að RÚV gæti sparað sér útgjöld við áramótaskaup, þetta yfirlit var eins og eitt slíkt skaup.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar og munum að allir eru saklausir uns sekt er sönnuð en þá á að taka á þeim aðilum og gera upptækar eigur þeirra sem hafa hugsanlega verið fengnar með ólögmætum hætti en ekki fyrr.
Ragnhildur (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 20:50
Dabbi er auðvitað holdgervingur. það þarf að sópa honum burt ásamt mörgum öðrum
Brjánn Guðjónsson, 16.10.2008 kl. 21:11
ég vil nú bara aðeyns koma því að, að Davíð Oddsson hefur ekki neitt að gera í því embætti sem hann er í!!
Allt sem hann gerir þessa dagana og síðustu misseri er bæði landi og þjó til skammar og bætir ekki ímynd þjóðar sem á í erfiðleikum eins og við erum að ganga í gegnum núna.
Davíð er einn af þeim sem kom mestum látum af stað um daginn í sambandi við bretana he he en ég verð að hætta núna vegna þess að ég fæ hausverk þegar ég hugsa um Davíð!! einskonar ofnæmi.
Tóti Ripper
Þórarinn Sigurður Andrésson, 16.10.2008 kl. 21:32
Voðalega verður sorglegt að horfa upp á ykkur mótmæla á laugardaginn. Þið sjáið ekki hvað er í gangi, haldið að þetta sé bara einhver kreppa.
Thee, 16.10.2008 kl. 22:18
Ni "riksdemostranter" löper som tikar - av drift och utan reflektion!
S.H. (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 22:54
Skaðinn er skeður...
Hildur Helga Sigurðardóttir, 17.10.2008 kl. 05:50
Sæl Birgitta!
Er fyllilega sammála þér en ég varð fyrir gífurlegum
vonbrigðum með Dr. Gunna í Silfrinu í gær þar sem hann
lýsti því yfir að hann hafi nú ekkert meint með því að setja nafnið sitt undir samtökin, bara verið að lána það? Hvenær á þessum fíflagangi að linna? Hvað er maðurinn að hugsa? Ítök fjölmiðla eru svo sterk að hann lýsir frekar frati á mótmælin sem hann skrifar undir til að þóknast yfirmönnum sínum og halda vinnunni. Ef þetta er ekki lýsandi dæmi þess hvernig málum er háttað hér á landi þá veit ég ekki hvað. Hann ætti að skrifa skammarpistil um sig sjálfan í næstu bakþönkum ef hann hefur þá einhverja bakþanka, sk. siðferðiskennd, þar að segja? Fólk sem skrifaði undir nafnalista Nýrra tíma á netinu sem var á spam formi er ekki ánægt. Þeim lista verður að eyða og byrja upp á nýtt. Hér á landi ríkir engin mótmælahefð frekar en umræðuhefð sem aðrar vestrænar þjóðir hafa tileinkað sér og þróast öldum saman. Legg til að menn hætti að bulla í fjölmiðlum, fari að tileinka sér hefðir annara þjóða sem vita hvað lýðræði er og hvaða verkfæri við almenningur höfum til að rétta bátinn við, áður enn han sekkur endanlega og láti verkin einu tala. Slík framkvæmd kallast því ágæta nafni : Lýðræði!
Kjörkuð (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 15:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.