Leita í fréttum mbl.is

NÝTT: Glitnismyndband úr smiðju Jóns Jónssonar

Sömu aðilar og gerðu hin stórsnjöllu FL Group myndbönd færa okkur Glitni 1
Verð að viðurkenna að samúð mín gagnvart gulldrengjunum fer æ þverrandi
 

mbl.is Hvetur hluthafa Glitnis til að samþykkja tilboð ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Blame is the name of the game núna.

Er ekki öllum sama ?

Eru þessir feðgar betri eða verri en hinir feðgarnir ?  Who cares ? 

Hvorir eignast Ísland þegar upp er staðið ?

Eru búrókratarnir í Brussel ekki skástir þegar upp er staðið ? 

Hildur Helga Sigurðardóttir, 4.10.2008 kl. 04:11

2 Smámynd: Dunni

Flott myndbnd og passar vel við endursögn Geirs H sem hann kallaði stefnuræðu sína.

 Sammála Hildi Helgu. Sennilega liggur björgunarhringurinn í Brussel. En við þurfu örugglega að hafa mikin viljastyrk til að svamla í áttina að honum eftir að hafaborist með straumnum í þveröfuga átt.

Dunni, 4.10.2008 kl. 08:24

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Flott myndbönd, en getur einhvr svarð hver þessi hugsjónamaður Jón Jónsson er sem gerir þau?  Það er nefnilega athyglisvert um hverja þau fjalla ekki.

Magnús Sigurðsson, 4.10.2008 kl. 10:34

4 Smámynd: Calvín

Ég býst við það sé hægt að gera svona myndband um allan viðskiptabanka okkar, því miður.

Það sem skiptir núna máli er að allir þessir sem eru í háu stöðunum með háu launin fari að vinna fyrir kaupinu sínu. Ef þeir treysta sér ekki til þess eiga þeir að hleypa öðrum að sem treysta sér í að leysa vandann.

Calvín, 4.10.2008 kl. 13:25

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þegar sýnt var í kvöldfréttum skoðanakönnun um traust almennings á bönkunum: sagði 7 ára sonur minn, "ég treysti engum þeirra".

Það er ekki að ástæðulausu, enda hefur límmiði úr smiðju Sigga pönk skreytt heimilið um langt skeið sem segir: "bankanum þínum er sama um þig. Ég þurfti auðvitað að reyna að útskýra þegar hann varð læs, hvað þetta þýddi. 

Ég treysti ekki þessu fólki og ég veit svei mér þá ekki hvort að Brussel sé lausn, enda er ég ekki forspá og held að Brussel bræðingur fari afar mikið eftir hvernig við sjáum okkur í framtíðinni. Það sem þarf fyrst og fremst að breytast hér er hugarfar fólks. Virðist sem fólk hafi ákveðið að það þyrfti að í stað aðhalds að kaupa sér lífsnauðsynlegt drasl á korputorgi í morgunn. 

Er að berjast við að hafa smá trú á þessari þjóð en það er bara alls ekki auðvelt. Fólk virðist vera háð neyslunni og kannski höfum við bara gott af kreppu til að fólk kannski að læra að smá þakklæti fyrir þau veraldlegu gæði sem við höfum búið hér við.

Birgitta Jónsdóttir, 4.10.2008 kl. 20:40

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

sá að myndbandið er kennt við ákveðinn Sullenberger...

Birgitta Jónsdóttir, 4.10.2008 kl. 20:42

7 Smámynd: Ásgerður

Það er eins og það sé búiða að taka út myndbandið ´

Mig langar að sjá það líka,,,ef einhver veit slóðina,,,

Ásgerður , 5.10.2008 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.