Leita í fréttum mbl.is

Af sápuóperum í daglegu lífi kameljónsins

Það hefur oft verið sagt um lífshlaup mitt að það minni einna helst á fremur illa skrifaða sápuóperu og svo sem margt sem gæti rökstutt það. Hér áður fyrr fannst mér þessi sápuóperu tilfelli nánast óþolandi og næsta víst að ég ornaði mér við elda sjálfsvorkunnar oft á tíðum þegar þessi tilfelli komu upp:)

Sápuóperuplottið sem ég stend frammi fyrir í dag er þannig háttað að sjö ára sonur minn kemst ekki í skóla í okkar ástkæra vesturbæ vegna þess að skólastigið hans er sprungið og það er bara ekki pláss fyrir eitt barn í viðbót nema í þeim skóla sem hann getur ekki sótt vegna eineltis og vanlíðunar. Eina lausnin sem Menntasvið hafði fyrir okkur eftir árangurslausar tilraunir að fá pláss fyrir hann í smærri skólunum var að senda hann aftur í það umhverfi sem veldur honum vanlíðun og átti ég þá jafnframt að svíkja barnið og senda hann aftur þangað... -Þvílík steypa. 

AlsællÉg sótti um með góðum fyrirvara, strax í febrúar en það er svo troðið í hans bekkjastig að mér finnst furðu sæta að skólinn láti þetta yfir sig ganga. Engan skal þó furða að svona sé ástatt um skólamál borgarinnar eða menntamála almennt, enda kostar sitt að hafa 4 borgarstjóra á launum. Ég skora á þessa borgarstjóra sem ekki eru lengur í vinnunni að afþakka biðlaun sín. Það er eitthvað svo siðlaust að þiggja peninga fyrir ekki neitt þegar fólk er ekki á flæðiskeri statt og grunnþjónusta í molum.

Ég á því enga aðra úrkosti en að senda hann í einkaskóla, fjarri hverfinu okkar og fjarri vinum hans.

En það tekur allt tíma og því er ég með barnið enn heima og veit enn ekki hvenær hann fær að setjast á skólabekk. Ég verð að segja að úrræðaleysi í grunnþjónustu er ekkert einsdæmi og ég heyri stöðugt sögur af fólki sem á það reglulega erfitt og hefur nánast engin úrræði og allt þeirra líf hangir á þræði sem misfaglegt fólk heldur á og tilvera þeirra er bundin dyntum borgarstarfsmanna. Fólkið sem vinnur í borginni okkar á ekki sjö daga sæla, það er stöðugt verið að skipta um stefnur og yfirmenn. Illa tekst til að halda fólki í starfi þar sem engar lausnir eru að finna og á hverjum bitnar þessi óráðsía? Við vitum það öll: börnum, gamalmennum og þeim sem þurfa á stuðning að halda í þessu óvelferðarsamfélagi. 

Það sem er auðvitað ömurlegast við þetta allt er að maður getur ekki gert neitt til að breyta þessu fyrr en um næstu kosningar og satt best að segja þá veit maður ekki hvað það mun taka langan tíma að laga allt það sem hefur úr skorðum farið - grunnþjónustan er götótt og fúin og í mínum huga er það undirstaða borgarmála að sjá til þess að við fáum það sem við borgum fyrir með sköttum og gjöldum. 

Það sem er klikkaðast við þetta allt saman er að maður óskar þess núna að hafa ekki beðið um hjálp því sú hjálp sem ég átti að fá hefur aðeins gert málin sýnu verri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sendi þér innilegar samúðarkveðjur vegna þessa.  Ekkert er eins slítandi og að þurfa að berjast við kerfið vegna barnanna sinna.  Þegar þeim líður illa, þá erum við sjálf í erfiðleikum.  Það er svo sárt að horfa upp á börnin sín vansæl.  Vonandi færðu úrlausn þinna mála Birgitta mín.  Og já vonandi breytast aðstæður ef og þegar hægt verður að koma þessum spilltu sjálfstæðismönnum burtu frá kjötkötlunum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2008 kl. 10:25

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta á ekki að eiga sér stað en ég veit að þitt mál er eitt af mörgum.

Ég vona svo innilega að þetta leysist Birgitta mín, sem allra fyrst, bæði þér og drengnum þínum til hamingju.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.8.2008 kl. 11:24

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Elsku eðalkonur.... gott að vita af ykkur í tilverunni:)

Birgitta Jónsdóttir, 29.8.2008 kl. 11:34

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

ég hef ekki heyrt meira af þessari plötu en almenningur og get því lítið tjáð mig um hana í heild sinni

ég get ekki sagt að margir af þessum söngvurum höfði til mín en þeir höfða til margra og ánægjulegt ef fleiri kynnist lögunum hennar mömmu:)

ég held að vísnavinir séu horfnir af yfirborðinu... flestir orðnir skallapopparar... lol... djókur... ég var aldrei mikið fyrir vísnavini eða þá tónlist sem þar var spiluð - var meira fyrir almennilega róttækni og pönk á þessum tíma...

en allt er þetta smekksatriði og öllum frjálst að njóta lífsins útfrá þeirra eigin hjartans sannfæringu;)

Á hvaða útvarpsstöð var þetta viðtal við Eyjólf...?

Birgitta Jónsdóttir, 29.8.2008 kl. 22:07

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

ég skil þig mætavel - ég á við slíka sérvisku að stríða:)

annars þá fannst mér allir sem sungu á minningartónleikunum gera það af slíktri einlægni og virðingu fyrir lögnum að ég var stórhrifin... er einmitt að fara að liggja yfir upptökunum og sjá hvort að maður hafi burði í að fara í plötuútgáfu á næsta ári:)

Birgitta Jónsdóttir, 29.8.2008 kl. 22:20

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Það klúðraðist því miður að fá pro upptöku af tónleikunum en ég held að það væri hægt að taka saman efni með mömmu sem gæti spannað heilan dvd disk hef sett slatta af efni sem og bróðir minn Jón Tryggvi inn á youtube

Birgitta Jónsdóttir, 29.8.2008 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband