Leita í fréttum mbl.is

Af hverju þarf að borga tolla af póstsendingakostnaði?

Þegar ég var fyrst að kynna mér amazon fyrir margt löngu gerði ég þau mistök að kaupa mér notaða bók og láta senda hana til Íslands. Bókin kostaði 300 krónur en póstburðagjöld voru ca 900 krónur. Ég þurfti að borga tolla af póstburðagjöldum þannig að verðið á bókinni var orðið eins og um nýja bók væri að ræða út úr búð í uSAnu. 

Mér fannst þetta svo undarlegt að ég taldi um mistök væri að ræða og hringdi í tollinn og fékk að vita að þetta væri bara svona.

Eru þetta samt lögleg gjöld? Ég man ekki til þess að hafa þurft að greiða samskonar gjöld þar sem ég hef búið erlendis. 


mbl.is Vill fella niður tolla og skatta af ódýrustu pökkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

1200 kall var þinn eiginlegi kostnaður við bókina, enda greiddirðu söluaðilanum alla upphæðina, var það ekki?  Þannig virkar þetta.

Ef ég myndi rukka þig fyrir póstsendingarkostnað hér í minni verslun og færi svo út á pósthús og póstlegði þá þyrfti ég að rukka þig um 24,5% vsk ofaná póstkostnaðinn minn, því ég er að endurselja þá vöru (þó hún sé ekki með vsk úti á pósthúsi).  Svona er lífið flókið (-:

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 13:58

2 identicon

En Bragi, hversvegna á ég þá ekki að borga vask af frímerkinu á bréfum sem erlend fyrirtæki, sem ég er í viðskiptum við, senda mér?

Brjánn (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 15:03

3 identicon

Af því viðkomandi fyrirtæki er búið að borga söluskatt af frímerkinu í viðkomandi landi.

Íslandspóstur fær síðan þóknun frá póstfyrirtækinu hinum megin ef þeir ná að bera bréfið út á ákveðnum tíma... og heldurðu ekki að Ríkið fái einhverja skattupphæð frá þeirri þóknun? Ég þori næstum að veðja því... þeir fá alltaf sitt (-:

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 15:35

4 identicon

Eitt sinni keypti ég hjá amazon.com bók sem kostaði 1 sent, þ.e. einn hundraðshluti úr dollar.  Þetta var á hlekk sem heitir "used and new".  Sendingakostnaðurinn var ca. 10 dollarar (gengið þá var u.þ.b. 65 kr.) og ofan á þetta voru þessi gjöld sem íslenska ríkið leggur á, þannig að bókin komin til mín kostaði í það heila ca. 1200 kr.  Mér fannst þetta frekar kostulegt.  En þetta er hins vegar löglegur gjörningur.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 22:07

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Þetta er eitt af því fáránlega sem við þurfum að upplifa fyrir það eitt að búa á afskekktri eyju í Atlantshafinu. Ég hef einmitt búið erlendis og fengið hluti senda þangað án þess að þurfa að greiða einhver gjöld fyrir, því almenn séð er það sendandi sem borgar en ekki viðtakandi.

Eitt sinn fengu börn mín jólagjöf fað utan sem ég gat ekki  leyst út öðruvísi en að borga um kr. 5000,- fyrir. Mér fannst það frekar súrt.

Lögin ættu að ekki ætti að þurfa að borga tolla, skatta og tollvörugjald af vörum sem kosta t.d. undir kr. 10.000 og eru augljóslega ætluð til einkanota en ekki í endursölu.

Hrannar Baldursson, 18.8.2008 kl. 22:33

6 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Ég er sammála þessu. Þessi tollalög gera mig alveg fokillan.

Eini flokkurinn sem er að ræða það að afnema tolla hér á landi er Sjálfstæðisflokkurinn.

 ..kjósa rétt, kjósa frelsið!

Viðar Freyr Guðmundsson, 22.8.2008 kl. 04:43

7 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

en hvað er XD eiginlega búið að vera við völd lengi án þess að fella þessi fokking gjöld... ég er ekki beint að finna fyrir miklu valfrelsi þessa dagana...

Birgitta Jónsdóttir, 22.8.2008 kl. 09:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 508759

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband