Leita í fréttum mbl.is

Tannrótarbólgan sem lagði mig að velli

Ég er búin að vera eins og drusla í heilan mánuð - alltaf eitthvað slöpp og hitasækin. Komst svo loks í gær að ástæðunni: tannrótarbólgusýkingarskrímsli hafði laumast í gegnum klakatönnina mína. 

Ég átti reyndar ekki að fá tíma fyrr en í september en kraftaverksfyrirspurn minni var svarað í gær og ég fékk að hitta eina af uppáhalds frænkum mínum sem mundaði bora og sprautur og hjakkaði á rótarskömminni eins og brjáluð væri svo ég myndi sleppa við að taka fúkkalyf. Ég var orðin svo aum að ég næstum farin að grenja þegar deyfingin komst loks inn fyrir bólgna taugaenda. En ég var vafinn inn í mjúkt bleikt teppi og fékk smá vorkunn frá mínum yndislega tannlækni.

Mætti svo heim með þrefalda deyfingu og íbúfen og stalst til að sofa ekki en liðast um eins og þokuslæða og vera óendanlega þakklát fyrir að hafa ekki sýkingaróværuna að lama úr mér alla löngun til að skrifa.

Ég er ein af þeim sem er alltaf óskaplega ánægð að hafa efni á því að fara til tannlæknis og finnst alveg ótrúlega furðulegt að tennur og munnmál séu ekki hluti af því sem fellur undir skatta þá sem ég borga í kerfið. Það er nánast eina læknaþjónustan sem ég nota eitthvað. Og ég upplifi með sanni að tannvernd er ekki síður hluti af almennri heilsuvernd en aðrir líkamshlutar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jæja gott að þú ert að hressast af þessu, ekki gott að fá svona

Já, það er skrítið með tannlæknakostnaðinn hér á landi.  Óheyrilega dýrt.  Tala nú ekki um tannréttingarkostnaðinn sem er að sliga marga.

Góða helgi.

alva (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 18:57

2 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Það var athyglisverð sjónvarpsfrétt um skelfilegt ástand tannheilsu skólabarna á Íslandi í gærkvöldi.   Hún virðist hjá óhugnanlega stórum hópi verða orðin á borð við það sem tíðkast meðal götubarna í fátækustu löndum heims.

Man líka eftir fyrirsögn á viðtali við -þá- nýkjörinn formann Tannlæknafélagsins, fyrir nokkrum árum, þar sem hann setti fram þá RÓTtæku fullyrðingu að "tennur væru hluti af mannslíkamanum".

Miðað við "stefnuna" í þessum málum mætti ætla að svo væri ekki.

Gangi þér vel að berja niður tannrótarbólgudrauginn, Birgitta mín. 

Hildur Helga Sigurðardóttir, 16.8.2008 kl. 05:14

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Núna loksins er draugurinn horfinn á braut og ég að verða eins og ég á að mér að vera...

Hvernig getur maður knúið á um breytingar í þessu lasna samfélagi okkar? Ætti maður að stofna tannvinafélg:) og krefjast þess að tennurnar yrðu viðurkenndar sem hluti af líkamanum?

Birgitta Jónsdóttir, 16.8.2008 kl. 08:34

4 Smámynd: Hansína Hafsteinsdóttir

Hugsið ykkur að tannheilsa barna í svona ríku landi á 21 öldinni skuli vera háð efnahag foreldra og því hvort þeir vilja yfirhöfuð eyða í tannlækna.

Hansína Hafsteinsdóttir, 16.8.2008 kl. 08:52

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þetta er auðvitað fyrir neðan allar hellur og það ætti að vera búið að breyta þessu kerfi fyrir löngu síðan. Ástandið var mun betra þegar það voru skólatannlæknar en það var lagt niður, veit eiginlega ekki af hverju.

Er ekki kominn tími til að fólk hætti að láta traðka svona á sér og fari að gera eitthvað RÓTtækt:)

Birgitta Jónsdóttir, 16.8.2008 kl. 08:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband