Leita í fréttum mbl.is

Að vera í fílabeinsturni og komast upp með það

Það er mjög mikilvægt að almenningur hafi aðgang að gjafsókn - ég þurfti eitt sinn að nýta mér gjafsókn - þegar maðurinn minn heitinn hvarf þurfti ég að sækja mál um það hvort að hann væri látinn eður ei 6 mánuðum eftir að hann hvarf. Sem í sjálfu sér er afar bagalegt og vont að þurfa að gera í miðju sorgarferli. Finnst reyndar alveg furðulegt að lög um mannshvörf séu enn alfarið byggð á þeim forsendum að sjómenn hverfi í hafið og að ekkjurnar hafi aðgang að stórfjölskyldu til að létta undir fjárhagslega. Ef ég hefði ekki haft aðgang að gjafsókn á sínum tíma þá hefði ég þurft að taka lán til þess. Fólk sem er tekjur í kringum 200.000 á mánuði er sennilega ekki fólk sem á mikið afgangs til að spara. 130.000 tekjumarkið er svo algerlega út takti við raunveruleikann að maður spyr sig hvort að BB sé hæfur til sinna starfa. Maðurinn hefur komist upp með að vera allt of lengi í sínum fílabeinsturni og lítið farið fyrir að hans störf hafi skilað einhverju til þeirra sem hann er að vinna fyrir. 

Gjafsókn er líka mikilvæg þeim sem eru að vinna að umhverfisvernd og þeim sem lögregla hefur brotið á þegar til mótmæla hefur komið. Dæmið með Ólaf Pál frá Saving Iceland og leikhús fáránleikans í kringum það sýnir glöggt að full þörf er á að fólk eins og hann hafi kost á að nýta sér gjafsókn þegar það lendir í svona fáránlegum aðstæðum sem geta farið á hvaða veg sem er - því dómar hér eru oft æði undarlegir. 

Yfir og út - er að fara til Venezúela að lesa ljóð um Tíbet fyrir Hugo:) 

 


mbl.is Þrengt að réttinum til gjafsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Sæl Birgitta. Ertu í alvöru að velta því fyrir þér HVORT BB sé hæfur? Þetta er dæmigerð fasísk hugsun, þeas,  binda höft og kúgun í lög og segja svo "hendur mínar eru bundnar af lögunum". Það þarf að taka á þessari svartstakkaáráttu hjá lægstvirtum dómsmálaráðherra. Hann er einfaldlega ógn við lýðræðið.

Haraldur Davíðsson, 18.5.2008 kl. 02:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 508789

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband