Leita í fréttum mbl.is

Smá örþrifaráð: minni á mótmælafund við kínverska sendiráðið á eftir

Þetta hefur ekkert að gera með þessa frétt... en mbl.is eða visir.is hafa ekki birt fréttatilkynninguna frá okkur um mótmælafund vegna mannréttindabrota í Tíbet sem verður klukkan eitt fyrir utan kínverska sendiráðið og ég ákvað því að nota vinsælustu fréttina til að vekja athygli á því:)

hér er fréttatilkynningin: Mótmælum mannréttindabrotum í Tíbet


Tíbet hefur verið lokað af, fjölmiðlafólki og ferðamönnum hefur verið
vísað frá landinu. Símasamband og netsamband verið rofið.
Herlögum hefur verið komið á og fólk handtekið fyrir þá einu sök að
eiga mynd af trúarleiðtoga sínum, Dalai Lama í fórum sínum.

Undanfarið hafa mikil mótmæli brotist út í Tíbet, þau mestu í sögu
landsins. Í það minnsta 1000 manneskjur hafa verið handteknar í Lhasa.
100 hafa horfið og 79 er látnir út af mótmælum þar.
Þeir sem þekkja til mannréttindabrota kínverskra yfirvalda vita að
þetta fólk mun sæta miklu ofbeldi í fangelsunum. Dæmi eru um það
að munkar hafa fremur skorið sig á púls en að þurfa að sitja undir
þeim pyntingum sem bíða þeirra í kínverskum fangelsum.

í dag laugardaginn 29. mars klukkan 13, boðum við til mótmæla fyrir utan
kínverska sendiráðið. Tilgangur mótmælana er:
að þrýsta á kínversk yfirvöld að virða mannréttindi Tíbeta og hleypa
alþjóðlegum mannréttindasamtökum inn í landið og sýna
Tíbetum stuðning í þeirra baráttu fyrir frelsi í sínu eigin landi.

Poetrix rappar um réttlæti og óréttlæti, Jón Sæmundur frumsýnir 
baráttuboli til stuðnings Tíbet. 

 


mbl.is „Fitna" fjarlægð af netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Þetta er bara klassískt dæmi um "gamla frétt". Tíbet er ekkert spennandi lengur. Það er komin ný vika, tími fyrir eitthvað annað. Sem betur fer er til fólk eins og þú sem heldur okkur sauðkindunum við efnið. Ef ég væri ekki í 3000 km fjarlægð, hefði ég viljað mæta.

Samt er það ansi skítt að birta ekki fréttatilkynninguna. Hvað græða miðlarnir á að birta hana ekki? Á ég kannski að orða þetta öðruvísi, hvern móðga þessir fjölmiðlar með því að birta hana? 

Villi Asgeirsson, 29.3.2008 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 508753

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband