Leita í fréttum mbl.is

Venjuleg manneskja

Ég vil bara minna þá á sem hafa eitthvað verið að kvarta yfir því að mótmælin séu ekki nógu vel auglýst að ég er bara venjuleg manneskja, í fullri vinnu, ásamt því að vera sjálfstæð móðir með skrilljón hliðarverkefni. En það þýðir ekki það að ég geti ekki gert eitthvað. Þeir sem eru ekki sáttir við heiminn eins og hann er, hvort heldur það sé í heimahögum eða annarsstaðar hafa alltaf þann valkost að gera eitthvað. Ef fólk er sátt í hjarta sínu og lifir í paradís, þá væri fallegt ef það myndi nota orku sína í að hjálpa öðrum. 

Enginn er eyland. Við erum öll tengd á einn eða annan máta og sameiginleg velferð okkar er á sama tíma velferð okkar persónulega. Það hefur oft verið sagt að það vanti samfélagsvitundargenið í okkur Íslendinga og ég held að það sé nokkuð til í því. Það er mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að við öxlum öll ábyrgð á heiminum í kringum okkur og það geta allir fundið sinn farveg til að gera heiminn okkar betri. Sumir skipuleggja meðmæli með friði, sumir huga að þeim sem þjást í okkar samfélagi, aðrir rækta fjölskyldu sína og enn aðrir þrýsta á þá sem eru í stjórnunarstöðum að nota sín áhrif og völd til góðs.

Engin leið er réttari eða rangari en önnur. Aðal atriðið er að gera eitthvað. Ekki láta sjónvarpið eða doða óttans stela lífinu frá okkur. Við höfum óendanlega mikla möguleika að laga það sem hefur farið úrskeiðis á þessari jörð. Nýtum okkur þann rétt sem við höfum... hvort heldur það sé til að ljá þeim sem fá hvergi hljómgrunn fyrir rödd sína vegna valdníðslu rödd okkar eða bara muna að brosa og sýna öðru fólki hlýju. 

Biturð er eitur, og fátt betra fyrir sálina en að leyfa sér að tengjast einhverjum málstað sem maður finnur í hjarta sínu að skiptir mann máli. Ég er bara venjuleg manneskja og fyrst að ég gat komið mér úr sjálfhverfunni þá ættu allir að geta það:)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig Birgitta mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.3.2008 kl. 12:24

2 identicon

Um leið og ég finn til skammar yfir því að framkvæma ekki eitthvað, eitthvað sem hjarta mitt finnur að ég verði að gera, finn ég til þakklætis til þín,yfir því að finna skilning á því sem ég þó geri.   Birgitta, svo fremi sem ég finni lausn á því sem hindrar, mun ég standa með þér á mánudaginn!  Þetta er átakanlegt ástand, og óásættanlegt, sem hluti af (alheims)samfélagi ber mér skylda...

Takk fyrir að minna mig svona kærleiksríkt á...

Kærleikskveðja,

Bára

Bára (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 02:04

3 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Fallegur pistill hjá þér.

Heimurinn væri betri ef fleiri létu sig málin varða á sama hátt og þú gerir.

Kristbjörg Þórisdóttir, 30.3.2008 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband