Leita í fréttum mbl.is

Er kínverski sendiherrann siðblindur eða heilaþveginn?

Við ætlum að kíkja í heimsókn til sendiherrans trúverðuga á laugardaginn kemur klukkan 13. Erum að skella saman skemmtilegri dagskrá og svo mun viðra vel til meðmæla með friði, mannréttindum og þess háttar. Ég hef verið að lesa fréttir frá hinum og þessum fjölmiðlum og þetta áróðurmyndband er bara sorglegt og siðlaust, því það er svo fjarri sannleikanum.

Hér eru nokkur myndbönd af youtube frá fréttamönnum sem voru á staðnum og eru ekki þátttakendur í kínversku áróðursmaskínunni. Ásamt sögu Tíbet, viðtöl við munka, og fleira sem ætti að gefa aðra mynd af þessu öllu... Endilega ef þið hafið ekki séð kvikmyndina Kundum, þá mæli ég með henni, alveg mögnuð sem og æviminningar Dalai Lama, friðarhöfðinginn.

 

 

 

 

 


mbl.is Skrílslæti, ekki mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Birgitta

Ég er er að gera boli sem mig langar að gefa ykkur fyrir laugardaginn. Hafðu endilega samband.

Jón Sæmundur (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 21:54

2 Smámynd: Haffi

Þarna er sannleikurinn, eitthvað fyrir Ingibjörgu Sólrúnu að skoða, í stað þess að skoða niðursoðnar áróðursmyndir frá stjórnvöldum í Kína

Haffi, 26.3.2008 kl. 22:16

3 identicon

Þetta eru bara drones, efast um að þeir eigi mikið líf itan maurabúsins.

Þetta er sama gamla sagan hjá ISG og öðrum, þarna eru peningar í spilinu og því erum við tilbúin að horfa framhjá ýmsu.

Tek fram að ég myndi ekki styðja við klerkaveldi á þessum stað, bara púra lýðræði.

DoctorE (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 23:39

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

þeir eru með ríkisstjórn í útleigð

þeir eru allir í hungurverkfalli á þessari stundu til að þrýsta á kínverja

Birgitta Jónsdóttir, 26.3.2008 kl. 23:47

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þetta sagði ISG við RÚV í gærkveldi... tekið af RÚV vefnum

"Fyrst birt: 25.03.2008 22:58

Síðast uppfært: 26.03.2008 11:32

Ísland styður stefnuna um eitt Kína

Utanríkisráðherra lýsti þungum áhyggjum af ástandinu í Tíbet við sendiherra Kína í dag. Íslensk stjórnvöld styðja þó eftir sem áður stefnu landsins um eitt Kína. Frá hernámi Kínverja á Tíbet fyrir nærri sextíu árum, hafa þúsundir verið fangelsaðar, pyntaðar og myrtar, segja mannréttindasamtök. Síðustu vikur hafa tugir látið þar lífið í óeirðum, og fjöldi verið fangelsaður.

Stjórnvöld í Peking telja Tíbet órjúfanlegan hluta Kína, rétt eins og Tævan, í samræmi við stefnu sína , eitt Kína. Þá stefnu styðja íslensk stjórnvöld. Nýliðnir atburðir breyta þar engu.

Ingibjörg Sólrún, lýsti þungum áhyggjum af ástandinu í Tíbet við sendiherra Kína í dag, og hvatti þau til þess að virða mannréttindi. Hún segir stjórnmálasamband hafa verið á milli Íslands og Kína í árabil en að horfast yrði í augu við að Kína væri ekki vestrænt lýðræðisríki og hefði aldrei verið. Að auki eru nokkur viðskiptatengsl á milli Íslands og Kína. Tævan, sem hefur sitt eigið þing, forseta, her og sjálfstæðan efnahag, hefur sótt um að komast í félagsskap fullvalda þjóða með aðild að Sameinuðu þjóðunum. Gegn því leggjast Kínverjar sem segja Tævan hluta af Kína. Undir það taka íslensk stjórnvöld."

Birgitta Jónsdóttir, 26.3.2008 kl. 23:48

6 identicon

Það fer smá í pirrurnar á mér þegar menn lýsa yfir þungum áhyggjum, er oft þannig að þá ætla menn ekkert meira að gera.

Kannski ISG lýsi yfir á einhverjum tímapunkti að hún hafi þungar áhyggjur af erlendum glæpaklíkum en við verðum að horfast í augu við að þær séu ekki íslenskar... eða eitthvað svoleiðis ha

DoctorE (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 07:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 508762

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband