Leita í fréttum mbl.is

Mótmæli boðuð fyrir utan kínverska sendiráðið í dag


pict60

Ég er að undirbúa mótmæli fyrir utan kínverska sendiráðið í dag klukkan 17. Í kvöld renna út tímamörk kínverskra yfirvalda, mótmælendum í Lhasa er gert að gefa sig fram til kínverskra yfirvalda eða sæta pyntingum. Þetta mun vera þekkt og nokkuð árángursrík aðferð hjá þeim.

Þeir vilja klína skipulagningu á mótmælum og uppþotinu sem varð í Lhasa á Dalai Lama, sem þó alla tíð hefur kallað eftir opnum samskiptum við Kína, en án árangurs. Ég held að þema fundarins ætti að vera á þeim nótum að við fordæmum ofbeldið og krefjum þá um að hleypa alþjóðlegum fjölmiðlum inn í Tíbet sem og fulltrúum mannréttindasamtaka til að athuga ástandið og aðbúnað fanga. Kínverjar voru í gær að smala fólki hús úr húsi til handtöku, þeir handtóku aðallega ungt fólk. Það er búið að loka á símasamband og netsamband til Tíbet og búið er að loka landinu. Fólk fær ekki að fara út af heimilum sínum í Lhasa og vegna þess að mótmælin voru ekki skipulögð þá var fólk ekki að hamstra matvæli. Það stendur því frammi fyrir því að svelta ef ekkert verður að gert.

Tíbet tilheyrir Tíbetum. Kína út úr Tíbet. 

Þeir sem vilja vera í sambandi við mig út af mótmælunum geta skrifað mér á birgitta@this.is, vil helst ekki setja símanúmerið mitt á bloggið... 


mbl.is Mótmæli víða um heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta eru vissulega slæm tíðindi en ég held að þú takir aðeins of djúpt í árina þarna í lokin. Meira að segja Dalai Lama fer ekki fram á "Kína úr Tíbet", útlegðarstjórnin er löngu búin að samþykkja yfirráð Kína yfir Tíbet. Málið snýst bara um hversu mikla sjálfsstjórn þeir fá sem hérað í Kína - og auðvitað ættu þeir að fá sem mesta sjálfstjórn.

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 08:10

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þetta eru þau slagorð sem Tíbetar nota sjálfir í mótmælum víðsvegar um heim, þó svo Dalai Lama geri það ekki. Sá tilvísun í það á fréttavef útlaga sem haldið er úti frá Nepal.

Birgitta Jónsdóttir, 17.3.2008 kl. 08:13

3 identicon

Enda er að myndast gríðarlega spenna á milli eldri kynslóðarinnar, sem vill halda áfram friðsamlegri baráttu og non-violence í anda núverandi Dalai Lama, og þeirra sem eru yngri og eru hreinlega að bíða eftir að hann deyji til að geta tekið til sinna ráða.

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 08:18

4 identicon

Ágæt, en vissulega gömul, grein um málið: http://www.telegraph.co.uk/news/main.jhtml?xml=/news/2005/03/15/wdalai15.xml

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 08:19

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

takk fyrir þetta Gunnar Hrafn... ég kíki á þetta á eftir, alltaf gott að fá marga fleti til að skoða í kringum öll mál:)

Birgitta Jónsdóttir, 17.3.2008 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 508757

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband