Leita í fréttum mbl.is

Skynsamleg aðferðarfræði

sem án efa hefur hjálpað mörgum að ná tökum á lífi sínu, rétt eins og öll hin fjölmörgu afbrigði 12 spora starfs gera. Það er svo grunnt í fíknareðli manneskjunnar og 12 sporin eru bara tær snilld ef fólk er tilbúið að vinna þau af heiðarleika. 

Segja má að allar fíknir þegar þær hafa náð hámarki sínu séu óhugnanlegar, því fólk virðist missa algerlega tök á mennsku sinni. Ég er óendanlega þakklát fyrir að þessi spor eru til sem valkostur fyrir fólk sem er á ystu nöf. Hef séð mörg kraftaverkin eiga sér í stað með aðstoð þessara spora:)

Það er því mikið gleðiefni þegar læknar taka þau undir sinn væng sem leið til bata fyrir sjúklinga sína.

 


mbl.is Átröskun yfirbuguð eins og fíkn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

12 spora kerfið virkar fyrir flesta.Átröskun er svo sannarlega fíkn.Takk fyrir að bregðast við símtalinu.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 12:22

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

gaman að heyra í þér Birna mín þó það hafi aðeins verið í mýflugumynd:)

Birgitta Jónsdóttir, 8.3.2008 kl. 20:18

3 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Tek heilsjugar undir með þér mín kæra enda hef ég verið svo lánsöm að kynnast þessum snilldarsporum  Ekki nóg með það heldur líka eignast gullmola sem skilja hjartað mitt

Kristín Snorradóttir, 8.3.2008 kl. 20:40

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég ætla mér að ganga enn lengra, Birgitta, og fullyrða að 12 spora kerfi AA samtakanna sé ekki einungis valkostur þeirra sem komnir eru fram á ystu nöf, heldur yfirleitt allra sem sækjast eftir jafnvægi, heiðarleika og yfirvegun í lífi sínu, burt séð frá vandamálum yfirleitt.   

Jóhannes Ragnarsson, 9.3.2008 kl. 21:06

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Sammála þér Jóhannes. Hef reynslu af þessu 12 spora kerfi þegar kemur að meðvirkni og ég hef aldrei þrátt fyrir ýmsar tilraunir fundið jafn góð verkefni til að takast á við hið daglega líf:)

Birgitta Jónsdóttir, 10.3.2008 kl. 07:16

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

þarna átti að standa verkfæri ekki verkefni:)

Birgitta Jónsdóttir, 10.3.2008 kl. 07:17

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já auðvitað er átröskun fíkn eins og hver önnur óviðráðanleg kennd.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2008 kl. 11:48

8 identicon

Veit það ekki, en sporin hjálpa oft mikið!

kveðja

Ofurskutlan

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 508760

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.