Leita í fréttum mbl.is

Moggabloggsverkfall vegna auglýsinga

Hætt að blogga, þangað til að mér verður boðinn samningur eða eitthvað slíkt, þar sem ég hef eitthvað að segja um hvort og eða hvernig auglýsingar birtast inni á mínu bloggi. Ég gæti ekki lifað með sjálfri mér ef það kæmi til dæmis Landsvirkjunar auglýsing eða Alcoa auglýsing inn á bloggið mitt, eða kjöt eða mjólk eða goldfinger.... listinn er of langur til að nokkur myndi nenna að lesa hann.
 
Ef fólk vill málefnalegri rök þá hefur hann Sigurður Þór sagt allt sem ég segja vil á sínu bloggi, nimbus.blog.is  
 
Mér finnst líka NOVA ömurlegasta fyrirtæki sem hefur rutt sér inn á íslenskan markað. Þeirra aðferðir eru svona in your face aðferðir sem fá mig til að sniðganga fyrirtækið um aldur og ævi. Kemur mér ekki á óvart að þeir skildu troða sér inn í bloggsamfélagið. Hvet ég alla sem koma hingað að sniðganga NOVA
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Sammála eins og oft áður

María Kristjánsdóttir, 11.2.2008 kl. 23:41

2 Smámynd: Andrea J. Ólafsdóttir

Hvernig væri að moggabloggarar tækju sig saman og undirrituðu áskorun til ritstjórnar að taka út þessar auglýsingar á blogginu??? ömurlegt.

Andrea J. Ólafsdóttir, 12.2.2008 kl. 22:49

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég styð það... veit ekki hversu margir bloggverjar taki þátt... virðist hafa lítil almenn áhrif í bloggsamfélaginu... þessar ömurðarauglýsingar... ég vil miklu frekar borga smá en að fá bara einhverjar auglýsingar á mitt blogg...

Birgitta Jónsdóttir, 13.2.2008 kl. 14:46

4 Smámynd: Heidi Strand

Sammála þér Birgitta.
Þegar þessi leiðindi hófst , var ég erlendis og þá gat ég ekki lesið nein blogg eða athugasemdir vegna auglýsinguna sem var beint yfir textann á tölvunni. Skorra er að hafa þá út á hlíð. Ég vildi frekar borga fyrir bloggsiðuna mína og losna við þessa ljóta auglýsingu. Svona auglýsingar virkar bara öfugt á mig.

Heidi Strand, 14.2.2008 kl. 07:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.12.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband