Leita í fréttum mbl.is

Tryggð

afiogamma

Einu sinni þegar amma var að kvarta yfir því hve afi gat verið erfiður á köflum, spurði ég hana, "af hverju skildir þú ekki bara við hann?" Þá leit hún á mig með furðusvip og sagði, "maður yfirgefur ekki veika vini sína."

Að einhverju leiti finnst mér þetta jaðra við brjálsemi, og samt fannst þér þetta eitthvað svo falleg hugsun og hefur án efa fleytt þeim yfir erfiða hjalla. Hef verið mikið að skoða mátt hugans og hve auðveldlega maður getur fallið í pyttina ef maður heldur sér ekki meðvitaður um hvað hann er mikill bragðarefur: hugurinn.

Ég er mjög hrifin af gömlu fólki. Það mætti auðsýna eldra fólki miklu mun stærri hlutverk og virðingu í samfélagi okkar. Amma hefur alltaf haldið tryggð við afa, þrátt fyrir alla hans bresti og oft á tíðum alveg svakalega undarleg samskipti. Þá var þarna einhver fegurð sem enn er til staðar þó hann sé ekki lengur meðal okkar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Já svona var lífsviðhorfið gjarnan hérna áður fyrr. Eitthvað annað en í borgarstjórninni í Reykjavík þessa dagana:)

Þorsteinn Sverrisson, 21.1.2008 kl. 19:14

2 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Er sammála þér með það að þol yngri kynslóða gagnvart erfiðleikum  er mikið minna heldur en hjá eldra fólki. Það virðist vera svo auðveld leið að skilja bara ef eitthvað bjátar á.......já og eymd er valkostur, gangi þér vel......

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 21.1.2008 kl. 22:24

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Það er alveg augljóst að trygg og trúnaður er ekki beinlínis það sem farið er eftir í stjórnmálum. Eru ekki stjórnmálin alltaf endurspeglun á ástand þjóðar?

Erum vér sem þjóð að verða eymingjar!!???

Hvar eru hetjurnar... eru þær allar á elliheimilum eða hrokknar upp af?

Birgitta Jónsdóttir, 22.1.2008 kl. 10:29

4 identicon

Sæl Bigitta.

Afi þinn og pabbi minn voru frændur, að mig minnir voru þeir systkina synir,ég man eftir að hafa komið í heimsókn til afa þíns og ömmu í Hvergerði, og þótti mér það mikill uppheft, það sem þau voru foreldar Bergþóru Árnadóttur sem var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér sem söngkona, pabbi minn og afi þinn voru miklir vinir, en pabbi minn dó lang um aldur fram, ég les alltaf bloggið þitt.

kær kveðja

Jóhanna (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 11:17

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Takk Jóhanna fyrir þessa litlu sögu:) Amma býr enn í Hveragerði en fer vonandi brátt að flytja í næsta nágrenni við mig, svo ég geti tekið hana með mér á kaffihús og notið þess að horfa á mannlífið saman...

Birgitta Jónsdóttir, 27.1.2008 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.