Leita í fréttum mbl.is

Tígrisdýr við stjórn hjá Creations

Loksins komin með nýtt stýrikerfi á fartölvuna mína. Hún var orðin skammarlega hæg og þung. Ég hef ekkert verið að sinna hennar þörf á að verða ekki algerlega úrelt. Öll forrit að hrynja eins og spilaborgir og ég í gremjukasti gagnvart vesalings vannærðu tölvunni. EN núna get ég loksins bloggað með grafískum ham. Í gamla safarí var slíkt ekki hægt, hvað þá að skella myndum með færslum án mikilla tilfæringa. Stundum var ég að nota þrjár tegundir af vöfrunum til að skítamixa öllu saman sem ég vildi setja inn. En ekki lengur. Ekkert að bögga mig og engar afsakanir til að vera ekki aðeins duglegri að tjá mig. 

Það er mikil blessun að sonur minn eldri hafi tekið við af mér varðandi tölvunördisma. Það fer aðeins í egóið mitt að hann sé orðinn klárari en ég, en það er líka gaman að sjá sama áhugann og ég hafði á þessu í upphafi netdaga.

Annars þá fæ ég aldrei nóg af því að hugsa til þess hve lánsöm ég er með krakkana mína. Algerir gullmolar.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

 en hve ég skil þig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.12.2007 kl. 00:27

2 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Hehehe... en yndislegt er að geta horft á börnin okkar dafna og jafnvel læra aðeins af þeim.

Eigðu góðar stundir mín kæra, sjáumst annað kvöld.

Kristín Snorradóttir, 11.12.2007 kl. 19:34

3 Smámynd: Jens Guð

  Þó að þú sért töluvert yngri en ég þá verðum við að sætta okkur við að unga fólkið í dag stendur okkur mun framar í tölvuskilningi/þekkingu.

Jens Guð, 13.12.2007 kl. 01:07

4 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Ég er ekki enn búin að skilja þetta með grafíska haminn. Hver er eiginlega munurinn?

María Kristjánsdóttir, 14.12.2007 kl. 06:46

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Munurinn er sá að ef ég hef ekki grafíska haminn þá get ég ekki sett inn myndir, get ekki feitletrað og eða sett inn slóðir án þess að þurfa að kunna html. Sem ég reyndar kann en það er frekar mikið aukamaus:)

Birgitta Jónsdóttir, 14.12.2007 kl. 07:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.