Leita í fréttum mbl.is

Flott mynd

Rosalega er þetta flott mynd.

Annars algerlega sammála lektornum. Finnst sumt graff bara krot en annað eins og
þessari mynd lífgar upp á umhverfið og fær mann til að staldra við á sínu
borgararki. 


mbl.is „Þetta er gjaldþrota stefna"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er tækifæri til að sýna skoðanir í verki! 

Þeim sem finnst veggjakrot fallegt og vilja fá það á sín eigin heimili, fyrirtæki og jafnvel bíla ráðlegg ég að fá sér auðkenni, græna slaufu eða guð má vita hvað og tilnefna eigur SÍNAR sem veggjakrots svæði.  Lektorinn hefur örugglega gert þetta nú þegar og Birgitta gerir það væntanlega á allra næstu dögum. 

Þeim sem er ómögulegt að láta eigur annara í friði (þ.e. eignir sem ekki eru auðkenndar sem krot vinsamleg svæði) sökum trylltrar listafíknar má virkja með 10-20 dögum í þegnskylduvinnu við að tína rusl og þrífa krot.  Til refsiminnkunar gætu viðkomandi tilnefnt sín eigin hús eða húseignir foreldra sina (með þeirra samþykki) sem veggjakrotssvæði í tiltekinn tíma.

Þetta væri einstakt tækifæri fyrir "listalíberalista" að sýna í verki að þeir virkilega standiá bak við það sem þeir segi og skrifi.

Björn (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 08:32

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Björn minn vöknuðu sumir dálítið úrillir í morgunn, hvernig væri að lesa fréttina almennilega, það sem lagt er til að það séu sum svæði merkt fyrir graff listamenn samanber þetta verk sem fylgir þessari grein. Það er ekki verið að mæla með krotinu.

Birgitta Jónsdóttir, 6.12.2007 kl. 09:10

3 identicon

Málið snýst ekki um það hvort úðabrúsa eigandinn sé drátthagur eða ekki, þetta snýst um virðingarleysi allra þeirra sem teikna vel eða illa á eigu annarra.  Þegar búið er að flokka skemmdarvargana í þá hæfileikaríku og þá hæfileikalausu þarf væntanlega að redda báðum tjáningarrými og kenna þeim umgengni.  Ekki úrillur á morgnana, þetta skeytingarleysi fer jafn mikið í taugarnar á  mér seinnipartinn.

Björn (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 10:47

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er sammála þetta er spurning um afstöðu til þessarar listar.  Ég er á því að margt veggjakrotið sé listaverk, meðan önnur eru illa gerð og til ljótkunar.  En mér finnst þetta vera ákveðin menning.  Það virðist vera að aðaldrættir í svokölluðu kroti hafi svona megin uppbyggingu, hvar í heiminum sem maður sér það.  Þó nokkuð víst sé að þeir sem þetta stunda hafi ekki farið mikið út fyrir sinn heimabæ margir hverjir.  Það ætti að rannsaka þetta miklu betur og finna orsakasamhengið þarna á milli.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2007 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 508815

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.