Leita í fréttum mbl.is

Hætt að reykja - dagur 5


Ég hef ekkert bloggað undanfarið vegna þess að ég hef verið frekar eirðarlaus og átt frekar annríkt í að gera ekkert. Ég hef tekið þá ákvörðun að blogga ekki um pólitísk málefni hér vegna þess að þau eru svo þreytandi þessi komment sem maður fær frá einhverjum Jóni Jónssyni út í bæ og jafnframt allt of fyrirsjáanleg. Er að reyna að sjá betri hliðina á fólki og það að lesa komment eftir suma sem fara sem hæst hér í moggabloggheimum fær mig til að missa vonina um að það sé til slík hlið á mannfólkinu.

Ég er búin að vera að gera skemmtilega tilraun þegar ég er úti að labba: ef ég mæti einhverjum þá fer venjulega af stað fjöldasöngur fordóma í hausnum á mér. Þegar ég finn að þau leiðindi eru að hellast yfir mig prófa ég að segja í huganum við þetta fólk sem á vegi mínum verður "gangi þér vel" og þá hverfur þessi neikvæðni í huga mér sem ég hef uppgötvað er bara ótti. Ótti er undirrót alls þess slæma í heimi hér, en hann er fáránlega auðvelt að temja. Ég er semsagt skíthrædd við fólk. Til að hætta að vera hrædd þá er besta meðalið að hugsa jákvætt til þeirra og allur ótti hverfur eins og dögg fyrir sólu, einfalt ekki satt?

Ég er nikótínfíkill eins og fimmta stigs alki. Hef reykt síðan ég var 11 ára, tók fyrsta smókinn þegar ég var 6 ára, var kominn upp í tvo pakka af prins þegar ég var 14. Hef hætt en alltaf fallist í freistingar. Nikótínpúkinn kemur ótrúlega skemmtilega skapandi hugmyndum í kollinn á mér af hverju ég ætti nú að byrja aftur. Ekkert mælir með því að ég reyki. Mamma dó úr þessu og hið sama gerði blóðbandapabbi. Hún úr krabba og hann fékk hjartaáfall. Bæði dóu þau langt fyrir aldur fram. Ég er hætta óska mér snemmbærum dauða og væri alveg til í að verða 1000 ára. Delphin trúir því reyndar að ég sé 1040 ára:) Ef það laumast að mér löngum í smók þefa ég að reykmettuðum fötum móður minnar og minni mig á hennar raunsanna ilm sem var þessari viðbjóðslykt ekkert líkur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bíddu bara þangað til þu verður háð reykleysinu, það er toppurinn en það gerist. einn dagur í einu, málið, know all about it. reyklaus ég í bráðum átta mánuði. :)

Elísabet Kristín Jökulsdóttir (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 18:57

2 identicon

Svo ertu velkomin í Heimsveldið mitt: www.heimsveldi.blogspot.com

Elísabet Kristín Jökulsdóttir (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 19:00

3 identicon

Velkomin í hóp óvirkra nikótínfíkla. Hætti 94. Bloggaði dálítið um þetta hér. Kannski gagnast það sem innlegg í baráttuna :)

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 20:18

4 Smámynd: Paul Nikolov

Til hamingju Birgitta! Ég mæla sérstaklega með Nicorette tungurótatöflum.

Paul Nikolov, 9.6.2007 kl. 23:36

5 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ooooh já, Birgitta, þessir gaurar sem þurfa að kommenta hjá fólki bara til að vera leiðinlegir. Ef ekki væri allt þetta skemmtilega fólk inn á milli þá væri þetta algerlega til að missa trú á mannkyninu, ég er sammála því. Gangi þér annars vel í reykleysinu!

Laufey Ólafsdóttir, 10.6.2007 kl. 00:13

6 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Gangi þér vel! Þetta er hægt!

Valgerður Halldórsdóttir, 10.6.2007 kl. 14:38

7 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þakka ykkur öllum fyrir að hvetja mig.... það er miklis metið:)

Birgitta Jónsdóttir, 11.6.2007 kl. 07:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 508764

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband