Leita í fréttum mbl.is

Ef að vilji er fyrir hendi þá er hægt að mynda vinstri stjórn

Finnst það skilda ISG að byrja á að fara í stjórnarmyndunarviðræður við vinstri í stað hægri. Hún sagði í öllum viðtölum og umræðuþáttum fyrir kosningar að það væri hennar fyrsti kostur og því er hún skuldbundin gagnvart kjósendum að gera eitthvað meira en að draga ályktanir af því sem hún hefur heyrt í fjölmiðlum. Finnst hennar rök fyrir því að fara fyrst í formlegar viðræður við Sjálfstæðisflokkinn ótrúverðug og vona innilega að hún standi við kosningaloforð sín. Auðvitað verður það ekki endilega auðvellt en til að halda einhverjum trúverðuleika fyrir sinn flokk þá finnst mér hún verða í það minnsta láta á það reyna með opnum huga. Þau rök að SJS hafi sagt eitthvað í hita leiksins sé ástæða fyrir þessu nýjasta útspili halda bara ekki vatni í huga mér þegar svo mikið er í húfi og raun ber vitni.

Satt best að segja þá virðist þetta vera allt eitt risastórt leikrit og ég er kannski bara svona einföld að skilja ekki leikreglurnar. Er hún ekki að fatta að í hennar höndum er á þessari stundu lykilstaðan til að koma ríkisstjórninni eins og hún leggur sig frá. Ég vona það og ég vona að hún byrji ekki á því að svíkja kosningaloforð, hvað verða þau þá mörg? Var að vona að Samfó og VG gætu byrjað nýja tíma - mikið af nýju fólki að koma inn á þing sem hefur ekki þessa erfiðleikasögu á bak við sig og því ætti þetta fólk að geta einbeitt sér af málefnum en ekki gömlum skærum. Er ekki kominn tími til að vinstri öflin standi saman? Eða ætlar ISG að leggja grunninn að því að það verði aldrei vinstristjórn hérlendis.

Reyndar er það öruggt að við erum að sigla inn í samdráttarskeið og ef til vill er ágætt að Sjálfstæðisflokkurinn axli ábyrgð af sínum verkum með því að vera í stjórn, vonandi mun þá Samfó bera gæfu til að sporna við því að það verði leyst með frekari stjóriðjuframkvæmdum. Ég er bara ekki nógu gömul til að hafa skilning á hvernig hægri og vinstri starfi saman svo úr verði góður jöfnuður, er það hægt, munu þau málefni sem sett voru á oddinn hjá Samfó fá brautargengi? Mun Samfó lenda í sömu pattstöðunni og Framsókn, með því að hafa ráðuneyti sem vissulega þarf að taka til í en þurfa að vera upp á náð og miskun fjármálaráðherra sem væru þá úr röðum Sjáflsæðisflokks?
mbl.is Steingrímur: Stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar allt of hægrisinnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég er ákaflega auðtrúa í eðli mínu:) Geri mér grein fyrir að það er mikill veikleiki. Held að ég gæti aldrei orðið stjórnmálakona vegna þessa.

Birgitta Jónsdóttir, 18.5.2007 kl. 11:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 508768

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband