Leita í fréttum mbl.is

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

enda trúarbrögð hér

Ólafur fannberg, 14.2.2007 kl. 12:27

2 identicon

´

Ég held að það sé í flestum löndum talað um frímerkjaútgafu. Allavega veit ég að maður les um og getur keypt "sonderbriefmarken"  (safnarafrímerki) í Þýskalandi, og þar er það líka talið til fréttaefnis þegar þau eru gefin út. Íslendingar gera sér líklega enga grein fyrir því hvað íslensk frímerki þykja merkileg erlendis, ég veit bara að þegar ég bjó úti og gaf þýskum frímerkjasöfnurum íslensku frímerkin sem ég fékk í pósti hér að heiman, fengu þeir undantekningalaust stjörnur í augun og þökkuðu heilshugar rausnalegheitin.    Tjahh, hvað skal segja. Frímerki hafa alltaf verið partur af söfnunaráráttu mannsins og frímerkjauppboð eru ekkert nýnæmi. Það er sannarlega leitun á eins fallegum frímerkjum og við gefum út hér á landi og það vita allir sem vit hafa á þessu máli.

ragnhildur (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 12:31

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég safnaði nú frímerkjum þegar ég var krakki og verð að segja að það eru nú til önnur lönd sem gefa út falleg og jafnvel fallegri frímerki. Mér finnst það samt furðulegt að það teljist fréttnæmt, aldrei sér maður slíkar tilkynningar um til dæmis fallegar bækur á netmiðlum landsins.

Birgitta Jónsdóttir, 14.2.2007 kl. 12:58

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Kannski er bara gúrkutíð!

Birgitta Jónsdóttir, 14.2.2007 kl. 12:59

5 Smámynd: Harpa Elín

Halló Halló Birgitta! Velkomin heim og kærar þakkir fyrir síðast :-). Ég er algjörlega sammála þér í því að ljóðakarnivalið var alveg sérstakt! :) Ævintýralegt! Ég tók fullt af myndum, meðal annars af því þegar þú varst að lesa ... ég sendi þér linkinn þegar ég hef haft tíma til að húrra þeim á netið. Allavega, ég reyndi að hafa uppi á þér á laugardeginum ... en það var bara einfaldlega of mikið af fólki ;-), eins og það átti að vera auðvitað! Það væri gaman að vera í sambandi upp á greinar eða úrvinnslu úr ferðinni, eða hugstormun um frekari tengsl Níkaragúa og Íslands á þessu sviði  : harpaelin@gmail.com

 Bestu kveðjur úr hitanum ;)

Harpa

Harpa Elín, 14.2.2007 kl. 23:48

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Gaman að heyra frá þér Harpa og takk fyrir síðast... ég dauðöfunda þig á að vera þarna úti, varð alveg ástfangin af landinu og þjóðinni. Ég verð í bandi fljótlega og hef nú þegar nokkrar hugmyndir um frekari tengsl á milli landana. Það er búið að bjóða mér að koma á næsta ári ... ætla að gera mitt til að kynna þessa hátíð sem að mínu mati og margra annarra sem voru þarna gæti orðið ein sú mikilvægasta í hinni miklu flóru sambærilegra hátíða... það er bara eitthvað við þessa sem erfitt er að njörfa niður í orð... hlakka til að sjá myndirnar. Með björtum kveðjum úr kuldanum:)

Birgitta Jónsdóttir, 15.2.2007 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband