Leita í fréttum mbl.is

Ævintýri í Níkaragva

Ég er eiginlega orðlaus eftir dvöl mína í Granada, Níkaragva. Orðlaus vegna þess að það sem ég upplifði þar var ævintýri líkast. Merkilegt hvernig þjóð sem telst til fátækustu þjóða heimsins getur haldið gleði sinni og boðið skáldum frá 46 löndum að upplifa slíkan höfðingjaskap og raun bar vitni. Okkur var tekið sem við værum stjörnur. Lennti í því að vera elt upp á hótelherbergi af litlum stúlkum sem vildu fá ljósmyndir af sér með mér og eiginhandaráritanir. Eftir mikið skraf við skáld víðsvegar að sem hafa sum hver farið á vel flestar skáldahátíðir um gervallan heiminn þá komumst við að þeirri niðurstöðu að Granada væri höfuðborg ljóðsins, reyndar er Medellin kannski enn sú sterkasta af þessum hátíðum á heimsvísu en hátíðin í Granada fylgir fast á hæla hennar. Það sem var sérstakt við hátíðina í Granada var að hvergi hef ég upplifað eins beina þátttöku frá almenningu og hvergi annars staðar hefur hátíð sem þessi verið eins einkennandi af gleði, lífi, litum og óhaminni tónlist.

Toppurinn var Karnival ljóðsins. Slegið var upp alvöru karnivali þar sem dansarar og fólk í litríkum búningum, ásamt fjölda tónlistarmanna gengu um götur Granada ásamt skáldunum. Við tróðum upp í blómum skrýddum vagni á öllum götuhornum og dönsuðum salsa á meðan á göngunni stóð. Það var eitthvað svo skemmtilega absúrd að vera í þessari iðandi kös af fólki sem beið eftir að við stoppuðum til að hlusta á ljóð.

Ég er annars svo uppnuminn, dauðþreytt og í hálfgerðu kúltúrsjokki að koma heim eftir þessa dvöl í paradís að ég get ekki skrifað meira í dag. En ég lofa að skrifa meira um þessa hátíð í vikunni og setja inn myndir frá henni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

En frábær upplifun. Hlakka til að sjá myndirnar. Skil vel að það sé skrítið að koma heim eftir svona ævintýri.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.2.2007 kl. 19:41

2 Smámynd: Hlynur Hallsson

Velkomin til landsins Birgitta og frábært að þetta gekk svona vel. Níkargva er snilldarland og sandinistarnir eru flottir. Allt frá því að Clash gaf út plötuna Sandinista hefur mig langað þangað. Stefni að því. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 13.2.2007 kl. 21:32

3 Smámynd: Guðrún S Sigurðardóttir

Gaman að sjá að þú varst ánægð með ferðina þína. Ég var líka ánægð með hana. Ferðin þín varð til þess að ég fékk tækifæri til að hitta mömmu þína og vera með henni eina kvöldstund. Það var frábært!!

Guðrún S Sigurðardóttir, 14.2.2007 kl. 14:56

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Næsta saga frá Níkaragva Hlynur verður einmitt um þorpið sem Sandista fæddist í og ég var svo heppin að fá að heimsækja... ætla að senda hana inn á morgunn, ásamt myndum....

Birgitta Jónsdóttir, 15.2.2007 kl. 13:29

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Gaman að sjá gamla barnaskólakennarann sinn hér:) og gott að þið mamma hittust... frétti að það hefði verið mikið gaman hjá ykkur...

Birgitta Jónsdóttir, 15.2.2007 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 508793

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.