Leita í fréttum mbl.is

Allir ættu að sjá mynd Al Gore

um gróðurhúsaáhrifin. Þar fær maður staðreyndir á mannamáli og í lok myndarinnar nokkur gagnleg ráð hvernig maður getur sjálfur gert eitthvað til að breyta gangi mála. En það er ekki nóg, stjórnvöld verða líka að bregðast við. Ef við höldum áfram að dæla út svona miklu magni af gróðurhúslofttegunda út í andrúmsloftið þá er hætt við að við sem mannkyn munum leiða miklar hörmungar yfir okkur. Ef ekki er brugðist við strax, þá verður það of seint.

 Eitt álver spúir út jafnmiklu magni af þessum lofttegundum og allur bílafloti landsins. Þ.e.a.s. álver á stærð við stækkað álver í Straumsvík eða álverið í Reyðarfirði.

 En það er samt sem áður að hver og einn axli ábyrgð og leggi sig fram við að nota bílana sína minna, endurvinni miskunarlaust.  Eftir að ég sá myndina hans Al Gore gerbreytti ég endurvinnslu háttum á heimilinu, áður endurvann ég bara pappír, núna endurvinn ég meira og minna allt. Það er rosalega góð tilfinning.

 Við verðum að vera dugleg að beita stjórnvöld þrýstingi til að hverfa frá stóriðjustefnu sinni og því fagna ég þessari áskorun NSÍ og tek heilshugar undir hana,


mbl.is Skora á íslensk stjórnvöld að taka loftslagsskýrslu alvarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: áslaug

Er verið að sýna mynd Al Gores í bíó eða fæst hún á myndbandi?

áslaug, 31.1.2007 kl. 16:05

2 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sæl Birgitta. Ég er sammála þér að mörgu leiti. Ég hef hugsað oft til þess að Ísland eigi t.d. að vera miklu framarlega í því að vera með vetnisbíla og aðra umhverfisvæna möguleika. Það er vert að skoða þessa skýrslu og taka hana alvarlega. Það væri gaman að sjá þessa heimildarmynd Al Gore. Veistu hvernig er hægt að nálgast hana?

Varðandi það að breyta um skoðun þá er það nokkuð sem ég hef sjálfur reynt. Það er aldrei of seint að sína rökhyggju og viðurkenna vanmátt sinn. Dæmin eru fjölmörg og það sem þú segir t.d. með að endurvinna hluti er gott. Ég held að það sé ágætt að ég sjái Al Gore. Kannski breytist ég eins og þú? Það væri þá mjög gott, finnst þér ekki?

Sveinn Hjörtur , 31.1.2007 kl. 16:13

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

hún fæst á myndbandi, þú getur líka kíkt á linkinn hér til hliðar an inconvenient truth, þar er hellingur af upplýsingum um myndina:)

Birgitta Jónsdóttir, 31.1.2007 kl. 16:13

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Mér þykir vænt um að heyra tóninn í skilaboðunum þínum Sveinn Hjörtur, ég held að það sé hægt að fá myndina á leigum eða fjárfesta í henni hjá bt eða beint frá vefsvæði Al Gore ...

Birgitta Jónsdóttir, 31.1.2007 kl. 16:14

5 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Takk Birgitta. Ég ætla að gefa mér tíma í að skoða myndina um helgina. Best ég segi þér hvað mér finnist, eftir að ég er búinn að sjá hana. Lofa að segja satt og alveg eins og ´mér finnst, sem ég reyndar geri alltaf og er stundum ókostur minn....Too Much truth...

Sveinn Hjörtur , 31.1.2007 kl. 16:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 508764

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.