3.7.2008 | 18:02
Mótmæli fyrir utan dómsmálaráðuneytið
Á morgunn 4. júlí á milli 12 og 13 verða mótmæli fyrir utan dómsmálaráðuneytið. Við skorum á Björn Bjarnason og Hauk Guðmundsson að snúa Paul Ramses heim og fjalla um mál hans hérlendis þar sem fjölskylda hans er. Við krefjumst þess að Paul fái hér pólitískt hæli og að vinnubrögð eins og í máli hans muni ekki endurtaka sig.
Síðastliðinn desember tók Paul þátt í borgarstjórnarkosningum í Naíróbí, en flokkur hans náði ekki kosningu. Eftir kosningarnar urðu margir stjórnarandstæðingar fyrir ofsóknum. Vegna ótta um líf sitt kom Paul hingað til lands í janúar og sótti um pólitískt hæli. Honum barst aldrei svar við beiðni sinni, jafnvel þó Katrín Theodórsdóttir héraðsdómslögmaður hafií mars ítrekað beiðni um að mál Pauls væri tekið upp.Í gær komu lögregluþjónar fyrirvaralaust á heimi Pauls og handtóku hann fyrir framan konu hans og þriggja vikna sonar þeirra. Hann var færður á lögreglustöðina á Hverfisgötu þar sem hann eyddi nóttinni. Í morgun var hann svo sendur til Ítalíu og mál hans sett í hendur stjórnvalda þar í landi, en samkvæmt Dyflinnarsamningnum hafa íslensk stjórnvöld leyfi til þess að senda hann til Ítalíu,
vegna þess að Paul millilenti þar á leið sinni til Íslands.
Það er engin ástæða til þess að efast um trúverðugleika Pauls og auðveldlega hefði verið hægt að veita honum pólitískt hæli hér á landi. En Útlendingastofnun og Dómsmálaráðuneytið ákváðu samt að hunsa mál hans, einungis vegna þess að þau geta það.
Hér á landi er sífellt hamrað á því að íslensk samfélag sé samfélag friðar, frelsis og jafnréttis, en brottvísun Pauls sannar að svo er ekki. Margfalt fleiri sækja um pólitískt hæli á Ítalíu en á Íslandi og því miklar líkur á því að hann verði einfaldlega sendur aftur til Kenía, þar sem bíða hans ofsóknir og hætta á því að hann verði drepinn. Fjölskylda hefur verið slitin í sundur og lífi manns stefnt í hættu; allt í boði íslenskra stjórnvalda.
Aðspurð sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra að Utanríkisráðuneytið hafi ekkert með málið að gera en sagðist krefjast þess að Útlendingastofnun og Dómsmálaráðuneytið rökstyðji ákvörðun sína. Það er ekki nóg! Það þarf ekki að rökstyðja þess ákvörðun, heldur draga hana til baka og hleypa Paul aftur inn í landið og koma í veg fyrir að þetta gerist aftur.
Hittumst öll fyrir utan Dómsmálaráðuneytið á morgun, milli kl. 12:00 og 13:00 og krefjumst þess að Paul verði snúið aftur til Íslands. Sýnum íslenskum stjórnvöldum reiði okkar og andstöðu gegn þessari óafsakanlegri hegðun!
Komið með trommur, hljóðfæri eða annað til þess að skapa hávaða, ef þið hafið áhuga á því. Það verður dagskrá og er verið að finna snjalla ræðumenn. Síðan má búast við örleikriti og ýmsu öðru.
Við verðum að sýna Birni í verki að okkur finnst þessi vinnubrögð forkastanleg og hvetjum hann til að sýna mannúð í verki. Hvet ykkur til að lesa mjög fræðandi og góða grein um mál Paul Ramses sem ég fann inn á blogginu hans Sigurðar Þórs Guðjónssonar. Smellið hér til að lesa hana.
Ég er að undirbúa undirskrifarlista fyrir þá sem komast ekki á mótmælin en það er lang sterkast að gera eitthvað eins og skrifa eða hringja í dómsmálaráðuneytið og útlendingastofnum. Sendið þeim bréf, föx, biðjið um viðtal við kappana. Sýnið að við sem þjóð samþykkjum ekki svona mannvonsku, mætum á mótmælin á morgunn, öll sem eitt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
3.7.2008 | 10:18
Smánarlegt af íslenskum stjórnvöldum
Ég á bara ekki til orð yfir íslenskum stjórnvöldum þessa dagana. Ég hvet fólk til að kynna sér þetta mál og styð heilshugar aðgerðir aðgerðasinna í morgunn til að vekja athygli á þessu og það væri ekkert nema hneisa ef hneppa á þá í sex ára fangelsi fyrir þessa aðgerð. Þarna eru stjórnvöld okkar að senda manninn í vísan dauðann og rífa hann úr faðmi fjölskyldu sinnar en hann á 3 vikna gamalt barn hérlendis og eiginkonu sem honum er stíað frá. Hvað er í gangi í samfélaginu okkar að við látum svona mála renna í gegnum kerfið án þess að gera nokkuð. Ég vissi ekki af þessu máli fyrr en nú og er brugðið að við séum á svo lágu plani varðandi mannréttindi. fann eftirfarandi inn á visir.is og ruv.is: "Stefán Thordersen flugvallarstjóri staðfesti í samtali við Vísi að tveir menn hefðu hlaupið inn á flugverndarsvæðið þar sem þeir voru síðan handteknir. Samkvæmt heimildum Vísis voru mennirnir að mótmæla brottför Keníamannsins, Paul Ramses, sem fluttur var til Ítalíu í morgun. Mál hans hefur verið nokkuð í umræðunni undanfarið en hann sótti um pólitískt hæli. Paul var ofsóttur í heimalandi sínu og sótti því um hæli. íslensk stjórnvöld ákváðu hinsvegar að vísa honum úr landi án þess að taka umsókn hans til meðferðar. Eyjólfur Kristjánsson fulltrúi lögreglustjórans á suðurnesjum sagði í samtali við Vísi að öryggisverðir flugvallarstjóra hafi óskað eftir aðstoð við handtöku mannanna í morgun. Þeir hafi síðan verið handteknir og settir í fangaklefa." Skammarleg vinnubrögð hjá íslenskum stjórnvöldum varðandi mál Paul. Samkvæmt RÚV er honum stíað frá fjölskyldu sinni hérlendis, "Kenískum flóttamanni vísað úr landiStjórnvöld hafa ákveðið að vísa flóttamanni frá Kenía úr landi án þess að taka fyrir umsókn hans um pólitískt hæli. Maðurinn starfaði um tíma við hjálparstarf Í Kenía sem íslensk stjórnvöld komu að. Einn þeirra sem tók þátt í borgarstjórnarkosningum í Naíróbí í Kenía í desember í fyrra er Paul Ramses. Hann náði ekki kosningu heldur andstæðingur hans í stjórnarflokki landsins. Eftir kosningar urðu margir stjórnarandstæðingar fyrir ofsóknum, Paul óttaðist um líf sitt og flúði því land í janúar síðastliðinn. Hann kom til Íslands og sótti um hæli sem pólitískur flóttamaður. Ástæðan er að hann dvaldi hér um tíma árið 2005 og starfaði í framhaldi fyrir ABC barnahjálp í Kenía. Paul tók þátt í að stofna skóla í Naíróbí með Íslendingum, en það verkefni er meðal annars stutt af utanríkisráðuneytinu. Í mars var farið fram á að stjórnvöld tækju málið fyrir. Fram að þessu hefur ekkert svar borist. Katrín Theódórsdóttir héraðsdómslögmaður segir aðí dag hafi lögreglan komið inn á heimili Pauls og tekið hann í fangelsi. Þar eigi hann að sitja í nótt og svo verði hann sendur út í fyrramálið. Ástæðan er að Paul millilenti á Ítalíu á leið sinni til landsins, og stjórnvöldum er því heimilt að senda hann þangað og láta ítölsk stjórnvöld fjalla um málið. Katrín segir að Paul eigi konu og 3 vikna son sem séu hér á landi líka og með þessari ákvörðun verði fjölskyldunni stíað í sundur."
![]() |
Hlupu út á flugbrautina á Keflavíkurflugvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
3.7.2008 | 07:22
Lögregla segir morðin á frönsku nemendunum standi yfir!
Jahérna hér, standa morðin enn yfir - er lögreglan að myrða þá aftur eða stendur rannsókn morðanna enn yfir? Hvernig væri að blaðamenn á mbl.is færu nú að vanda sig aðeins betur þegar þeir setja inn fréttir. Það er ágætt ráð að lesa textann upphátt, áður en maður skellir honum út á netið fyrir alla að lesa. Ég kalla eftir metnaðarfyllri vinnubrögðum.
Hér er setning úr fréttinni:
"Lögregla segir morðin á frönsku nemendunum standi yfir en líkin fundust á sunnudag eftir að slökkviliðsmenn voru kallaðir út til þess að slökkva eld nærri íbúðinni."
![]() |
Tveir franskir nemar stungnir til bana í London |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 3. júlí 2008
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
-
ADHD
-
Agný
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Alexandra Briem
-
Andrés Magnússon
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Ari Sigurðsson
-
Baldvin Björgvinsson
-
Baldvin Jónsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergur Þór Ingólfsson
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Binnan
-
Birgir Þórarinsson
-
Birna Rebekka Björnsdóttir
-
Bjargandi Íslandi
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
SVB
-
Brjánn Guðjónsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynja skordal
-
Brynjar Hólm Bjarnason
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Daníel Haukur
-
Dorje
-
Dísa Dóra
-
Egill Bjarnason
-
Egill Jóhannsson
-
Einar Guðjónsson
-
Einar Indriðason
-
Einar Vignir Einarsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Eldur Ísidór
-
Elyas
-
Elín Sigurðardóttir
-
Elísabet Markúsdóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Erna Hákonardóttir Pomrenke
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eydís Hentze Pétursdóttir
-
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Finnur Bárðarson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Félag Anti-Rasista
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gaukur Úlfarsson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gerður Pálma
-
Gestur Guðjónsson
-
Goggi
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Gunnar Pétursson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Bergmann
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðmundur Helgi Helgason
-
Guðmundur M Ásgeirsson
-
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Guðný Lára
-
Guðrún S Sigurðardóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Hjálmar
-
Haffi
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haukur Már Helgason
-
Heidi Strand
-
Heilsa 107
-
Heiða Þórðar
-
Helga Auðunsdóttir
-
Kaleb Joshua
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Himmalingur
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlynur Hallsson
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Hlédís
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Hulla Dan
-
Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
-
Hörður B Hjartarson
-
Húmoristaflokkurinn
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Helga
-
Ingibjörg SoS
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Isis
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakob Smári Magnússon
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Bjarnason
-
Jón Gerald Sullenberger
-
Jón Sigurgeirsson
-
Jón Svavarsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jón Þór Ólafsson
-
DÓNAS
-
Katrín Mixa
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Ketill Sigurjónsson
-
Ketilás
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristín Dýrfjörð
-
Kristín Snorradóttir
-
Krummi
-
Kári Harðarson
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lýður Árnason
-
Mafía-- Linda Róberts.
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Markús frá Djúpalæk
-
María Kristjánsdóttir
-
María Pétursdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Morgunblaðið
-
Myndlistarfélagið
-
Mál 214
-
Máni Ragnar Svansson
-
Neo
-
Oddi
-
Paul Nikolov
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Rannveig H
-
Ransu
-
Róbert Björnsson
-
Rögnvaldur Hreiðarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samstaða - bandalag grasrótarhópa
-
SeeingRed
-
Sema Erla Serdar
-
Sigga
-
Signý
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigurgeir Þór Hreggviðsson
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Skuldlaus
-
Snorri Sturluson
-
Soffía Valdimarsdóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
-
Stríða
-
Sveinbjörn Eysteinsson
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Swami Karunananda
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Finnbogason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
TARA
-
Tilkynning
-
Tinna Jónsdóttir
-
Trausti Traustason
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tína
-
TómasHa
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Vefritid
-
Vilborg Eggertsdóttir
-
Vilhelmina af Ugglas
-
Vilhjálmur Árnason
-
Villi Asgeirsson
-
Vinir Tíbets
-
Viðar Eggertsson
-
Viðar Freyr Guðmundsson
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
arnar valgeirsson
-
fingurbjorg
-
hreinsamviska
-
leyla
-
molta
-
oktober
-
Einhver Ágúst
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Ár & síð
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Ásgerður
-
Ásta Hafberg S.
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Ólaf de Fleur Jóhannesson
-
Ólafur fannberg
-
Ólöf de Bont
-
Ómar Ragnarsson
-
Óskar Arnórsson
-
Örlygur Hnefill Örlygsson
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þröstur Unnar
-
Þór Jóhannesson
-
Þór Saari
-
Þórhildur og Kristín
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Andrés.si
-
Anna Karlsdóttir
-
Anna Margrét Bjarnadóttir
-
Ari Jósepsson
-
Aron Ingi Ólason
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Barði Bárðarson
-
Bergþór Gunnlaugsson
-
Billi bilaði
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bogi Jónsson
-
brahim
-
Daði Ingólfsson
-
Daníel Sigurður Eðvaldsson
-
Dóra litla
-
Dúa
-
Einar Björn Bjarnason
-
Elsabet Sigurðardóttir
-
Esther Anna Jóhannsdóttir
-
Frosti Sigurjónsson
-
Grétar Eiríksson
-
Guðbjörg Hrafnsdóttir
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Héðinn Björnsson
-
Hreyfingin
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingvi Rúnar Einarsson
-
Ísleifur Gíslason
-
Jack Daniel's
-
Jóhann Ágúst Hansen
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jóhann Pétur
-
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
-
Jónas Bjarnason
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Lárusson
-
Karl Gauti Hjaltason
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Madhav Davíð Goyal
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Morten Lange
-
Óðinn Kári Karlsson
-
Ólafur Eiríksson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Rannsóknarskýrslan
-
Rúnar Freyr Þorsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sveinbjörn Ragnar Árnason
-
Vaktin
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson