Leita í fréttum mbl.is

Allir ættu að sjá mynd Al Gore

um gróðurhúsaáhrifin. Þar fær maður staðreyndir á mannamáli og í lok myndarinnar nokkur gagnleg ráð hvernig maður getur sjálfur gert eitthvað til að breyta gangi mála. En það er ekki nóg, stjórnvöld verða líka að bregðast við. Ef við höldum áfram að dæla út svona miklu magni af gróðurhúslofttegunda út í andrúmsloftið þá er hætt við að við sem mannkyn munum leiða miklar hörmungar yfir okkur. Ef ekki er brugðist við strax, þá verður það of seint.

 Eitt álver spúir út jafnmiklu magni af þessum lofttegundum og allur bílafloti landsins. Þ.e.a.s. álver á stærð við stækkað álver í Straumsvík eða álverið í Reyðarfirði.

 En það er samt sem áður að hver og einn axli ábyrgð og leggi sig fram við að nota bílana sína minna, endurvinni miskunarlaust.  Eftir að ég sá myndina hans Al Gore gerbreytti ég endurvinnslu háttum á heimilinu, áður endurvann ég bara pappír, núna endurvinn ég meira og minna allt. Það er rosalega góð tilfinning.

 Við verðum að vera dugleg að beita stjórnvöld þrýstingi til að hverfa frá stóriðjustefnu sinni og því fagna ég þessari áskorun NSÍ og tek heilshugar undir hana,


mbl.is Skora á íslensk stjórnvöld að taka loftslagsskýrslu alvarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vona að það verði gert

eitthvað í því að fræða fólkið í firðinum um kosti og galla stækkunar og hvað gæti komið í staðinn ef Alcan kýs að pakka saman og fara eftir tíu ár eins og þeir hafa hótað. Það er líka áhugavert að skoða að álverið í Helguvík á að vera byggt í stærð sem er ekki samkvæmt Alcan rekstrarhæf eining. Hið sama má segja um álverið við Húsavík. Því ættum við að horfast í augu við að við erum að sigla inn í þannig ástand að við þverbrjótum Kyoto sáttmálann.

Sú framtíðarsýn að sjá Ísland sem álland er mér fjarri huga, legg svo til og mæli með að við sjáum fyrir okkur hvernig landi við viljum búa í. Sé fyrir mér stóraukið átak í að auka veg lífrænnar ræktunar. Moldin okkar er enn hrein miðað við flest svæði Evrópu. Þá ættum við að bjóða gróðurhúsabændum samskonar afslætti á raforku og við höfum verið að bjóða hinum erlendu álfyrirtækjum. Við getum sett á stofn heilsuhæli við Húsavík og Vísindaháskóla. Eco ferðamennska er einnig mjög spennandi atvinnugrein og sérhæfingar bænda í að búa til sínar afurðir sem eru kenndar við þeirra bæi gæti gefið meira en þeir eru að fá núna með því að dæla öllu saman í landbúnaðarfjöllin. Þá mættum við einbeita okkur að því að fá almennilega nettengingu við landið þannig að fyrirtæki eins og google líti á landið sem raunhæfan valkost. Eitthvað á þennan veg er draumaeyjan Ísland í huga mér.

Möguleikarnir eru óendanlegir, gæti setið hér í allan dag og dælt út úr mér hugmyndum en verð víst að fara í vinnuna mína sem er einmitt alveg frábær og og hefði aldrei orðið til ef fólk sem átti sér draum hefði ekki hrint honum í framkvæmd.

Einstaklingar geta breytt heiminum. Þú líka:)
mbl.is Skora á Hafnfirðinga að fella tillögu um deiliskipulag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. janúar 2007

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.