Leita í fréttum mbl.is

Afmæli, veislur og reykleysi

Ég er svo lánsöm að hafa fengið að lifi enn eitt árið. Ekkert stórafmæli eins og í fyrra, en það er alltaf gaman að eiga svona einn spes dag. Neptúnus eldri sonur minn er búinn að vera í eldhúsinu í þrjá tíma að gera dýrindis gulrótar afmælisköku handa mömmu sinni:)  Delphin er veikur og ég er hálf veik sjálf. Hætti að reykja fyrir viku síðan og er alveg ótrúlega þreytt. Það mun án efa brá af áður en um langt líður.

Annars var ég í alveg stórkostlega skemmtilegri afmælisveislu í gærkvöldi, hjá henni Elísabetu Jökuls vinkonu minni til margra ára. Hún er örugglega ein alskemmtilegasta vinkona mín og það var svo gaman að sjá hvað hún ljómaði í gullkjól með risastórar gleðisólir í augunum. Það var allavega svo skemmtilegt að ég er eiginlega með harðsperrur í maganum út af því að ég hló svo mikið. 


Mikill áhrifamaður...

Edward þessi hefur haft mjög mikil áhrif til hins góða í heimi okkar, því að með kenningu sinni stuðlar hann að því ljóst og leynt að auka áhrifamátt þess einfalda sannleika að einstaklingar geti breytt heiminum í kringum sig með aðgerðum eða aðgerðaleysi sínu.

Kenning hans er ef til vill enginn nýr sannleikur fyrir ýmsa sem leitað hafa á andans mið, en hann náði að útskýra kenningu sína á svo einfaldan máta að hvert mannsbarn gat tengt við það sem hann uppgötvaði. Það hafa mjög fáar kenningar af þessu tagi nema kannski afstæðiskenningin og 100 apa kenningin haft eins mikil áhrif á hugarfar mitt...

blessuð sé minning þín Edward Lorenz og 1000 þakkir. 


mbl.is Höfundur „fiðrildaáhrifanna“ látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög vel heppnað fræðslukvöld um Tíbet

Í gærkveldi skipulögðu nokkrir aðgerðamenn fræðslukvöld um Tíbet á Kaffi Hljómalind. Við Tsewang vorum með erindi og sýnd var myndin "Undercover in Tibet". Ég átti ekkert von á sérstaklega mörgum en það komu svo margir að ég hygg að einhverjir hafi þurft frá að hverfa. Húsnæðið var reyndar ekkert Háskólabíó en um 40 manns voru herbergisfyllir og gott betur:) 

Maður lærir alltaf eitthvað nýtt á að hlusta á Tsewang - á von á að meira verði um svona viðburði á næstu vikum. Nánast allir sem mættu og voru ekki þegar í félaginu okkar Vinir Tíbets skráðu sig í félagið. Fólk var almennt afar slegið yfir þessari mynd. Ég hafði samband við RÚV í gær og var mér tjáð að búið væri að panta myndina. Ég vona að hún verði sýnd hið fyrsta. En þetta er mynd sem allir þurfa að sjá til að skilja af hverju það er nauðsynlegt að verða við þessu hjálparkalli Tíbeta.


Tíbet - hvað viltu vita?

Tsewang

Í kvöld verður upplýsingakvöld um Tíbet haldið á Kaffi Hljómalind klukkan 20. Tíbetski stjórnmálafræðingurinn Tsewang Namgyal mun halda erindi um heimaland sitt. Birgitta Jónsdóttir fjalla um hvað við getum gert til að aðstoða Tíbeta, en segja má að þeirra staða sé krítískt og ef ekkert verður að gert munu þessi þjóð þurrkast út.

Opnar umræður eftir erindin og kvöldinu lokað með því að horfa á hina glænýju mynd "Undercover in Tibet", en hún varpar meira en nokkur orð skýru ljósi á af hverju Tíbetar eru tilbúnir að fara í margra ára fangelsi til að vekja athygli heimsins á þeirra hörmulegu kjörum.

 


mbl.is Sendifulltrúi Bush mun eiga fund með Dalai Lama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kínversk yfirvöld eru klók

Notfæra sér veikleika hins mannlega huga. Það vita auðvitað allir að það er algerlega gegn búddískri hugsun og heimspeki að fremja ofbeldi. Allir Tíbetar eru búddistar. Að halda því fram að munkar ætli sér að sprengja eitthvað er svo ótrúlega út í hött að allir hljóta að vera sammála því. 

En klókindi kínverskra yfirvalda eru einmitt þau að nú förum við ómeðvitað að tengja hryðjuverk við Tíbeta, því við höfum heyrt þetta í sömu andrá.

Ég vona bara að við náum að halda sannleikanum skýrar í hugarskoti. Mér finnst að það eigi að fordæma slíkar lygar, að tengja Dalai Lama er með ólíkindum og ætti að kæra þá fyrir að vega svona að heiðri manneskju sem alltaf hefur boðað frið gagnvart kínverskum yfirvöldum, þrátt fyrir þeirra voðaverk gagnvart þjóð hans. 


mbl.is Tíbetskir munkar handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju förum við ekki alla leið?

Það hlýtur að vera hægt að setja ákvæði í þessa samninga um að ekki verði skrifað undir nema að kínversk yfirvöld sýni í verki að þau taki eitthvað mark á orðum Björgvins. Annars eru þetta orðin tóm og ekki til nokkurs gagns. Þá er bara betra að vera heiðarlegur og sleppa því að tala um þetta. Allt sem kínversk yfirvöld hafa lofað að gera til að tryggja samninga hafa þau svikið. Eins og til dæmis þau skilyrði sem þeim voru sett fyrir Ólympíuleikana. 

Það þýðir ekkert að treysta þeim. Láta verkin tala er það eina sem virkar á Kína.

Annars þá hvet ég alla til að sjá eftirfarandi mynd og spyrja sig svo hvort að við ættum yfir höfuð að eiga í einhverjum tengslum við yfirvöld sem standa fyrir því sem þar kemur fram.

Undercover in Tibet. 


mbl.is Viðskiptaráðherra fer til Kína í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindabrotum í Tíbet mótmælt

Laugardaginn 12, apríl, klukkan 13, hefur verið boðað til mótmæla fyrir utan kínverska sendiráðið við Víðimel í Reykjavík. Tilgangur mótmælana er tvíþættur samkvæmt tilkynningu frá fundarboðendum; að þrýsta á kínversk yfirvöld að virða mannréttindi Tíbeta og hleypa alþjóðlegum mannréttindasamtökum inn í landið og að sýna Tíbetum stuðning í þeirra baráttu fyrir frelsi í sínu eigin landi. 

Nú er mánuður liðinn síðan mótmæli brutust út í Lhasa. Skelfilegar sögur berast þaðan um hvernig ástandið er í landinu þrátt fyrir að fólk þurfi að leggja sig í lífshættu til að gefa heiminum brotakenndar myndir af því hvað þessi þjóð þarf að þola undir hinum kínverska járnhæl. Flóttafólk nefnir miklu hærri tölur en hafa verið gefnar út opinberlega og tala um að 2000 manneskjur hafi verið drepnar í tengslum við mótmælin. Fólk er dregið út af heimilum sínum, börn og unglingar líka og skotnir út á götu til að hræða fólk til hlýðni. Sökin þarf oft ekki að vera meiri en að neita að afneita Dalai Lama eða eiga mynd af honum. 

Í gær höfnuðu kínversk yfirvöld beiðni Louise Arbour, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna um að hún fái að heimsækja Tíbet. Þeir hafa enn ekki hleypt neinum fjölmiðlum inn í landið og þeir eru hættir við að opna Tíbet fyrir ferðamönnum í byrjun maí eins og stóð til. 
Mikilvægt er að fólk kynni sér hvað er að gerast þarna, hægt er að finna nánari upplýsingar á netinu, á vefnum tibet.is.

Kvikmyndin “Vajra Sky over Tibet”

sýnd 11.apríl, hjá Guðspekifélaginu klukkan 20:30, Ingólfsstræti 22. Allir velkomnir, frítt inn.

Hér er sýnishorn úr henni.


mbl.is Ólympíukyndillinn kominn til Buenos Aires
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað hafa þeir að fela

Enn og aftur hvet ég fólk til að sjá Undercover in Tibet og mynda sér svo skoðun um hvort að okkur beri að gera eitthvað eða ekki, bæði sem einstaklingar og þjóð. Á morgunn verður klukkutíma viðtal við mig á útvarpi Sögu um málefni Tíbet á milli 16 og 17. 

Við ætlum líka að halda áfram að kíkja við til kínverska sendiherrans á Víðimelnum næstkomandi laugardag klukkan 13. Nánari upplýsingar í fyrramálið.  


mbl.is Arbour ekki velkomin til Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elsku blaðamenn mbl.is

Gætuð þið passað upp á að láta ekki hina kínversku áróðursmaskínu nota ykkur svona. Skoðið heildarmyndina og þá sjáið þið að þeir eru að nota þetta til að kúga enn frekar múslíma í Kína. Ég hef verið að lesa kínverska fréttamiðla og sjaldan séð eins miklar lygar skrifaðar af annarri eins sannfæringu...
mbl.is Skipulögðu hryðjuverk á Ólympíuleikunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skora á Ólaf Ragnar að horfa á Undercover in Tibet

og taka svo ákvörðun um hvort rétt sé að fara. Maðurinn hlýtur að geta notað sína stöðu til að sýna kínverskum yfirvöldum að við líðum ekki að framið sé þjóðarmorðið í Tíbet. Nú höfum við allar upplýsingar - ef við gerum ekki neitt erum við sögulega samsek.

Hélt að fólk hefði lært af því sem gerðist í Þýskalandi, en því er ekki að skipta. Allsherjar fangabúðir settar upp í Palestínu og enginn gerir neitt, þjóðarmorð í Tíbet og enginn gerir neitt. Mér finnst í raun það að sniðganga opnunarhátíðina afar lin viðbrögð. Það þarf að setja ráðamönnum í Kína stólinn fyrir dyrnar og hætta við viðskipti ef þeir láta ekki af hroka sínum og hefji í það minnsta samræður við Dalai Lama og hleypi alþjóðafjölmiðlun inn í Tíbet. Ólafur gæti beitt sér fyrir því.


mbl.is Óljóst hvort forseti Íslands mætir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög góð grein um Tíbet

eftir Evu Bjarnadóttur er að finna á vefritunu. Hér er slóð í greinina.

Svo fékk ég sendan link á aðra áhugaverð grein um sögu Ólympíukyndilsferðalagsins. Hann á víst hefð sína að rekja til Ólympíuleika Þriðja ríkisins en ekki til gömlu Ólympíu eða hina endurreistu. Hér er slóð í það.

Hér er svo myndband til stuðnings baráttu Tíbeta fyrir mannréttindum sínum.   


Hvenær ætlar heimsbyggðin að vakna?

Kínversk yfirvöld hafa allt of mikil ítök víðsvegar um heim og hvergi kannski eins áberandi og í Nepal þessa stundina. Kannski þá varpar Ólympíueldurinn birtu í skúmaskotin þar sem myrkraverkin eru framin. Kannski riðar Kína til falls innanfrá. Sífellt fréttir maður af meiri hrylling sem þeir bera ábyrgð á. Af hverju erum við með kínverskt sendiráð á Íslandi? Er ekki kominn tími á að senda sendiherrann heim ásamt sínu föruneyti? 

Ég held að allri heimsbyggðinni sé hætta búin af Kína ef við spornum ekki við fótunum nú þegar. Hvet fólk til að kynna sér vatnsréttindi, Tíbet og Kína og leggja svo saman einfalt reikningsdæmi til að skilja hve mikil völd þeir hafa yfir nágrannaþjóðum sínum varðandi vatnsréttindi.


mbl.is Sex látnir í átökum í Nepal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undercover in Tibet

Heimildarmynd sem var frumsýnd á hinu sérbreska Channel 4 í síðustu viku...

Hún er hér í heild sinni og átakalegri en orð fá lýst...  get ekki embeddað úr google videos í þetta kerfi en þar er hægt að sjá myndina í heild sinni... ef smellt er á þennan link. Enn og aftur hvet ég fólk til að kynna sér sögu Tíbets, hverskonar harðræði þessi friðsama þjóð hefur þurft að búa við. Hef nú verið í mikilli rannsóknarvinnu sem er langt í frá búin um sögu og menningu Tíbet og greinilegt þjóðin er að glata svo miklu dag frá degi að það er bara skammarlegt ef við sem vitum af þessu gerum ekkert. Enn ríkir þögn frá ráðamönnum þjóðarinnar og eru starfsmennirnir mínir í þinginu ekki að hafa fyrir því að svara mér. Því munum við beina aðgerðum okkar í ríkari mæli að þeim. Ég vildi bara að ég hefði meiri tíma til að sinna þessu, því dagarnir eru alltaf alltof fljótir að renna úr greipum mér. 


mbl.is Mótmæli í San Francisco
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er nú bara fyndið...

...og grátlegt í senn. Svona pukurháttur samt dæmigerður fyrir hérlend yfirvöld. Allt gert til að friðþægja kínversk yfirvöld. Við hefðum kannski sést með tíbetskan fána við jarðar flugvallarins...  ekki mikið annað í stöðunni. Sennilega hefðum við ekki gert neitt... enda ekki verið að hlaupa um með þetta hér. Annars þá vona ég að þessu kyndill fari ekki um Tíbet, eins og hin tíbetska þjóð hefur óskað eftir. En þekkjandi yfirboðara Kína, þá munu þeir fara um með kyndilinn Tíbet til að sýna hver ræður.

Var annars að lesa eins konar ekki fréttir frá Kína um Tíbet - ótrúlegt hve mikið þeir ljúga að þjóð sinni og vesalings fólkið hefur ekkert frelsi til að ná sér í fréttir annars staðar. Ekki skringilegt að heimsmynd þeirra sé nokkuð brengluð.


mbl.is Ólympíukyndillinn kominn til San Francisco
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2008
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.