Leita í fréttum mbl.is

Fréttatilkynning: afnám leyndar á Icesave gögnum

Þingmenn Hreyfingarinnar gagnrýna málflutning formanns fjárlaganefndar, Guðbjarts Hannessonar, vegna þeirrar leyndar sem hvílir á gögnum er varða Icesave.  Formaður fjárlaganefndar heldur því fram að aldrei hafi verið beðið um að leyndinni verði aflétt.  Það er ekki allskostar rétt.  Ítrekað báðu þingmenn Hreyfingarinnar um að leyndinni yrði aflétt í ræðustóli Alþingis.  Þá bað þingflokksformaður Hreyfingarinnar um að tölvupóstum á milli Indriða H. Þorlákssonar og Mark Flanagan, dags. 13. og 14. apríl 2008, yrði dreift til allra nefndarmanna utanríkismálanefndar áður en fundur með Franek Rozwadowski, dags. 17. júlí 2009, sem Birgitta Jónsdóttir kallaði eftir yrði haldinn. Ekki var hægt að verða við þeirri beiðni með öðrum hætti en að umræddum tölvupóstum var varpað upp á tjald, nefndarmönnum til skoðunar. 

Til að tryggja að boðleiðir séu réttar hefur Birgitta Jónsdóttir boðsent fjármálaráðherra í tvígang, Steingrími J. Sigfússyni, formlega beiðni um að trúnaði verði nú þegar aflétt af gögnunum í „leynimöppunni“ svokölluðu, enda ekkert sem réttlætir að þau séu ekki aðgengileg almenningi.  Í ljósi orða Guðbjarts Hannessonar í Fréttablaðinu hlýtur að verða brugðist við þessari beiðni án tafar.

Ljóst er að það á að hunsa þessa beiðni sem ég sendi upprunalega 8. desember, því ekki hef ég enn fengið nein svör, þó það sé alveg ljóst að þessi gögn muni varpa nýju ljósi á Icesave málið gagnvart almenningi.  

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Birgitta mín, mikið er ég ánægð með ykkur í Hreyfingunni að standa vaktina fyrir okkur almenning í þessu landi.  Ég vona svo sannarlega að það sé hægt að sjóða saman góðan bræðing úr Frjálslynda flokknum og því góða fólki sem þar trónir hæst hér á blogginu, byltingarsinnarnir okkar, og svo þeir sem ekki geta fylgt meginstraum Vinstri Grænna.  Þið eruð framtíðin og lykill að Nýja Íslandi.  Það er alveg ljóst í mínum huga að fjórflokkurinn er svo gjörspilltur að þeim sem þar stjórna ráða ekki við neitt við neitt.  Þið verðið að tala saman og finna bjargarleið.  Ég mun fylgja þeirri hreyfingu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.12.2009 kl. 11:20

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

takk fyrir að standa vaktina Birgitta

Jón Snæbjörnsson, 18.12.2009 kl. 09:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 509214

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband