20.5.2009 | 18:24
Hvað kostar hvert stöðugildi?
Gott væri að reikna út hvað hvert stöðugildi kostar við byggingu tónlistarhússins miðað við til dæmis viðgerðir á vegum landsins sem sumir hverjir eru í vægast sagt hættulegu ástandi. Ég er nú enginn talnaspekingur en mér rennur í grun að það væri töluvert ódýrara að ráða fólk í vinnu við að laga það sem þegar hefur verið byggt og er að grotna niður - sér í lagi út á landi, en að halda áfram að byggja tónlistarhúsið.
Endilega leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér.
Deilt um tónlistarhús á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
- ADHD
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Alexandra Briem
- Andrés Magnússon
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ari Sigurðsson
- Baldvin Björgvinsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Bara Steini
- Bergur Sigurðsson
- Bergur Thorberg
- Bergur Þór Ingólfsson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Binnan
- Birgir Þórarinsson
- Birna Rebekka Björnsdóttir
- Bjargandi Íslandi
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- SVB
- Brjánn Guðjónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja skordal
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Daníel Haukur
- Dorje
- Dísa Dóra
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Einar Guðjónsson
- Einar Indriðason
- Einar Vignir Einarsson
- Einar Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eldur Ísidór
- Elyas
- Elín Sigurðardóttir
- Elísabet Markúsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- Eva Benjamínsdóttir
- Eydís Hentze Pétursdóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- FLÓTTAMAÐURINN
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fríða Eyland
- Félag Anti-Rasista
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerður Pálma
- Gestur Guðjónsson
- Goggi
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Pétursson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Bergmann
- Guðjón Heiðar Valgarðsson
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur M Ásgeirsson
- Guðmundur Ragnar Guðmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðný Lára
- Guðrún S Sigurðardóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Hjálmar
- Haffi
- Halldór Sigurðsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haukur Már Helgason
- Heidi Strand
- Heilsa 107
- Heiða Þórðar
- Helga Auðunsdóttir
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Hlédís
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Hrólfur Guðmundsson
- Hulla Dan
- Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
- Hörður B Hjartarson
- Húmoristaflokkurinn
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingibjörg Helga
- Ingibjörg SoS
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Isis
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakob Smári Magnússon
- Jakob Þór Haraldsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jens Guð
- Johann Trast Palmason
- Jóhannes Ragnarsson
- Jón Bjarnason
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- DÓNAS
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ketill Sigurjónsson
- Ketilás
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristbergur O Pétursson
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Kristín Dýrfjörð
- Kristín Snorradóttir
- Krummi
- Kári Harðarson
- Landvernd
- Laufey Ólafsdóttir
- Lovísa
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lýður Árnason
- Mafía-- Linda Róberts.
- Margrét Guðjónsdóttir
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- Margrét Sigurðardóttir
- Markús frá Djúpalæk
- María Kristjánsdóttir
- María Pétursdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Morgunblaðið
- Myndlistarfélagið
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- Neo
- Oddi
- Paul Nikolov
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Pálmi Gunnarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rannveig H
- Ransu
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samstaða - bandalag grasrótarhópa
- SeeingRed
- Sema Erla Serdar
- Sigga
- Signý
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurgeir Þór Hreggviðsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Sigurður Hrellir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Skuldlaus
- Snorri Sturluson
- Soffía Valdimarsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stríða
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinn Hjörtur
- Sveinn Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Swami Karunananda
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sævar Einarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- TARA
- Tilkynning
- Tinna Jónsdóttir
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Tína
- TómasHa
- Valgeir Skagfjörð
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vilborg Eggertsdóttir
- Vilhelmina af Ugglas
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Vinir Tíbets
- Viðar Eggertsson
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Vér Morðingjar
- Vésteinn Valgarðsson
- arnar valgeirsson
- fingurbjorg
- hreinsamviska
- leyla
- molta
- oktober
- Einhver Ágúst
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Ár & síð
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásgerður
- Ásta Hafberg S.
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólöf de Bont
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Arnórsson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Þröstur Unnar
- Þór Jóhannesson
- Þór Saari
- Þórhildur og Kristín
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Andrés.si
- Anna Karlsdóttir
- Anna Margrét Bjarnadóttir
- Ari Jósepsson
- Aron Ingi Ólason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Barði Bárðarson
- Bergþór Gunnlaugsson
- Billi bilaði
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Kristjánsson
- Bogi Jónsson
- brahim
- Daði Ingólfsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Dóra litla
- Dúa
- Einar Björn Bjarnason
- Elsabet Sigurðardóttir
- Esther Anna Jóhannsdóttir
- Frosti Sigurjónsson
- Grétar Eiríksson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Héðinn Björnsson
- Hreyfingin
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Pétur
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Jónas Bjarnason
- Jón Kristófer Arnarson
- Jón Lárusson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Lúðvík Lúðvíksson
- Madhav Davíð Goyal
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Morten Lange
- Óðinn Kári Karlsson
- Ólafur Eiríksson
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Rannsóknarskýrslan
- Rúnar Freyr Þorsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Vaktin
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
Athugasemdir
Þú hefur örugglega rétt fyrir þér. Var að blogga um þetta líka, þótt það hafi verið minna yfirvegað en þitt innlegg.
Villi Asgeirsson, 20.5.2009 kl. 18:38
Sammála því að nú þurfi að forgangsraða í framkvæmdum Ríkisins. Það þarf líka að kanna hvort bygging tónlistarhúss slær meira á atvinnuleysi en t.d. vegaframkvæmdir eða bygging framhaldsskóla. Þetta getur verið misjafnt eftir landsvæðum.
Lárus Vilhjálmsson, 20.5.2009 kl. 18:54
Sæl.
Einnig hverjum kæmi til góða að vinna við þetta hús haldi áfram. Íslendingum eða Kínverjum?
Auja, 20.5.2009 kl. 19:11
Frábær hugmynd. Hef ekki ósjaldan hugsað hvernig ofurlaun eru spökúleruð þegar við tölum um starfsmat. Hvað er verið að telja þar. eins og til dæmis alþingismenn með allar sínar spúslur. Þakka þér fyrir að nefna landsbyggðina.
Tónlistahúsið? Urðum við ekki sauðsvartur almúginn að klára þessar tóftir? Ömurleiki niður níðslunnar er óbærilegur. við verðum að halda áfram. Og læra af af mistökum. Reiknum það...
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 19:14
sæl.
Þetta finnst mér góð hugmynd. http://eyjan.is/blog/2009/05/20/pakka-thvi-inn-og-malid-dautt/
væri hægt að pakka þessu inn jafnvel á aðeins flottari hátt og svo getum við opnað pakkann þegar næsta góðæri byrjar ;)
Sóley Björk Stefánsdóttir, 20.5.2009 kl. 19:34
Já þetta er furðulegt. Á sama tíma þarf að skera niður heilbrigðisþjónustu, löggæslu, björgunarþjónustu sjófarenda, í menntakerfinu og svo mætti lengi telja. Það er allavega nóg af niðurskurði hjá hinu opinbera sem mætti kannski minnka eitthvað fyrir 1,3 milljarða.
Guðmundur (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 20:35
Algjörlega sammála því að geyma(gleyma) Tónlistarhöllinni í bráð, hún er einfaldlega ekki tímabær miðað við aðstæður. þess vegna óttast ég að Menntamálaráðherrann sé ekki starfi sínu vaxinn. Hlustar of mikið á aðra.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.5.2009 kl. 20:52
Að ausa meira fé í þetta er glapræði. Vacuumpökkum húsinu og geymum til betri tíma.
Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 23:11
Tek undir þetta með þér! Ekki margir gera sér grein fyrir því að enn er ekki búið að malbika hringinn í kringum landið svo ekki sé fleira nefnt.
Björk Sigurgeirsdóttir (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 01:04
Það hefur verið beðið eftir þessu tónlistarhúsi meiri hluta ævi minnar. Hálfbyggt er það engum til gagns og gerir miklu meira ógagn en ekkert tónlistarhús. Fullbyggt skapar það hins vegar störf og tækifæri fyrir listamenn og tónleikahaldara.
Óvenjulegir tímar krefjast óvenjulegra lausna. Væri ekki hægt að bjóða fólki á atvinnuleysisbótum að fá sanngjarna viðbót gegn því að starfa við uppbyggingu hússins? Það hlýtur allavega að vera hægt að endursemja við verktaka og ná niður kostnaði með snjöllum málamiðlunum. Einbeita sér að gildi byggingarinnar fyrir tónlist og útlit borgarinnar.
Sigurður Hrellir, 21.5.2009 kl. 09:39
Húsið fer ekkert frá okkur og ekki "(tón)listin" heldur, frekari framkvæmdir geta beðið. Hafi menn beðið eftir þessu húsi meiri hluta ævi sinnar eins og S. Hrellir og sennilega einhverjir fleiri en hann, þá geta þeir bætt einhverjum árum við biðtímann. Við þurfum fjármagnið í önnur og þarfari verkefni. Við höfum lítið með "hallir" að gera, sama í hvaða tilgangi, ef við getum ekki fætt og klætt "almúgann".
Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 10:49
Það sem Birgitta segir í þessari færslu er eins og út úr mínu hjarta talað.
Hlynur Þór Magnússon (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 11:47
Ég er eiginlega alveg sammála.
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2009 kl. 12:03
Það væri kannski rétt að skoða líka hvað það mundu kosta ef að hætt væri við að halda áfram með húsið. Þ.e. hvað það mundi kosta að láta það standa hálf karað. Hvaða áhrif hefði það á álit ferðamanna og ásýndar svæðissins. Eins hvort að tekjumögleikar húsins eru eitthvað sem við gætum þegið?
Það hefur t.d. verð bent á að Þjóðleikhúsið hafi liðið fyrir það í endingu að hafa staðið í 12 ár fokhelt og ekki upphitað. Og kosti viðhald því mjög mikið.
Það sem ég vildi að yrði skoðað er hvort hægt sé að selja þetta hús. Jafnvel útlendingum sem sæjur sér í hag í að reka það til framtíðar.
Magnús Helgi Björgvinsson, 21.5.2009 kl. 12:34
Hæ Birgitta.
Ég get alveg tekið undir að það er blóðugt hversu miklir peningar fara í TRH á meðan við þurfum að skera niður í heilbirgðis-, mennta- og velferðarmálum.
Hitt veit ég þó, að kostnaður við hvert stöðugildi í framkvæmdum er hvergi dýrara en í vegavinnu. Malbik og undirlög eru mun dýrara en steypa og timbur. Við höfum fengið sambærilega útreikninga fyrir þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á vegum Reykjavíkurborgar í framkvæmda- og eignaráði og þar er alveg ljóst að dýrustu störfin eru í vegavinnu.
Til að halda uppi atvinnustigi meðal iðnaðarmanna er því best að fara í viðhaldsverkefni. Þau kalla á lítinn efniskostnað en mikla vinnu.
Bestu kveðjur,
Sóley
Sóley Tómasdóttir (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 13:01
Þetta er ein leið til að reikna út "gildi" framkvæmda við tónlistarhúsið. Önnur er að velta fyrir sér hvaða áhrif það hefur á Reykjavík, og þá einkum miðborgina, að hafa hálfbyggðar rústir þarna fyrir allra augum við þessar miklu umferðaræðar. Þá á ég við kostnað fyrir verslunareigendur í miðbænum, en það verður þessu svæði ekki til framdráttar verslunarlega séð, að það leggist í meiri niðurníslu en þegar er orðið, hvaða skoðanamyndandi áhrif það hefur á ferðamenn, og síðast en ekki síst hefur það afskaplega slæm sálræn áhrif á marga Reykvíkinga, og þá ekki síst þá sem búa í miðbænum. Það er að minnsta kosti mín tilfinning.
Síðan má líka velta fyrir sér efnahagslegu og menningarlegu gildi Tónlistarhússins eftir að það er fullbyggt- en það held ég að verði mikið.
Í þriðja lagi er ég ósammála þessum málaflutningi þar sem þú leggur upp einhvers konar val milli Tónlistarhússins og vegagerðar úti á landi. Af hverju seturðu þetta ekki upp eins og val á milli Tónlistarhússins og kaups nauðsynlegra tækja á spítala fyrir hjartveik börn? Þá er alveg víst að enginn myndi vilja halda áfram með húsið. Og talandi um framkvæmdir úti á landi - ég man ekki betur en að hafa eitthvað heyrt talað um ætluð göng á norðaustur-landi. Ég held að fólk ætti frekar að vera að stressa sig yfir slíkum fyrirætlunum en Tónlistarhúsi sem hefur ótvírætt menningarlegt gildi, nægu fjármagni hefur þegar verið varpað á glæ í þingmannapoti þar sem milljörðu er ausið í að bora í gegnum fjöll.
Björn Vilhjálmsson (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 13:52
Talandi um kostnað við stöðugildi þá skulum við vera raunsæ og reikna t.d. VSK tekjur og aðflutningsgjöld hráefnis inní pakkann. Störf hjá steypustöðvum, stjórnunarstörf, störf hjá hráefnisheildsölum og öðrum birgjum.
hvaða niðustöðu færðu þá
Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 13:58
Svona hagfræðipælingar eru 2007 hugsunarháttur. Reikna út þetta og reikna út hitt. Skoða tölur á blaði. Nota rök en hugsa ekki.
Menning okkar sem þjóðar mun halda okkur á floti. Hún er límið sem gerir okkur heil. Heldur væri það snautlegt fyrir skáldkonuna að leggja stein í götu tónlistarfólks svo N1 og Skeljungur gætu malbikað meira.
Arnþór Jónsson (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 14:56
Það er full ástæða til að velta alvarlega fyrir sér hvort þeir fjármunir sem við höfum eigi að fara í tónlistarhúsið.
Það þarf að skera niður um hundruð milljarða nú þegar.
Það stendur til að skera niður fé til heilbrigðis og menntamála fyrst og fremst, enda eru það stærstu liðirnir hjá okkur.
Persónulega vil ég sjá fjármunum varið í að byggja skóla og halda þeim við ásamt sjúkrahúsum og þess háttar. Meðan við höfum ekki fjármuni til þess að leggja í mennta og heilbrigðiskerfi þá verður bara annað að bíða.
Framtíð okkar felst í menntun og heilbrigði þjóðarinnar, þar er ekki hægt að segja: "Það má bíða".
Tónlistar og ráðstefnuhúsið, sem er reyndar ráðstefnuhús með smá tónlistaraðstöðu, má bíða.
Baldvin Björgvinsson, 21.5.2009 kl. 15:24
Takk Sóley fyrir að leiðrétta mig:) ég er ekki með neinar alhæfingar en mér finnst bara svo skelfilegt til þess að hugsa að við höfum hér 20.000 manneskjur án atvinnu - nú þegar er niðurskurður hafinn í grunnþjónustu sem bitnar alvarlega á þeim sem síst skildi. Því finnst mér nauðsynlegt að velta öllum steinum við. Þessi færsla er tilraun til þess að fá meiri upplýsingar og heyra hvað fólki finnst.
Það er reyndar satt sem Baldvin segir þetta er fyrst og fremst ráðstefnuhús með 3 VIP hofum og sitthvað fleira sem maður sér ekki að gagnist þjóðinni núna - en ég skil líka þau sjónarmið að það er ekki gott að hafa gapandi sár í miðbænum - en kannski er það þörf áminning á hve langt við gengum í dansinum í kringum gullkálfinn sem svo var eftir alltsaman bara glópagullkálfur.
Birgitta Jónsdóttir, 21.5.2009 kl. 15:57
Það hefir alltaf verið látið ganga fyrir hjá þjóðum í kreppu þ.e. Vegir og orkuver eða það sem nýtist allri þjóðinni en ekki tónlistarhús og þessháttar mannvirki sem nýtist aðeins fáum og engra hagur fyrir utan það.
Valdimar Samúelsson, 21.5.2009 kl. 17:45
Þetta er rétta spurningin hjá þér Birgitta. Alveg sama hvernig maður reiknar þetta hús getur það barasta ekki verið besta notkun á almannafé á þessum tímum.
Héðinn Björnsson, 22.5.2009 kl. 18:05
Það er að verða gamall vani hjá mér að drulla yfir þessa mitu um atvinnuskapandi verkefni upp á 25 milljarða sem Tónlistarhúsið á að vera að margra mati.
Það sér hver heilvita maður að þetta er gott betur en atvinnuleysisbætur fyrir byggingarstarfsmenn. Væntanlegar tekjur af húsinu gera ekki ráð fyrir 10 milljarða kostnaðarauka.
Jæja, Um síðustu áramót var tekin af, fjárveiting til Olweusar-áætlunarinnar, sem hefur verið inngripsáætlun Menntamálaráðuneytisins á undanförnum árum í eineltis og ofbeldismálum grunnskólanna.
Enginn hefur áhyggjur af þessu máli þótt þeir skólar sem tekið hafa upp kerfið hafi náð dramatískum árangri í að lækka tíðni andlegs og líkamlegs ofbeldis meðal barna og unglinga.
Pennastrikið er ekki tekið til baka af núverandi ríkisstjórn enda kannski raunverulegar lausnir ekki á dagskrá.
En Tónlistarhús, það er fullt af tónlist hérna og hún verður ekki meiri eða betri við þetta hús.
sandkassi (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 18:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.