21.1.2009 | 07:30
Höldum áfram
Ég ætla að fara aftur á eftir. Í gær var fólk þarna á öllum aldri - frá öllum samfélagsstéttum - frá öllum flokkum - frá öllum trúfélögum - hef aldrei séð annan eins þverskurð af fólki á mótmælum. Sumir dönsuðu í kringum eldinn - aðrir stóðu í þvögunni og slógu á potta og pönnur og hrópuðu "vanhæf ríkisstjórn", enn aðrir stóðu utar og sýndu stuðning með viðveru sinni - það er pláss fyrir alla í mótmælum sem ekki er hægt að kalla annað en lýðveldisbyltingu - þetta er mótmælin okkar allra.
Ekki vera feiminn að koma ef þú vilt breytingar - ef réttlætiskennd þín hrópar hingað og ekki lengra. Ekki vera hræddur við okkur - því á mótmælunum erum við öll eitt - þarna rekst maður á ættingja og vini, þjóðþekkt andlit og fólk sem maður hefur aldrei skilið - en það skiptir ekki máli - því í grunninn erum við öll eins þó skoðanir okkar séu ekki alltaf eins. Okkur dreymir um réttlátt samfélag og til þess að fá það verður við að sýna það í verki - því það gerir það enginn fyrir okkur.
Ef þið eigið ekki potta og pönnur til að framkalla hávaða - takið þá vatn og brauð handa þeim sem standa kannski vaktina allan daginn - sýnum að okkur er ekki sama um hvort annað - Í dag er ég þakklát og stolt af þjóðinni minni - höldum áfram - ekki gefast upp - við erum alveg að ná markmiði okkar.
Sjáumst á eftir:) - kæru mótmælendur.
Mótmæli fram á nótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Löggæsla, Vinir og fjölskylda | Facebook
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
- ADHD
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Alexandra Briem
- Andrés Magnússon
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ari Sigurðsson
- Baldvin Björgvinsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Bara Steini
- Bergur Sigurðsson
- Bergur Thorberg
- Bergur Þór Ingólfsson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Binnan
- Birgir Þórarinsson
- Birna Rebekka Björnsdóttir
- Bjargandi Íslandi
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- SVB
- Brjánn Guðjónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja skordal
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Daníel Haukur
- Dorje
- Dísa Dóra
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Einar Guðjónsson
- Einar Indriðason
- Einar Vignir Einarsson
- Einar Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eldur Ísidór
- Elyas
- Elín Sigurðardóttir
- Elísabet Markúsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- Eva Benjamínsdóttir
- Eydís Hentze Pétursdóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- FLÓTTAMAÐURINN
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fríða Eyland
- Félag Anti-Rasista
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerður Pálma
- Gestur Guðjónsson
- Goggi
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Pétursson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Bergmann
- Guðjón Heiðar Valgarðsson
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur M Ásgeirsson
- Guðmundur Ragnar Guðmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðný Lára
- Guðrún S Sigurðardóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Hjálmar
- Haffi
- Halldór Sigurðsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haukur Már Helgason
- Heidi Strand
- Heilsa 107
- Heiða Þórðar
- Helga Auðunsdóttir
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Hlédís
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Hrólfur Guðmundsson
- Hulla Dan
- Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
- Hörður B Hjartarson
- Húmoristaflokkurinn
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingibjörg Helga
- Ingibjörg SoS
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Isis
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakob Smári Magnússon
- Jakob Þór Haraldsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jens Guð
- Johann Trast Palmason
- Jóhannes Ragnarsson
- Jón Bjarnason
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- DÓNAS
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ketill Sigurjónsson
- Ketilás
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristbergur O Pétursson
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Kristín Dýrfjörð
- Kristín Snorradóttir
- Krummi
- Kári Harðarson
- Landvernd
- Laufey Ólafsdóttir
- Lovísa
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lýður Árnason
- Mafía-- Linda Róberts.
- Margrét Guðjónsdóttir
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- Margrét Sigurðardóttir
- Markús frá Djúpalæk
- María Kristjánsdóttir
- María Pétursdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Morgunblaðið
- Myndlistarfélagið
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- Neo
- Oddi
- Paul Nikolov
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Pálmi Gunnarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rannveig H
- Ransu
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samstaða - bandalag grasrótarhópa
- SeeingRed
- Sema Erla Serdar
- Sigga
- Signý
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurgeir Þór Hreggviðsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Sigurður Hrellir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Skuldlaus
- Snorri Sturluson
- Soffía Valdimarsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stríða
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinn Hjörtur
- Sveinn Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Swami Karunananda
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sævar Einarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- TARA
- Tilkynning
- Tinna Jónsdóttir
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Tína
- TómasHa
- Valgeir Skagfjörð
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vilborg Eggertsdóttir
- Vilhelmina af Ugglas
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Vinir Tíbets
- Viðar Eggertsson
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Vér Morðingjar
- Vésteinn Valgarðsson
- arnar valgeirsson
- fingurbjorg
- hreinsamviska
- leyla
- molta
- oktober
- Einhver Ágúst
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Ár & síð
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásgerður
- Ásta Hafberg S.
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólöf de Bont
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Arnórsson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Þröstur Unnar
- Þór Jóhannesson
- Þór Saari
- Þórhildur og Kristín
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Andrés.si
- Anna Karlsdóttir
- Anna Margrét Bjarnadóttir
- Ari Jósepsson
- Aron Ingi Ólason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Barði Bárðarson
- Bergþór Gunnlaugsson
- Billi bilaði
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Kristjánsson
- Bogi Jónsson
- brahim
- Daði Ingólfsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Dóra litla
- Dúa
- Einar Björn Bjarnason
- Elsabet Sigurðardóttir
- Esther Anna Jóhannsdóttir
- Frosti Sigurjónsson
- Grétar Eiríksson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Héðinn Björnsson
- Hreyfingin
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Pétur
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Jónas Bjarnason
- Jón Kristófer Arnarson
- Jón Lárusson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Lúðvík Lúðvíksson
- Madhav Davíð Goyal
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Morten Lange
- Óðinn Kári Karlsson
- Ólafur Eiríksson
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Rannsóknarskýrslan
- Rúnar Freyr Þorsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Vaktin
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
Athugasemdir
sjáumst !
SM, 21.1.2009 kl. 08:08
Flott hjá ykkur að framkalla svona hávaða og læti. Ég styð mótmæli en aðeins með friðsömum hætti....sem var ekki gert í gær! Mótmælendur komu fram í sjónvarpinu og spurði alltaf "hvað gerðum við?" og "við erum ekkert að gera neitt" . Málið var það að margir voru að haga sér eins og hálfvitar, skemma almenningseignir og svona, brjóta rúður í friðuðu húsi. "Brennan" var líka kolólögleg vegna þess að sækja þarf um leyfi frá sýslumanni og lögreglu, sem var eflaust ekki gert í gær! Finnst skrýtið að lögreglan hafi ekki slökt á henni fyrr. En ég verð að viðurkenna að lætin, köllin, þokulúðurinn, pottarnir, og "vanhæf ríkisstjórn" fannst mér sniðugt og flott en annað bara kjaftæði!
Dagur Björnsson, 21.1.2009 kl. 08:23
Tökum með mjólk! (Gjarna litlar fernur af nýmjólk) - Það er gott að hafa við hendina, ef óeirðalöggan (plast-skjaldsveinararnir) fer að leika sér með eitur. ´Nauðsynlegt að hafa eitthvað til að hella í brennd augu.
Óeirða-lögregla var réttnefni í gær - er þessi fyrirbrigði komu askvaðandi MEÐ DÓLGSLÁTUM í Alþingisgarðinn kl. um 13:30, þar sem friðsamir mótmælendur stóðu með sínar kökudósir og pönnur., rétt eins og framan við húsið. Höfðu þeir, óeirðalöggur, ennþá ekkert að gera en hófu samt stimpingar - hrintu fólki aftan frá, óvörum og því um líkt. Þetta veit ég af eigin reynslu. Athyglisvert er að framan við húsið þar sem aðalmótmælin foru fram, sást engin plastlögga - allt var friðsamlegt þar, enda litu fréttamenn varla/eða ekki þangað!
Hlédís, 21.1.2009 kl. 08:36
Já, það þarf að sækja um leyfi hjá sýslumanni og lögreglu fyrir smávegis brennu en ekki til að kollsteypa þjóðfélagi.
Ég hugsa að stjórnin fari frá á næstu dögum. Og það eru til myndir sem sýna fáránlegt og tilefnislaust athæfi lögreglu.
Hermann (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 11:04
Ég ætla að vera í vaktafríi fram eftir degi.... er raddlaus og hreyfi mig eins og Gísli á Uppsölum í dag :) Safna kröftum og rödd svo ég geti farið aftur seinni partinn
Var einmitt frábær þessi samstöðufílíngur í gær. Þarna gengu nokkrir um með kaffibrúsa og pappaglös... einn kom með stútfullan plastpoka af Svala til að væta kverkar þeirra sem voru að öskra sig hása.... bláókunnugir féllust í faðma og óskuðu hvort öðru til hamingju með daginn....
Fæ tár í augun við upprifjunina!
Ég ELSKA þetta fólk... ÞETTA var þjóðin mín sem mætti í gær
Heiða B. Heiðars, 21.1.2009 kl. 11:33
þú hressist vonandi sem fyrst! Þetta er eins og meðal-heyskapartörn eða -uppskipun hér fyrr á tíð
Já, nú er þjóðin risin upp á annan afturfótinn. Valdhafar þurfa að vara sig þegar hún rís alveg upp. Það hef ég ekki séð gerast almennilega nema einu sinni á mínum 49 kröfugerðaárum. Tilefnið var að sumu leyti ekki eins alvarlegt og nú. Þá átti að byggja SEÐLABANKANN sem risavaxinn pýramýda á hvolfi OFAN Í Arnarhól, þannig að hann gnæfði yfir hólinn! Því tókst að afstýra vegna gífurlegra þverpólitíska andmæla.
Hlédís, 21.1.2009 kl. 11:53
þú ert flott hjá Jónasi!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.1.2009 kl. 18:29
Kæra Anna B.M! Mig langar að komast inn á þitt blogg! Hvað er að? er búið að loka á þig. Viltu endilega láta mig vita?!
Hlédís, 21.1.2009 kl. 18:42
Hlédís...Takk...en ég lokaði því eftir ótrúlegt skítkast frá Vilhjálmi í Kaupmannahöfn á forfeður mína (föðurættin, en er af morðingum í alíslenska móðurætt en það "böggar ekki Vilhjálm ="Svartfugl") og svo Omegamönnum sem þyrptust um hann!...auðvitað allt ósatt, en margir voru að "pæla" á Íslandi hvort ekki væri "eitthvað" hæft í þessu?...svo ég lokaði mínu vinsæla bloggi!
Er með "facebook"
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.1.2009 kl. 20:10
Flottasti mótmælandinn var eldri dama sem barði með hækju í staur. Sú var samt alveg nógu spræk til að fara niður eftir.
María Sigrún (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 22:29
Sæl. Sé að þú hefur nóg að gera!
Ég var þarna í gær og barði utan ljósastaur. Svo drapst á honum. Hef líklega lagt of mikla áherslu á höggin?
Ég var að spá í eitt sem er áberandi í mótmælunum, en það er hversu stór hópur VG er á staðnum og mótmælir og biður um nýjar kosningar.
Ég trúi því varla að VG sé að nýta sér lætin og um leið meðbyr í skoðanakönnunum til að fá kosningar og komast þar með til valda? Nei varla...eða hvað? Ef svo er er ég hræddur um að fólk sjái í gegnum það. Ég t.d. mótmæli vegna þess að ég er búinn að fá nóg af því liði sem hafði tækifæri, enda ágætis tiltekt í mínum flokk.
Það væri gott ef einhver hér gæti svarað því og þá hvort viðkomandi sé að mótmæla öllu gömlu þingliðinu, eða bara nokkrum sem hafa ekki staðið sig vel?
Persónulega við ég fá nýja forrystu í öllum flokkum. Það má ekki gleyma að þeir sem eru enn við völd hafa haft sinn tíma...
Sjáumst á laugardaginn...og ps. Ég ætla ekki að standa við ljósastaurinn núna!
Sveinn Hjörtur , 22.1.2009 kl. 01:17
Er ríkisstjórnin ekki að koma óorði á stjórnleysingja ???
Hildur Helga Sigurðardóttir, 22.1.2009 kl. 01:36
Sveinn - ég hef séð alveg jafnmargar manneskjur á mótmælum frá Samfó og frá VG - en þetta eru sögusagnir sem virðast ætla að lifa góðu lífi.
Ég er hjartanlega sammála þér með að það er brýn þörf á uppstokkun allsstaðar.
Birgitta Jónsdóttir, 22.1.2009 kl. 07:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.