Leita í fréttum mbl.is

Borgarstjórinn hefði sennilega ekki fengið að fara?

Hvað ætli skilgreining kínverskra yfirvalda sé á geðfötlun? Erfitt að lesa það úr bannlistanum. Borgarstjórinn okkar hefur átt við eitthvað geðrænt kvef. Ætli hann myndi fá leyfi til að fara til Peking? 

Mér finnst þetta flott mótmæli hjá Hugarafli og styð þau heils hugar:) Á slatta af geðfötluðum ættingjum, eða átti þeir eru flestir látnir. Ég held reyndar að ég hafi svo sem aldrei hitt neinn sem er ekki með nett geðrænt kvef, og er ég þar engin undantekning. 


mbl.is Táknræn mótmæli geðfatlaðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég myndi nú ekki einu sinni hleypa þessum borgarstjóra inn í Ráðhúsið... en það er allt önnur saga.

...désú (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 16:36

2 Smámynd: Róbert Þórhallsson

Það vantar alltaf rök fyrir því af hverju fólk er í nöp við borgarstjórann. Erfitt að taka fullyrðingar út í loftið alvarlega.

Róbert Þórhallsson, 8.8.2008 kl. 16:50

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þessi færsla var ekki til að sýna Ólafi óvelvild - heldur fá fólk til að spá í hvar þessi mörk liggja. Það er fullt af fólki sem hefur glímt við geðfötlun af einhverju tagi sem hefur náð fullum tökum á sjúkdóminum. Þeir sem eiga að glíma við þennan sjúkdóm eiga ekki að þurfa að glíma við það að vera útskúfaðir.

Mér finnst þetta bara svo ömurlegt og enn ömurlegra að okkar ráðamenn gera bara ekki neitt í að gagnrýna þessi mannréttindabrot við rétta aðila. Þeas kínversk yfirvöld.

Birgitta Jónsdóttir, 8.8.2008 kl. 16:59

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Finnst þér sem sagt Róbert að ruglustampurinn sem kallaður er borgarstjóri verðskuldi eitthvað meira af rökum fyrir gagnrýni en hann sjálfur ber á borð nánast daglega..??? Það er alveg ótrúlegt ef hans vinnubrögð og framkoma hefur farið framhjá þér.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 8.8.2008 kl. 19:42

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hef verið illa þunglynd í nokkur ár meira að segja.  Er persónulega móðguð út í Kína vegna þess og ca. milljón annarra hluta.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.8.2008 kl. 20:06

6 Smámynd: Róbert Þórhallsson

Birgitta: Ég veit, svar mitt var ætlað ...desú. Flott færsla hjá þér enda er eitthvað mjög rangt við þessa afstöðu stjórnvalda í Kína.

Hafsteinn: Takk fyrir brilliant "ef þú veist það ekki þá er eitthvað að ÞÉR" rökfærslu.

Róbert Þórhallsson, 8.8.2008 kl. 23:00

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ólafur borgarstjóri skiðtir engu máli í þessu sambandi heldur viðhorf Kínverja. En það segir líka sína sögu að enginn íslenskur stjórnmálamaður eða íþróttafrömuður hefur haft nokkuð við afstöðu þeirra að athuga. Þetta skiptir þá greinilega engu máli.

Sigurður Þór Guðjónsson, 9.8.2008 kl. 10:26

8 identicon

Heyr heyr, Hafsteinn... og heyr heyr, Birgitta auðvitað... og heyr heyr bara allir nema fúll-á-móti!

...désú (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.