Leita í fréttum mbl.is

Hér er fréttatilkynningin í heild sinni

Stofnfundur Vina Tíbets og hin vikulega mótmælastaða

Tíbet er enn lokað af, fjölmiðlafólk og ferðamenn fá enn ekki aðgang að landinu. Símasamband og netsamband er enn rofið.
Herlög er enn í gildi og á næstu dögum verða yfir 1000 Tíbetar ákærðir fyrir þátttöku í mótmælum í Lhasa. Fjöldamörg dæmi eru um það að munkar hafi framið sjálfsvíg fremur en að þurfa að sitja undir þeim pyntingum sem bíða þeirra í kínverskum fangelsum.

Undanfarna laugardaga hefur fólk tekið sig saman og mótmælt mannréttindabrotum í Tíbet og komið saman til að sýna Tíbetum í verki að þeim er ekki sama um þessa merku þjóð. Þjóð sem verið er að fremja menningarlegt þjóðarmorð á. Þjóð sem var hernumin fyrir 50 árum og enginn þjóð í heiminum haft dug í sér til að styðja á víðtækan hátt.

Á mánudaginn var, tókum við þátt í alþjóðaaðgerðadegi til stuðnings Tíbet og afhentum ráðamönnum þjóðarinnar ákall til stuðnings Tíbet. Við kölluðum eftir því að þögninni um þetta mál myndi linna. Heldur hefur verið um fáa fína drætti að ræða frá stjórnaliðum. Eini flokkurinn sem hefur sýnt að þeir láta sig málefni Tíbet varða, eru einmitt þeir sem flestir hefðu síst átt von á að tækju á þessu máli - VG. Á miðvikudaginn var fundur haldinn í Utanríkisnefnd Alþingis og þar bókaði VG því sem næst allar okkar ábendingar um hvað íslenska ríkistjórnin og þingheimur gæti gert til að liðsinna Tíbet. Þetta eru ekki róttækar kröfur en afar mikilvægar til að binda enda á þá kúgun og hrottaskap sem á sér stað í Tíbet núna. Mikilvægt er að það sé brugðist strax við. Því má segja að VG sé eini flokkurinn sem sé að bregðast við ákallinu sem við sendum þingheimi.

SUS hefur lagt til að við sniðgöngum opnunarhátíð Ólympíuleikana og tökum við heilshugar undir það. En það er átakalegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki þegar á reynir styðja mannréttindi Tíbeta og löngun þeirra til að búa við lýðræðislegt stjórnarfar.

Við skorum á allar hinar pólitísku ungliðahreyfingar að standa saman fyrir þverpólitískri aðgerð – til að sýna að við setjum mannréttindi ofar viðskiptahagsmunum, til að sýna að mannréttindi séu ofar pólitískum stefnum og straumum.

Laugardaginn 5. apríl klukkan 13, boðum við enn og aftur til mótmæla fyrir utan kínverska sendiráðið. Mótmælastaða okkar er til að sýna kínverskum yfirvöldum að við gleymum ekki mannréttindabrotum þeirra svo glatt, sem og að taka þátt í hinni alþjóðlegu bylgju stuðnings til handa Tíbetum og þeirra baráttu fyrir frelsi og mannréttindum.

Á sunnudaginn mun verða haldinn stofnfundur Vina Tíbets. Hann verður haldinn á Kaffi Hljómalind, Laugavegi 23, klukkan 13 og öllum frjálst að mæta sem vilja styðja við þetta málefni eða bara næla sér í aukna fræðslu um Tíbet.


mbl.is Stofnfundur Vina Tíbets
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með stofnfundinn. Er hægt að fá að taka viðtal við þig í sumar, vegna rannsóknar minnar á mótmælum?. Sendu mér netfangið þitt á tva@hi.is og ég útskýri betur rannsóknarverkefnið.

Tómas Vilhj. Albertsson (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 10:15

2 identicon

Hvað áttu við með því að flestir hefðu síst átt von á að VG tækju á þessu máli? Hafa VG sýnt minni áhuga á mannréttindamálum en aðrir flokkar?

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 11:01

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Í sögulegu samhengi hafa það verið hægri flokkarnir sem hafa gagnrýnt hve hæst mannréttindabrot kínverskra ráðamanna. Vinstri flokkarnir hafa verið með fókusinn á mekka kapitalismans þegar kemur að gagnrýni á mannréttindabrot... þannig var það, en er sem betur fer að breytast:)

Ég átti því von á því að sjá XD dugmeiri varðandi þetta málefni... á maður að geta sér til að þessi þögn þeirra sé vegna viðskiptahagsmuna!???

Birgitta Jónsdóttir, 5.4.2008 kl. 11:16

4 identicon

Alveg bókað að þeir þora ekkert að segja útaf þessum viðskiptasamningum öllum... Alveg ótrúlegt hvað menn er annt um peninga frekar en að vera annt um fólk sem lifir við hörmungar...

Björn (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 11:26

5 Smámynd: Villi Asgeirsson

Til hamingju og baráttukveðjur. Myndi mæta ef ég væri á Íslandi. Ég á nebblega engra hagsmuna að gæta í Kína.

Villi Asgeirsson, 5.4.2008 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband