Leita í fréttum mbl.is

Tek undir áskorun SUS

Finnst að okkar ráðamenn ættu skilyrðislaust að sniðganga setningu og lokahátíð Ólympíuleikana. Mannréttindabrot kínverskra yfirvalda eru svo öfgakennd og þeir eru ekki neitt að taka sig á, hvorki varðandi sína eigin þegna né Tíbeta. Það væri róttæk hræsni að mæta þarna í sínu fínasta pússi með tilheyrandi kostnaði fyrir þjóðina ef kínversk yfirvöld eru að brjóta á þeim skilyrðum sem þau skrifuðu upp á sem forsenda fyrir því að fá að halda þessa blessuðu Ólympíuleika.

Finnst reyndar absúrd að fólk sé að fara þarna og stuðla að hungursneyð hjá tugum þúsunda Kínverja vegna þess að vatnið verður tekið af þeirra ræktarsvæðum svo Ólympíugestir geti farið í sturtu. 


mbl.is Kínverskur aðgerðarsinni fangelsaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég styð þetta milljón% en ég hef ekki trú á að Ísland sniðgangi leikana.  Þetta er allt í munninum á fólki.  Því miður.

Knús Birgitta mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.4.2008 kl. 09:40

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Tek undir þetta með þér, baráttufúsa Birgitta. Frjálst Tíbet! Sniðgöngum opnunarhátíð Ólympíuleikanna! – eins og Angela Merkel og Nicolas Sarkozy ætla að gera, sem og Haraldur Noregskonungur, ef hann fær grænt ljós á það frá ráðherra, skv. frétt í hádegisútvarpi Rúv. í dag. – Kær kveðja.

Jón Valur Jensson, 3.4.2008 kl. 13:29

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Styð það líka heils hugar. Ég myndi ekki geta farið þarna eins og ekkert sé samvisku minnar vegna. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 14:50

4 identicon

Sniðgöngum heiminn - það er fullt af vondu fólki alls staðar - eða a.m.k. fólki sem er ekki sammála okkur - sniðganga það allt.

Gulli (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 17:23

5 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Íslensk stjórnvöld þurfa að ræða þessi mál og taka afstöðu. Við eigum að sniðganga opnunarhátíð ólympíuleikanna í ljósi þess hvernig kínversk stjórnvöld koma fram gagnvart Tíbet, Taivan og sínum eigin þegnum.

Kristbjörg Þórisdóttir, 3.4.2008 kl. 18:26

6 Smámynd: Ransu

Glætan að íslensk stjórnvöld þori að láta heyra frá sér eitt píip á móti Kínverjum, nema að meirihluti annarra þátttakenda geri það líka.

Ransu, 3.4.2008 kl. 21:11

7 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég er krónísk bjartsýnis manneskja - ég ætla að trúa því að við höfum hugrekki til að sniðganga þessa skrauthátíð - finnst reyndar að við ættum bara að sleppa því að taka þátt í þessari glysmynd og snilldar markaðsherferð kínverskra yfirvalda.

Við eigum auðvitað að þrýsta á okkar fólk í pólitík að sniðgang opnunarhátíðina - við eigum að þrýsta á þau að svara undanbragðalaust hvort þau meti viðskipti ofar mannréttindum...

Og hey Gulli - ég hef nú reyndar oft kallað okkar fundi meðmæla fundi - ég mæli með að mannréttindi séu virt í okkar heimi - ég mæli með því að við finnum fleti sem við getum verið sammála um:)

Birgitta Jónsdóttir, 3.4.2008 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 509133

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband