Leita í fréttum mbl.is

Eru kínversk yfirvöld alveg búnin að missa sig í bullinu?

Hér er áhugaverð mynd sem segir margt um hvernig kínversk yfirvöld hagræða veruleikanum... takið eftir á hverju kínverska löggæslan í Tíbet heldur á! Ég vona að heimurinn gleypi ekki við þessum nýjustu áróðursbrögðum ... hryðjuverkamunkar... vá þvílíkt hugmyndaflug hjá kínversku áróðursmaskínunni... ætli það séu þessir gaurar sem klæða sig upp í munkafötin yfir embættisbúningana sem sjá þá um það að sprengja sig upp.... svolítið langsótt en ekki eins langsótt en hryðjuverkamunkar:)

wolfsinmonksropes

 


mbl.is Kínverjar segja Tíbeta skipuleggja árásir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú alþekkt að spunameistarar stjórnvalda og leyniþjónustur planti sínum mönnum inn í ýmiss konar andspyrnuhópa með það að markmiði að valda sundrung innan hópsins og að koma óorði á hann.  Dólgslæti á mótmælum eru sérstaklega vel til þess fallin til að koma óorði á friðsamari mótmælendur og til að fá almúgann í lið með sér til að styrkja vondan málstað. Kæmi mér ekki á óvart ef við myndum á næstunni sjá frá Kína öldu ofbeldisverka af hálfu morðóðra tíbetskra Kung-Fu munka.
Slíkir plöntumenn eru kallaðir "Agent Provocateur" og það er til meira af þeim heldur en flestalla grunar. Í dag er svo komið að ekki er hægt að kynna kynna sér með góðu móti samsæri ráðamanna heimsins án þess að hafa gott tak á þessu hugtaki, því sigurvegararnir eru búnir að margritskoða og endurskrifa fréttirnar/söguna, og stjórna jafnvel báðum hliðum.


Agent provocateur á Wikipedia

Óskar (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 12:24

2 identicon

Þegar farið er að tengja Dalai Lama við hugsanlegar sjálfsvígsárásir, er botninum náð. 

Aðalheiður Þórisdóttir (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 12:27

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Skuggaleg mynd.

Ásgrímur Hartmannsson, 1.4.2008 kl. 12:34

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Lygin er þeirra fylgifiskur sem hafa vondan málstað. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2008 kl. 13:10

5 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Það þykir mér merkilegt ef einhver kaupir svona augljósan áróður.

Það er áhyggjuefni.

Fólk þarf ekki annað en kynna sér Tíbet og búddhatrúna til þess aðátta sig á því að sjálfsvígsárásir fara engan veginn saman við líf Tíbeta og munu aldrei gera.

Kristbjörg Þórisdóttir, 1.4.2008 kl. 14:16

6 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Kínverjar nota gamla brellu sem hefur oft virkað vel í sögunni, þetta bragð er mikið notað í dag um allan heim, ekki síst í Bandaríkjunum til að koma óorði á mótmælendur og hleypa upp friðsömum samkomum. Svínslegt en staðreynd, þetta er ekkert nýtt því miður.

Georg P Sveinbjörnsson, 1.4.2008 kl. 14:25

7 identicon

Gaman að sjá hvernig Gorgji P nær alltaf að draga Bandaríkin inn í umræðuna.

Nonni (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 17:02

8 identicon

Þetta eru áreiðanlega hryðjuverkamunkar sem eru búnir að drepa löggur og stela búningunum þeirra.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 18:26

9 Smámynd: TómasHa

Ég sá þetta hérna í Shanghai, en samkvæmt opinberum fréttastofum er þetta ekki ættað frá Tíbet, heldur allt öðrum stað og við eitthvað allt annað tilefni og dæmi hvernig vestrænir fjölmiðlar skekkja sannleikann.

TómasHa, 2.4.2008 kl. 23:19

10 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Æji Tómas minn er búið að heilaþvo þig líka... vara þig við að trúa veruleika sem er jafn skakkur og fjölmiðlaveruleikinn í Kína

Birgitta Jónsdóttir, 2.4.2008 kl. 23:31

11 Smámynd: Nexa

Ég held að hann Tómas hafi bara verið að láta okkur hin vita hvað kínverskir fljölmiðlar segja - ekki að hann trúi því. Enda alveg vitað að stjórnvöld í Kína (eins og svo víða) stjórni fjölmiðlum.

Nexa, 14.4.2008 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 509271

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband